Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

Björnsdóttir Ragnheiður Birna

Hraunbrún

11月8日

Júlí og ágúst myndir komnar inn

Ég skutlaði inn nýjum myndum, frá júlí og ágúst.  Ég er sem sagt enn að reyna að vinna upp og virðist alltaf vera svona 2-3 mánuðum á eftir.  Ég vonandi kem inn myndum frá Tenerife fljótlega, þær eru næstar á dagskrá...
 
Annars lítið að frétta.  Ég á tíma í svínaflensusprautu á fimmtudag og krosslegg fingur að veikjast ekki áður.  Ég ef nefnilega skíthrædd við að leggjast aftur í lungnabólgu í framhaldinu...  Fékk því tíma rétt í lokin á forgangshópnum. 
10月20日

18 mánaða skoðun

Tíminn líður og sá litli var í 18 mánaða skoðun.  Tölurnar reyndust vera 11,635 kg, 81,4 cm og höfuðmál 47,8 cm.  Þannig reiknast mér til að loksins höfum við unnið keppnina við hana Hildi vinkonu okkar sem fæddist sem lítið kríli 3 mánuðum á undan Birni Ágústi.  Inga vinkona hefur "barist" við að halda henni stærri og hún hefur að jafnaði verið um 1 cm. lengri.  En loksins unnum við - tók aðeins 18 mánuði, ehem... Hot
 
Sá litli er búinn að vera kvefaður í 3-4 vikur og var loksins settur á penisilín, líklega með kinnbeinsholusýkingu.  Það leið varla dagurinn þegar nefrennslið var loksins hætt.  Við erum bara fegin á meðan svínaflensan stingur sé ekki niður á heimilinu.  Dóttirin horfði á mömmu sína stórum augum um daginn þegar móðirin útskýrði fyrir henni svínaflensuna.  Móðirin sagði, án þess að blikna, að nú væri að ganga veiki sem héti svínaflensa og allir þeir sem fengju þessa veiki fengju svínsnef og færu fljótlega að rýta, hehe...
 
Það var foreldrasýning hjá Döggu í ballettnum um síðustu helgi.  Frekar skondið að horfa á þetta, kennarinn að fá litlar 4 ára skvísur til að gera einhverjar kúnstir og alltaf var einhver sem var sveimhuga og jafnvel á krúfu í gólfinu þegar það átti að hoppa, hehehe.  Annars voru foreldrarnir frekar hissa eftir þessa sýningu því litli frumburðurinn reyndist vera með þeim stærri þarna í hópnum, hugsanlega bara næst stærst.  Hvaðan hún hefur þessa lengd er foreldrunum á huldu...
10月8日

Myndir

Ég skutlaði inn myndum frá sumarfríi okkar vikuna 10. júlí - 17. júlí á Kleppjárnsreykjum, Ólafsvík og Þingeyri.
9月13日

Þegjandi hás

Ég er enn einu sinni þegjandi hás.  Tekur þetta einhvern enda?  Alltaf að næla mér í einhver kvef sem enda með hæsi en vonandi ekki lungnabólgu þó í þetta skiptið.  Bróssi hefur ráðlagt mér nú að leita til háls-, nef- og eyrnalæknis og ætli ég drífi ekki í því.
 
Við áttum ágætis frídag í dag.  Ég er búin að taka til í fataskápnum og henda út gömlum fötum og skóm, baka brauð, búa til kókoskúlur með skvísunni, taka til í þvottahúsinu, fara í göngutúr til að gefa öndunum við lækinn og flýja frá brjáluðum máfum, horfa á Dodda með litla gaurnum, búa til pizzu og loks liggja í leti í sófanum.  Einhver sagði mér að í stað þess að henda gömlum fötum og skóm (fara með í endurvinnsluna) ætti að auglýsa þetta og selja.  Ég á eina hörku duglega vinkonu sem nánast hélt bílskúrssölu þegar hún tók til í bílskúrnum.  Held reyndar að ég sé ekki alveg svona snjöll í þessum sölumálum en ætla þó að skoða málið og athuga hvort ég nenni að standa í slíku...
 
Skellti inn myndum frá júní-mánuði.  Eitthvað gengur á myndaskuldina mína núna...
9月12日

2 ný myndaalbúm

Ég afrekaði það að skutla inn tveimur nýjum myndaalbúmum, bæði með myndum frá því í maí.  Þar er m.a. að finna myndir frá afmæli Döggu, fermingu Gunnars Bjarka frænda og frá Svíþjóðarferð okkar Döggu.
 
第 1 张,共 17 张
更多相册 (46)
Endilega kvitta í gestabókina!
请稍候...
很抱歉,您输入的评论太长。请缩短您的评论。
您没有输入任何内容,请重试。
很抱歉,我们当前无法添加您的评论。请稍后重试。
若要添加评论,需要您的家长授予您相应权限。请求权限
您的家长禁用了评论功能。
很抱歉,我们当前无法删除您的评论。请稍后重试。
您已超过了一天之内允许提供的评论数上限。请在 24 小时后重试。
因为我们的系统表明您可能在向其他用户提供垃圾评论,您的帐户已禁用了评论功能。如果您认为我们错误地禁用了您的帐户,请联系 Windows Live 支持部门
完成下面的安全检查,您提供评论的过程才能完成。
您在安全检查中键入的字符必须与图片或音频中的字符一致。
Elin发表:
Vildum bara kasta á ykkur kveðju úr sólinni á Flórída. Island with a palm treeSun
Sólarkveðjur
Ólafur Ívar og Elín Open-mouthed
6 月 23 日
Elin发表:
Velkominn í heiminn sæti.
Vonandi förum við skötuhjúin að hressast svo við getum kíkt í heimsókn og kannski fengið að knúsa þig aðeinsOpen-mouthed
Biðjum að heilsa
Ólafur Ívar og Elín
4 月 22 日
Inga发表:
PartyVið unnum - við unnum Party
3ja mánaða skoðun núna áðan: 4.485g og 53,5cm  Star Nú er bara spurning hvort drengurinn fari framúr dömunni minni Sarcastic Næsta mæling hjá okkur er 19. maí.
 
Kv. Inga
4 月 17 日
Inga发表:
Til hamingju með prinsinn - úrslitin koma í ljós á fimmtudaginn Wink Gæti trúað að mín hafi þyngst vel síðustu 2 vikur þ.a. aldrei að vita nema við vinnum þetta bara...Star Hlakka til að sjá ykkur!
 
Kv. Inga
4 月 15 日
Birna, Sverrir og Elísa Dimmey 发表:
Gott að vita að hressleikinn er að færast yfir heimilið.  Spurning hvort ólétta konan fari ekki bara að flísaleggja....þetta er eitthvað voðalega dularfullt með þennan tíma sem þetta tekur.  Er hann ekki bara með mini-sjónvarp að horfa á fótboltann á meðan í leyni? Open-mouthed
 
Knús til ykkar!
Aðalþingspakkið
2 月 18 日