Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


9月29日

Geysp... og 3. tönnin

Geysp, ég er þreytt í dag.  Ég er líklega að næla mér í kvef eða eitthvað.  Ofan á það þá var Björn Ágúst erfiður í nótt.  Hann heimtaði að drekka þrisvar sinnum, þrátt fyrir ýmsar tilraunir foreldrana til að fá hann ofan af því.  Hver ástæðan er gæti verið ýmislegt, t.d. að hann sé kannski líka að fá kvef eða honum sé illt í maganum ennþá eða tanntaka eða... eða... eða bara kósý. 
 
Stráksi loksins gerði nr. 2 í gær eftir 12 daga bið.  Húsmóðirin var svo sniðug að sofa þessa bombu af sér svo pabbi varð að skipta á honum.  Bleyjan var víst nýtt í botn, hoho.  Hann byrjaði jú að fá graut aftur fyrir 10 dögum, eftir mánaðar grautarpásu, svo líklega er það ástæðan.  Fyrir vikið er hann eiginlega farinn að fá graut tvisvar sinnum á dag, hefðubundinn graut fyrir svefninn og sveskjugraut í hádeginu, hehe.
Stráksi er líka búinn að vera óður í gómnum og nagar allt sem hann nær í.  Þrátt fyrir tennurnar tvær hætti kláðinn bara ekki neitt.  Svo húsmóðirinn þreyfaði í gómnum ofanverðum í gær og fann þar barastað 3. tönnina.  Hún er ekki framtönn heldur hægra megin við þær.  Og 4. tönnin er á leiðinni hinum megin.  Sá er aldeilis að flýta sér í tanntökunni því hann er bara 5,5 mánaða.
 
Við erum á leið á ættarmót um næstu helgi.  Eða svoleiðis, þetta eru systkini Guggu, tengdó, og öll systkini hennar ásamt börnum sem ætla að hittast.  Loksins tókst okkur börnunum að kría fram hitting.  Þau nefnilega systkinin, sem eru 7, eru ansi dugleg að hittast við alls konar tækifæri en þau skilja börnin (og tengdarbörn) alltaf "út undan".  Þannig að í jarðarför í vor hitti Óli mörg frændsystkinin í fyrsta skiptið í langan tíma.  Hann hefði hreinlega ekki þekkt sum þeirra úti á götu.  Svo það var nöldrað, kvartað og kveinað og að lokum var fundinn dagur fyrir hitting.  Ég held þetta verði voða gaman.
9月26日

Húsmóðir

Ég held ég sé orðin algjör kerling.  Ég er búin að hnoða saman deig í pizzu og ætla að gera heimabakaða pizzu í kvöld.  Þeir sem þekkja mig vel eiga örugglega eftir að gapa núna þegar þeir lesa þetta.  Og það sem meira er, í kvöld ætla ég að hnoða deig í heimabakað brauð sem ég ætla svo að skutla í ofninn í fyrramálið og borða volgt í morgunmatnum.  Fór meira segja áðan út í rokrassgatið og labbaði með vagninn í Samkaup og keypti álegg á pizzuna.  Þurfti reyndar að snúa vagninum í marga hringi til að finna út úr hvaða átt þessi vindur kom.  Hjálp, hjálp, einhver bjargi mér frá þessum húsmóður hlutverki...
9月22日

Sniðugt tól

Rosalega er Facebook sniðugt tól.  Ja, svona fyrir utan að þetta er algjör tímaþjófur fyrir mömmur í fæðingarorlofi, maður á það nefnilega til að missa sig alveg þarna, brasa hitt og þetta og uppgötva svo að maður verður að drífa sig að sækja stelpuna á leikskólann - dagurinn bara búinn.  En alla vegana, ég fann gamla þýska vinkonu á Facebook, vinkonu sem ég átti úti í Portúgal þegar ég var þar sem skiptinemi.  Við vorum í sambandi fyrstu árin eftir dvöl okkar þar en svo slitnaði upp úr þessu.  Hún var ekkert smá hissa að fá frá mér línu, hehe.  Rosa gaman.
 
Ég er búin að vera á þvælingi undanfarið í leit að úlpu á börnin.  Sh#$% hvað allt er orðið dýrt.  Úlpa á gæjann á svona 7 þús.  Og eigum við eitthvað að ræða það hvað úlpur kosta í P&P.  Þar var ódýrasta úlpan á 11 þús.  Ertu ekki að grínast?  Fór á netið og fann H&M síðu og fínustu úlpur þar.  Held ég geti keypt þar fyrir bæði börnin á 7 þús, samtals.  Svo ég bað Lilju frænku í Svíþjóð að athuga fyrir mig úlpur þegar hún er í verslunarleiðangri.  Og ég held að henni finnist það ekkert leiðinlegt, alla vegana eru þær mæðgur duglegar í búðarápi þegar þær koma til Íslands.  Svona eins og maður gerir sjálfur þegar maður er í útlöndum.  Svo er ég alvarlega að hugsa um það að fara í húsmæðraorlof til Svíþjóðar í janúar á útsölur.  Ég held ég muni eiga það inni hjá Óla, hehe, hann var nefnilega að tilkynna að hann sé líklega á leið enn og aftur til Nýja Sjálands í október.
9月17日

5 mánaða skoðun

Við vorum að koma úr 5 mánaða skoðun þar sem Björn Ágúst fékk auðvitað prýðis einkunn.  Tölurnar voru þessar: 7,730 g að þyngd, 66,3 cm og höfuðmál 44,3 cm.  Annars ætla ég að hefja aftur grautargjafir.  Hann gónir á eftir öllu sem ég set upp í mig svo hann er tilbúinn að fara að borða.  Fyrir utan að hann vaknar enn á næturnar til að drekka, væri nú gott að fara að losna við það.
 
Er að vinna í að setja myndir úr ferðalaginu en það gengur eitthvað hægt.  Tölvan okkar er ekki sú hraðvirkasta svo það tekur svolítinn tíma að uploada myndunum. 
9月15日

Komin heim á ný

Það er alltaf gott að vera komin heim aftur.  Samt hefði ég alveg verið til í svona viku í viðbót.  Við höfðum það voða gott í Portúgal en fríið einkenndist svolítið af þvælingi.  Við eyddum fjórum dögum í Lissabon og sú dvöl var skemmtileg en lítil afslöppun.  Á Albufeira var síðan svolítill þvælingur á milli strandar og hótels og síðan á milli miðbæjar og hótels.  Það er svolítill galli hvað hótelin á Albufeira eru staðset bæði langt frá strönd og miðbæ.  Þegar maður er með svona grislinga þá fer talsverður tími í svona flakk nefnilega.  En þrátt fyrir það var þetta fínt frí.  Döggu fannst ströndin og sundlaugin æði en sá litli var ekki beinlínis spenntur fyrir hitanum.  Hann vakti því mikið yfir daginn en gat þá líka æft sig að velta sér.  Nú er ekkert mál að velta sér á mallakútinn og maður er líka farinn að bragða á tásunum sínum.  Það er enn svolítið mál að velta sér til baka samt og þá er maður fastur á mallanum...
 
Heimflugið var frekar skrautlegt.  Ég er mikið að spá hvort maður eigi ekki að láta verða af því að hringja í Barnanefnd.  Eitt var að flugfélagið sem átti að fljúga okkur heim fór á hausinn á meðan við vorum úti.  Í staðinn sótti okkur vél á vegum Iceland Express sem var svo þröng að meira segja ég, stubburinn, rak hnéin í sætin fyrir framan.  Sú vél fór fyrst til Palma, Mallorca, og sótti þangað farþega svo í vélinni voru þreyttir farþegar og grenjandi börn.  Auðvitað voru mín börn samt til fyrirmyndar, hoho. Hot  En það sem var skrautlegast var parið hinum meginn við ganginn sem ferðaðist með 2,5 ára gamalt barn og ætlaðist til þess að geta lagt sig í vélinni.  Barnið var sem sagt á orginu og foreldrarnir reyndu ekki að gera neitt fyrir það til að róa það fyrir utan að mamman vafði höfuð barnsins ítrekað inn í teppi til að þagga niður í henni.  Pabbinn var nú greinilega að sofa úr sér eitthvað sterkara en áfengi og svaf þetta nú allt af sér.  Í lok ferðarinnar skrapp hann nú samt á klóið til að fá sér ábót og kom kátur til baka.  Toppurinn var þó lendingin því barnið var ekki fest niður við lendingu.  Þau voru ítrekað beðin um að festa niður barnið fyrir lendingu, jafnvel festi flugfreyjan það í lokin en þá var pabbinn svo kátur að hann leysti stelpuna og hélt á nenni í lendingu, ja, eða þannig, lét hana hoppa upp og niður á meðan á lendingu stóð.  Hvað segið þið, á maður að tilkynna svona?  Maður veit ekki nafn né sætanúmer en það er þó hægt að komast að því hverjir þetta voru því það voru bara þrjár barnafjölskyldur sem komu inn í Portúgal.