Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


9月13日

Þegjandi hás

Ég er enn einu sinni þegjandi hás.  Tekur þetta einhvern enda?  Alltaf að næla mér í einhver kvef sem enda með hæsi en vonandi ekki lungnabólgu þó í þetta skiptið.  Bróssi hefur ráðlagt mér nú að leita til háls-, nef- og eyrnalæknis og ætli ég drífi ekki í því.
 
Við áttum ágætis frídag í dag.  Ég er búin að taka til í fataskápnum og henda út gömlum fötum og skóm, baka brauð, búa til kókoskúlur með skvísunni, taka til í þvottahúsinu, fara í göngutúr til að gefa öndunum við lækinn og flýja frá brjáluðum máfum, horfa á Dodda með litla gaurnum, búa til pizzu og loks liggja í leti í sófanum.  Einhver sagði mér að í stað þess að henda gömlum fötum og skóm (fara með í endurvinnsluna) ætti að auglýsa þetta og selja.  Ég á eina hörku duglega vinkonu sem nánast hélt bílskúrssölu þegar hún tók til í bílskúrnum.  Held reyndar að ég sé ekki alveg svona snjöll í þessum sölumálum en ætla þó að skoða málið og athuga hvort ég nenni að standa í slíku...
 
Skellti inn myndum frá júní-mánuði.  Eitthvað gengur á myndaskuldina mína núna...
9月12日

2 ný myndaalbúm

Ég afrekaði það að skutla inn tveimur nýjum myndaalbúmum, bæði með myndum frá því í maí.  Þar er m.a. að finna myndir frá afmæli Döggu, fermingu Gunnars Bjarka frænda og frá Svíþjóðarferð okkar Döggu.
9月11日

Komin heim frá Tenerife

Jæja, fjölskyldan er komin heim frá Tenerife þar sem við dvöldum í góðu yfirlæti í 2 vikur.  Það var reyndar frekar heitt, yfirleitt í kringum 30 gráður en við fórum jú í ágúst og þá getur maður átt von á svona hitta.  Þessi ferð var að reyndar að sumu leyti svolítið skrítin og ólík öðrum haustferðum fjölskyldunnar.  Það er nefnilega greinilega kreppa í fleiri löndum en á Íslandi því það var eitthvað svo fátt af fólki á eyjunni.  T.d. var hótelið okkar engan veginn fullt og á sundlaugabakkanum yfirleitt innan við 20 manns í sólbaði.  Fyrri vikuna náði Dagga að leika við tvo þýska krakka í barnalauginni en síðari vikuna átti hún barnalaugina alein.  Skólarnir voru reyndar byrjaðir þegar við vorum þarna en það breytir því ekki að í öllum þeim haustferðum sem við höfum farið hefur verið troðið í barnalauginni.  Á ströndinni var svipaða sögu að segja því Björn Ágúst gat hlaupið þar fram og til baka án þess að trufla nokkurn mann.  Þetta var mjög kósý ferð fyrir vikið og okkur leið engan veginn eins og í niðursuðudós, hehe.  Björn Ágúst tók líka þroskastökk þarna úti og fór að babbla líka heilmikið.  Smile
 
Af Döggu er helst að frétta að hún er farin að skreppa yfir til vinkvenna sinna að leika.  Þetta hófst í sumar og foreldrarnir búnir að vera í smá sjokki.  Allt í einu er litla skvísan farin að spyrja hvort hún megi fara til xxx að leika og svo er mín bara horfin og foreldrarnir vita varla hvað þau eiga af sér að gera á meðan, allt í einu er bara nægur tími fyrir yngra barnið.  Ekki veitir af því sá er fjörugur orkubolti sem prílar upp á allt.  Björn Ágúst er byrjaður aftur hjá Nansý dagmömmu og engar líkur á leikskóla fyrr en næsta haust.  Reyndar finnst mér það bara ágætt því eftir öll veikindinn síðasta vetur er bara ágætt að hann sé innan um fáa grislinga.
 
Haustið er komið og Dagga er byrjuð í krúttakór Langholtskirkju.  Þar mun hún í vetur mæta á kóræfingu 1x í viku.  Fyrstu tónleikarnir eru meira að segja á sunnudaginn að viku liðinni í Langholtskirkju.  Á morgun byrjar svo ballettinn aftur og hér er mikil tilhlökkun að mæta í nýja ballettbúningnum með Hello kitty myndinni á bumbunni.
 
Af foreldrunum er annars það helsta að frétta að húsmóðirin er að taka við deildarstjórn í vinnunni og leysa af núverandi deildarstjóra í 15 mánuði.  Það verður því líklega nóg að gera í vetur.  Það styttist því í að Óli geti orðið heimaliggjandi húsbóndi eins og hann dreymir um. Wink