Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
11月8日 Júlí og ágúst myndir komnar innÉg skutlaði inn nýjum myndum, frá júlí og ágúst. Ég er sem sagt enn að reyna að vinna upp og virðist alltaf vera svona 2-3 mánuðum á eftir. Ég vonandi kem inn myndum frá Tenerife fljótlega, þær eru næstar á dagskrá...
Annars lítið að frétta. Ég á tíma í svínaflensusprautu á fimmtudag og krosslegg fingur að veikjast ekki áður. Ég ef nefnilega skíthrædd við að leggjast aftur í lungnabólgu í framhaldinu... Fékk því tíma rétt í lokin á forgangshópnum. 10月20日 18 mánaða skoðunTíminn líður og sá litli var í 18 mánaða skoðun. Tölurnar reyndust vera 11,635 kg, 81,4 cm og höfuðmál 47,8 cm. Þannig reiknast mér til að loksins höfum við unnið keppnina við hana Hildi vinkonu okkar sem fæddist sem lítið kríli 3 mánuðum á undan Birni Ágústi. Inga vinkona hefur "barist" við að halda henni stærri og hún hefur að jafnaði verið um 1 cm. lengri. En loksins unnum við - tók aðeins 18 mánuði, ehem...
Sá litli er búinn að vera kvefaður í 3-4 vikur og var loksins settur á penisilín, líklega með kinnbeinsholusýkingu. Það leið varla dagurinn þegar nefrennslið var loksins hætt. Við erum bara fegin á meðan svínaflensan stingur sé ekki niður á heimilinu. Dóttirin horfði á mömmu sína stórum augum um daginn þegar móðirin útskýrði fyrir henni svínaflensuna. Móðirin sagði, án þess að blikna, að nú væri að ganga veiki sem héti svínaflensa og allir þeir sem fengju þessa veiki fengju svínsnef og færu fljótlega að rýta, hehe...
Það var foreldrasýning hjá Döggu í ballettnum um síðustu helgi. Frekar skondið að horfa á þetta, kennarinn að fá litlar 4 ára skvísur til að gera einhverjar kúnstir og alltaf var einhver sem var sveimhuga og jafnvel á krúfu í gólfinu þegar það átti að hoppa, hehehe. Annars voru foreldrarnir frekar hissa eftir þessa sýningu því litli frumburðurinn reyndist vera með þeim stærri þarna í hópnum, hugsanlega bara næst stærst. Hvaðan hún hefur þessa lengd er foreldrunum á huldu... 10月8日 MyndirÉg skutlaði inn myndum frá sumarfríi okkar vikuna 10. júlí - 17. júlí á Kleppjárnsreykjum, Ólafsvík og Þingeyri. 9月13日 Þegjandi hásÉg er enn einu sinni þegjandi hás. Tekur þetta einhvern enda? Alltaf að næla mér í einhver kvef sem enda með hæsi en vonandi ekki lungnabólgu þó í þetta skiptið. Bróssi hefur ráðlagt mér nú að leita til háls-, nef- og eyrnalæknis og ætli ég drífi ekki í því.
Við áttum ágætis frídag í dag. Ég er búin að taka til í fataskápnum og henda út gömlum fötum og skóm, baka brauð, búa til kókoskúlur með skvísunni, taka til í þvottahúsinu, fara í göngutúr til að gefa öndunum við lækinn og flýja frá brjáluðum máfum, horfa á Dodda með litla gaurnum, búa til pizzu og loks liggja í leti í sófanum. Einhver sagði mér að í stað þess að henda gömlum fötum og skóm (fara með í endurvinnsluna) ætti að auglýsa þetta og selja. Ég á eina hörku duglega vinkonu sem nánast hélt bílskúrssölu þegar hún tók til í bílskúrnum. Held reyndar að ég sé ekki alveg svona snjöll í þessum sölumálum en ætla þó að skoða málið og athuga hvort ég nenni að standa í slíku...
Skellti inn myndum frá júní-mánuði. Eitthvað gengur á myndaskuldina mína núna... 9月12日 2 ný myndaalbúmÉg afrekaði það að skutla inn tveimur nýjum myndaalbúmum, bæði með myndum frá því í maí. Þar er m.a. að finna myndir frá afmæli Döggu, fermingu Gunnars Bjarka frænda og frá Svíþjóðarferð okkar Döggu. 9月11日 Komin heim frá TenerifeJæja, fjölskyldan er komin heim frá Tenerife þar sem við dvöldum í góðu yfirlæti í 2 vikur. Það var reyndar frekar heitt, yfirleitt í kringum 30 gráður en við fórum jú í ágúst og þá getur maður átt von á svona hitta. Þessi ferð var að reyndar að sumu leyti svolítið skrítin og ólík öðrum haustferðum fjölskyldunnar. Það er nefnilega greinilega kreppa í fleiri löndum en á Íslandi því það var eitthvað svo fátt af fólki á eyjunni. T.d. var hótelið okkar engan veginn fullt og á sundlaugabakkanum yfirleitt innan við 20 manns í sólbaði. Fyrri vikuna náði Dagga að leika við tvo þýska krakka í barnalauginni en síðari vikuna átti hún barnalaugina alein. Skólarnir voru reyndar byrjaðir þegar við vorum þarna en það breytir því ekki að í öllum þeim haustferðum sem við höfum farið hefur verið troðið í barnalauginni. Á ströndinni var svipaða sögu að segja því Björn Ágúst gat hlaupið þar fram og til baka án þess að trufla nokkurn mann. Þetta var mjög kósý ferð fyrir vikið og okkur leið engan veginn eins og í niðursuðudós, hehe. Björn Ágúst tók líka þroskastökk þarna úti og fór að babbla líka heilmikið.
Af Döggu er helst að frétta að hún er farin að skreppa yfir til vinkvenna sinna að leika. Þetta hófst í sumar og foreldrarnir búnir að vera í smá sjokki. Allt í einu er litla skvísan farin að spyrja hvort hún megi fara til xxx að leika og svo er mín bara horfin og foreldrarnir vita varla hvað þau eiga af sér að gera á meðan, allt í einu er bara nægur tími fyrir yngra barnið. Ekki veitir af því sá er fjörugur orkubolti sem prílar upp á allt. Björn Ágúst er byrjaður aftur hjá Nansý dagmömmu og engar líkur á leikskóla fyrr en næsta haust. Reyndar finnst mér það bara ágætt því eftir öll veikindinn síðasta vetur er bara ágætt að hann sé innan um fáa grislinga.
Haustið er komið og Dagga er byrjuð í krúttakór Langholtskirkju. Þar mun hún í vetur mæta á kóræfingu 1x í viku. Fyrstu tónleikarnir eru meira að segja á sunnudaginn að viku liðinni í Langholtskirkju. Á morgun byrjar svo ballettinn aftur og hér er mikil tilhlökkun að mæta í nýja ballettbúningnum með Hello kitty myndinni á bumbunni.
Af foreldrunum er annars það helsta að frétta að húsmóðirin er að taka við deildarstjórn í vinnunni og leysa af núverandi deildarstjóra í 15 mánuði. Það verður því líklega nóg að gera í vetur. Það styttist því í að Óli geti orðið heimaliggjandi húsbóndi eins og hann dreymir um. 7月3日 Nýjar myndirLoksins hafði ég það af að koma myndum á síðuna. Náði þó bara apríl mánuði í þetta skiptið svo það er slatti eftir. Það er því von á nýjum myndum á næstunni.
Björn Ágúst er kominn með allar 4 augntennurnar, reyndar fyrir um mánuði síðan svo hann á bara eftir 2gja ára jaxlana í tanntökunni. Og hann er bara 13,5 mánaða... Hann prílar upp um allt og er farinn að hlaupa. Allir kollar heimilisins eru á hvolfi því annars er hann kominn upp á þá. Orðin eru að fara koma, loksins kom fyrsta fyrir um 1-2 vikum. Það var "ta" sem þýðir takk. Hann er auk þess farinn að herma eftir hljóðunum sem maður gerir svo þetta er allt að koma.
Dagga er komin á vinkonu-aldurinn. Vinkona hennar býr hér fyrir aftan og þær fara á milli til að leika saman. Þessu fylgja líka ný vandamál. Til að byrja með ætluðu þær að leika alltaf bara tvær saman, líka á leikskólanum. Málið var rætt við Döggu og það er úr sögunni, nú er leikið við alla.
Þriðjudaginn 19. maí datt Dagga á aðra framtönnina og meðfram henni blæddi. Fingur voru krosslagðir en allt kom fyrir ekki, tönnin reyndist dauð. Mamma hennar er ekki alveg sátt að horfa á nýja brosið með gráum bletti en það verður að venjast. Það er víst ekki hægt að lita barnatennur.
Annars er allt gott að frétta af okkur hjónunum. Við bíðum eftir að komast í sumarfrí, ég byrja 8. júlí en Óli 13. júlí. Lítið er planað enn sem komið er nema ein útilega. 5月13日 Tónleikar 13. maí í Fella- og Hólakirkju kl. 20Já, sé ég þarf aldeilis að skila af mér fréttunum. Alveg heill mánuður frá síðustu færslu, greinilega ekki mjög virk í blogginu þessa dagana.
Björn Ágúst fór að ganga fyrir afmælið sitt, 1 árs og 4 daga. Hann hefur líka fengið eyrnabólgu í fyrsta skiptið og tilheyrandi pensilin kúr og að þremur dögum liðnum aftur í eyrun. Vonandi dugar þessi skammtur. Annars skilst mér að maður eigi að drífa grislingana í sund.
Fyrsta augntönnin kom í ljós sl. sunnudag og augntönn nr. 2 braust í gegn í gær. Hann er sem sagt kominn með 14 tennur og ekki orðinn 13 mánaða. Hann talar og talar en maður skilur ekki orðaskil, þó hann reyni að herma eftir okkur. Held hann verði eins og frændi sinn hann Arent sem talaði frönsku til svona 3 ára. Eða við höldum alla vegana að það hafi verið tungumálið.
Dagga hætti á 4 ára afmælinu sínu að nota snuð. Þau voru reyndar bara notuð á nóttunni og fyrir vikið var þetta bara ekkert mál. Við mæðgurnar gerðum okkur svo ferð í Húsdýragarðinn á laugardaginn var til að gefa ungviðinu snuðin. Með snuðinu fylgdi líka bréf til kálfanna, allt vel undirbúið.
Við mæðgurnar erum svo á leið til Svíþjóðar í næstu viku. Í kreppunni var pöntuð ferð fyrir flugpunkta til Stokkhólms 21. maí og þaðan verður haldið með lest til Norrköping til Lilju frænku. Heimferð er svo ekki fyrr en þriðjudaginn 26. maí. Óli og Björn Ágúst ætla að kósa sig heima á meðan.
Þar með eru þessar fréttir skrásettar fyrir "log-ið", hana nú.
Kórinn minn heldur tónleika á morgun, miðvikudag kl. 20 í Fella- og Hólakirkju. Þar verður meðal annars frumflutt verkið Missa Lumen, með strengjasveit og einsöngvurum auk þess sem við verðum frekar trúarleg þetta árið með tvær Ave Maríur og fleira í þeim dúr. Held þetta verði frábærir tónleikar. Þessa stundina er ég hins vegar skælandi yfir sviknum hugsanlegum, mögulegum, kannski 2 sekúndna frægð eftir 10 fréttir. Eins og ég brosti og brosti framan í myndavélina á kóræfingunni í gærkvöldi. Þetta hefði líka orðið mér ofviða, hefði ekki höndlað svona frægð. Var komin með stjörnustæla og allt, tilbúin með pennann á lofti fyrir allar eiginhandaáritanirnar. Ég skil ekkert í því að Jóhanna hafi verið tekin framyfir okkur, við syngjum sko alveg jafnvel og við stelpurnar erum alveg jafn sætar. Held að málið sé að við stelpurnar vorum ekki í bláum kjól með tjulli... 4月13日 Björn Ágúst 1 ársBjörn Ágúst er 1 árs í dag. Hann er farinn að labba á milli húsgagna og hlutirnir gerast hratt. Við stefnum á að vera farin að labba á laugardaginn þegar haldið verður upp á afmælið.
Ætli það sé eitthvað páskadjók í gangi hjá Wiskas. Var að gefa kisa í morgun kisumat úr svona litlum pokum frá Wiskas. Þegar ég hafði kreist allan matinn út datt fjöður ofan í kisudallinn. Já, ég er ekki að grínast, gul fjöður með litlum svörtum doppum kom út úr pokanum. Maður starði og það flaug í gegnum hugann hvað í ósköpunum maður hefur verið að gefa kettinum... páfagauka..? Aðrar hugmyndir..? Á maður að hringja út af þessu, eða..? 4月11日 10 skref og 4 jaxlar mættir á svæðiðLitli gaurinn er búinn að vera alveg drullu lasinn, karlinn. Svo lasinn að hann hefur sofið nánast í 4 daga og þess á milli kúrt í fanginu hjá mömmu og pabba. Hann hresstist lokks í dag, á 7. degi og hefur verið í essinu sínu. Hann hefur tekið nokkur skref sjálfur og sló persónulegt met með því að labba heil 10 skref óstuddur. Það má kannski geta þess að fyrsta skrefið óstuddur var tekið þriðjudagskvöldið 31. mars þegar hann gekk 3 skref berrassaður í átt að baðinu. Enda er svo svaka gaman að fara í bað. Þar fyrir utan kom 4. jaxlinn í ljós í gær, hann er þó kominn svolítið upp svo líklega er hann um viku gamall.
Annars er mest lítið að frétta... Skellti inn hrúgu af myndum...
3月17日 Klappi-klappVá, hvað maður hefur beðið lengi eftir klappi og það loksins kom í dag. Litli gaurinn er orðinn 11 mánaða og loksins fór hann að klappa. Dagga var hins vegar rétt rúmlega 6 mánaða. Greinilegur munur á kynjum hvað varðar fínhreyfingar... Hann er alltaf á iði og stoppar ekki. Svaka hreyfiþroski í gangi.
Ég er stigin upp úr lungnabólgu og reyni að taka því rólega. Er enn hóstandi og var enn með brak í lungunum sl. fimmtudag þó líklega séu samt allir sýklar dauðir. Þetta er sannkallað pensílín-bæli hérna. Óli er búinn með vikuskammt við sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum og á föstudaginn kom í ljós að Dagga er með bullandi sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum. Við létum tékka á henni þar sem hún reyndist með vökva í eyrum í 3,5 ára þroskaprófinu í byrjun desember en þá var okkur sagt að láta athuga þetta aftur eftir ca. 2 mánuði. Aumingja skvísan, hún hefur kannski verið með sýkingu allan þennan tíma...
Senn líkur "feðrafríinu" hans Óla. Skrítið með þetta "frí", annað hvort var þetta sannkallað frí eða þá eitthvað meira að gera en áætlað var því verkefnalistinn á ísskápnum er nánast óbreyttur og fáu lokið. En þessi nýja húsmóðir hefur staðið sig með afbrigðum vel, hún hefur þvegið þvott í 2 mánuði og gengið frá honum án þess að ég hafi nokkuð komið nálægt. Sama á við um önnur húsverk því húsbóndinn (ég) hefur viljandi reynt að sníða hjá öllum húsverkum svo nýja húsmóðirin þyrfti líka að ganga í öll þessi litlu ósýnilegu verkefni sem enginn tekur eftir að þurfi að framkvæma. Litli gaurinn er svo byrjaður í aðlögun hjá Nansý dagmömmu og þann 26. mars hefst ballið. 2月28日 Hver er stór?Björn Ágúst! Loksins fór hann að sýna smá takta og teygir sig langt upp í loft þegar hann er spurður hversu stór hann er. Hana nú!
Annars er það að frétta úr veikindabælinu að ég er enn lasinn en er komin á pensilin. Fór enn einu sinni til læknis sem sendi mig í röntgen á lungum og á ennis- og kinnbeinsholum. Niðurstöðurnar komu á fimmtudag, ég er barastað með lungnabólgu og sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum á byrjunarstigi. Hlaut að vera, ég er búin að vera svo svakalega slöpp, varla komist upp og niður stigann hér innanhúss án þess að vera móð og másandi. Svo nú er ég farin að maula pensilin og vonast til að sjá bata á allra næstu dögum.
Það styttist í að betri helmingurinn eigi afmæli. Einhverjar hugmyndir um afmælisgjöf? 2月23日 Fyrsti jaxlinnÞað nýjasta nýtt er að Björn Ágúst er kominn með fyrsta jaxlinn - 10 mánaða. Hann sem sagt heldur uppteknum hætti og ætlar að drífa sig í tanntökunni... 2月22日 FlensaHúsbóndinn á heimilinu er með flensu þessa dagana. Nei, ekki Óli... heldur ég... Og ég sem fór í flensusprautu í október... Nú er 5. dagur veikinda og ég er ekki alveg farin að sjá fram úr þessu ennþá.
Nú er maður búin að vinna í þrjár vikur og feðgarnir eru saman heima. Það er ekki að sjá að Björn Ágúst sakni eitthvað mömmu sinnar, greinilegt að þeir tveir hafa það mjög gott. Enda er nóg að gera því sá litli er útum allt. Hann er farinn að skríða á 4 fótum, hendir sér stundum á magann og togar sig áfram en fer að mestu um á fjórum núna. Hann er farinn að standa upp við borð og skápa og setjast aftur niður. Svo sér maður hann stundum í leikfimi á gólfinu þar sem hann stendur með rassinn upp í loftið en hendur á gólfinu. Við spáum því að hann verði farinn að ganga um 1 árs, ólíkt Döggu, enda lætur hann sig vaða með tilheyrandi marblettum. Dagga á vinninginn í brellum og málþroska. Björn Ágúst er nú 10 mánaða og hér er ekki komið eitt orð sem í samanburði við Döggu er frekar seint. Sömuleiðis bólar enn ekki á "hvað er Björn Ágúst stór" eða "sterkur" frekar en að geta klappað. Þá er horft á mann eins og maður sé eitthvað skrítinn. Það var þó loksins í þessari viku sem hann fór að vinka bless. Og hver sagði svo að hann væri ekki samanburðarbarn, haha.
Dagga bíður spennt eftir morgundeginum með bolluvöndinn á lofti. Hún er þó búin að taka smá æfingar um helgina og við höfum verið flengd í tíma og ótíma. Svo er hún tilbúin með tígrisdýrabúninginn fyrir Öskudaginn. Þetta eru aldeilis skemmtilegir dagar að hennar mati. 1月25日 Vinna á morgunÞá er fæðingarorlofið og sumarfríið búið og vinna á morgun. Mikið svakalega hefur tíminn liðið hratt. Litli gaurinn bráðum 9,5 mánaða. Mér finnst eins og ég hafi verið í stuttu fríi frá vinnunni en samt hefur svakalega mikið gerst í millitíðinni. Það togast á í manni hlutirnir, að sjálfsögðu hefði ég viljað vera lengur heima hjá Birni Ágústi, helst í 1 ár, en á sama tíma hlakka ég til að mæta til vinnu á morgun. Að vísu hefur ýmislegt gengið á í vinnunni, m.a. uppskipting á stofnunni sem einmitt snertir mig beint, og framtíðarverkefnin voru ekki alveg ljós. Ég átti síðan ágætis fund með mínum yfirmönnum og fékk góð svör og er, eins og ég segi, farin að hlakka til að mæta. Held líka að þegar eina umræðuefni manns er farið að snúa um börnin, hvort það sé farið að skríða, standa, o.s.frv., þá held ég að það sé kominn tími til að fara að víkka út sjóndeildarhringinn. Enda mun Björn Ágúst hafa það voða gott hjá pabba næstu 2 mánuði.
Svo maður segi einmitt frá grislingunum, hehe. Dagga er byrjuð í ballett og skemmtir sér konunglega. Hún er alltaf svo svaka spennt á hverjum laugardagsmorgni að það er eiginlega fyndið. Þegar við mætum á staðinn ætlar brosið ekki að fara af, hún gapir þarna með opinn munninn og tunguna út og hleypur nokkra hringi áður en tíminn hefst. Mamman fær líka smá fiðring og væri líka til í að byrja aftur í ballett.
Björn Ágúst er eins og hvirfilbylur um húsið og foreldrarnir á eftir. Hann er svaka tætari. Hann er farinn að standa upp við koll og aðeins farin að fara á hnéin. Það er því aldrei að vita nema hann muni skríða "venjulega" fljótlega.
1月13日 Nýjustu tölurSá litli er 9 mánaða í dag var í skoðun í morgun. Þetta var reyndar 8 mánaða skoðunin sem framkvæmd er mánuði of seint þar sem ekki fékkst tími fyrr. En alla vegana, guttinn er auðvitað bráðmyndalegur og afbragðs gáfaður... Hjúkkan sagði þetta reyndar ekki en ég gat lesið það úr augunum á henni, svona eins og allar hinar mömmurnar, hehe. Nýjustu tölur eru: 70,5 cm, þyngdin 9250 g og höfuðmálið 44,9 cm. Hann hefur að undanförnu verið að borða á sig gat og unnið upp þyngdartap eftir veikindi sem eru búin að vera þó nokkur svo mamman var ánægð að heyra þessar tölur. Býst reyndar við veikindum á morgun því hann fékk sprautu sem hann varð ansi lasinn af síðast. En það gengur fljótt yfir. ttÉg átti reyndar von á fleiri cm en Björn Ágúst er örlítið að detta niður í lengdinni. Skrítið, eins og mamman og pabbinn eru stór! Er komið að því að kaupa plankastrekkjar á heimilið? 1月12日 Síðasti dagur fæðingarorlofsinsTíminn líður hratt, á gervihnattaöld... Vá, í dag er síðasti dagur fæðingarorlofsins og á morgun verður Björn Ágúst 9 mánaða. Ég fer þó ekki að vinna á morgun heldur verð í sumarfríi til 26. janúar. Þá ætlar Óli að fara í "feðrafrí". Held stundum að hann haldi að ég sitji með tærnar upp í lofti í fríi, hehe. Nei, nei, hann gerir sér grein fyrir að það verður nóg að gera. Hann lærði það af reynslunni þegar hann fór í fæðingarorlof með Döggu. Þá var hann með langan lista yfir verkefni sem hann ætlaði að komast yfir en sá listi er eiginlega bara enn í gildi.
Dagga byrjaði í ballett síðasta laugardag og fannst voða gaman. Við hjónin vorum aðeins að velta því fyrir okkur hvort okkar ætti að fara með skvísunni en úr varð að ég fór með hana, sem betur fer fyrir Óla. Hefði hann farið þá hefði hann orðið að gjöra svo vel og tipla um á tánnum með hendur út í loftið, sem vængi, og hlaupa svoleiðis í hring með dótturinni. Veit ekki alveg hvernig það hefði tekist, hoho. En hann verður þó að fara einhvern tímann með dótturinni, en nú er hann undir svona dans búinn.
Björn Ágúst ferðast út um allt hús í parketskriði. Honum hefur verið bjargað frá rafmagnssnúrum, útvarpinu, afgöngum af gólfinu, kettinum með loppur upp í loftið en hann hefur samt afrekað að ná að smakka á moldinni í blómapottunum sem og að hækka og lækka í útvarpinu. Rosalega gaman! Ég er á harðalaupum og suma dagana sveitt að eltast við hann. Get huggað mig við það að aukakílóum fjölgar ekki á meðan, enda eru "meðgöngukílóin" senn að hverfa. 1月8日 ÞrettándinnVið fórum í afmæli í Grindavík á Þrettándanum, sem er svo sem telst ekki til frétta, nema vegna þess að þar er siður að grislingar fara að sníkja nammi og syngja lög á þeim degi. Dagga slóst með í för í þetta skiptið og fannst æði. Nammipokinn sem hún kom með til baka var svo algjör bónus.
Hér eru nokkrar myndir af uppábúnum krökkum; Döggu og frændsystkinum Óla.
Og svo er hér ein af þeim bræðrum, Gæja með fyrsta barnabarnið sitt og Óla með Björn Ágúst. Takið eftir því að Gæi og Björn Ágúst eru með sama brosið á myndinni.
1月5日 Nýtt árNýtt ár er gengið í garð og það gamla sprengt upp um áramótin. Dagga sendi varadutturnar sínar upp með rakettunni um miðnætti. Hægt og sígandi er unnið að því að hætta með snuð. Síðasta sumar hætti hún að nota snuð á leikskólanum og varadutturnar voru í raun ekki lengur í notkun. Þær voru geymdar í mömmu veski og notaðar í bílnum eða annars staðar í neyð. Eftir að hafa nefnd þessa hugmynd við Döggu hugsaði hún málið og var svo alveg hörð á þessu. Í undirbúningi er að gefa kálfunum í Húsdýragarðinum snuðin þegar hún verður 4 ára.
Við höfðum það ágætt um jólin og áramótin. Svona fyrir utan veikindi húsmóðurinnar milli jóla og nýárs. Þannig að hún bætti ekki á sig neinum aukakílóum yfir þessi jól. Það er orðin fastur liður að veikjast eða kvefast einu sinni í mánuði og desember var bara alveg að klárast... Doksi hringdi þegar ég lá í rúminu með niðurstöður úr sneiðmyndinni. Ég er með bungu við brjóskið milli liða n og nn (úff náði því ekki í hitamókinu) sem ekkert er gert við í bili. Þá er bara að þrauka og vona að þetta versni ekki. Enda er ég með ágætum núna eftir rúmleguna milli jóla og nýárs, hehe. Stráksi er allur að koma til, hóstar þó enn eftir veikindin og verið með niðurgang sem er þó á bataleið. Meira ástandið á þessu heimili en vonandi batnar þetta núna (var þetta skrifað af Pollý Önnu?
Foreldrarnir hafa unnið að því undanfarið að forða öllum smáum hlutum af gólfinu upp í örugga hæð. Björn Ágúst er nefnilega komin á fullt, togar sig áfram á höndunum um alla íbúð. Í gær voru það rafmagnsnúrurnar sem heilluðu, í dag var blaðra elt út um allt hús. Og svo er fínt að smakka á öllum hornum, t.d. á eldhúsinnréttingunni. Hliðið við stigann er komið upp enda var ekki hægt að taka áhættu lengur að hafa stigann óvarinn.
Fæðingarorlofið styttist óðfluga, aðeins nokkrir dagar eftir. Því líkur 13. janúar en þá hefur húsmóðirin ákveðið að taka sér nokkra daga í sumarfrí, eða til og með 23. janúar. Ég fer því til vinnu 26. janúar - á ansi breyttan vinnustað, held ég. 12月22日 Nokkrar myndirMér fannst vera tími til kominn að skella inn nokkrum myndum. Þær eru að venju hér til hliðar.
|
|
|