Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


9月7日

Rafmagnsleysi

Hér í vinnunni er búið að vera rafmagnslaust.  Einhver hjá OR klippti á einhvern streng og víða varð rafmagnslaust, þar á meðal hér við Hlemm.  Skrítið hvað maður er háður tölvunni sinni í vinnunni.  En well, svo sem verið nóg að gera fyrir því. 
 
Annars erum við á leið til Costa del Sol á miðvikudaginn og verður fram á laugardaginn 29. sept.  Fyrir ykkur þjófana þá er húsið vaktað og alltaf einhver við á neðri hæðinni.  Við verðum sem sagt úti í 17 nætur og ætlum að slaka á í sólinni.  Við getum ekki beðið núna eftir að komast í frí.
 
Það er lús að ganga á leikskólanum hennar Döggu.  Kom meira að segja upp á deildinni hennar.  Ég fór beinustu leið í apótekið og keypti kamb og kembdi.  Engin lús í það skiptið.  Verður endurtekið á nokkurra daga fresti fram að fríi.  Mér klæjaði svo mikið eftir þessar fréttir að ég kembdi mér líka, þó líkurnar á því að ég væri með lús en ekki Dagga væru dvínandi.  Bjakk!
 
Hjá okkur er búið að vera heilmikið að gera.  Fyrir tveimur vikum var allt rifið niður úr eldhúsinu og allt strípað, líka gólfdúkurinn fjarlægður.  Við tók vinna hjá Óla að leggja kork á gólfið.  Þeirri vinnu lauk seint á fimmtudagskvöldið fyrir viku.  Síðan kom smiðurinn á föstudaginn fyrir viku og hann kláraði að setja upp innréttinguna á þriðjudaginn.  Ja, eða sko þannig.  Í dag koma menn að mæla fyrir steini á borðið og svo tekur við bið í 2 vikur eftir borðplötunni.  Þegar hún er komin er hægt að klára restina og setja upp eftir hluta innréttingarinnar.  Þetta er heilmikið bras en þetta verður frábært þegar þetta er búið.  Já, og hvað kostar svona?  Bara láta ykkur vita að það kostar um 2 millj. að taka allt í eldhúsinu í gegn!  Ef þið trúið því ekki, ó jú:
 
Uppþvottavél og ofn, keypt á útsölu í janúar: 250.000 kr.
Spanhelluborð, vifta og nýtt pottasett, keypt á útsölu í ágúst: 250.000 kr.
Breyting á glugga, glugginn styttur: 80.000 kr.
Korkur á gólfið: 100.000 kr.
Innrétting úr hlyn með mjúklokum (vönduðu en þó ekki það flottasta): 970.000 kr.
Steinn sem borðplata: 300.000 kr.
Samtals: 1.950.000 kr.
 
Og enn á eftir að borga smiðnum fyrir uppsetningu.  Þá er eftir að mál, nú, og flísar á vegginn eru ótaldar með líka.  Svo við eigum eftir að fara yfir 2 milljónirnar.  En þetta er allt í lagi, við höfum dreift kostnaðnum yfir svolítið tímabil svo þetta reddast alveg.  Kannski ég splæsi líka nýju áklæði á stólana, júhú.
 
En svona fyrir utan þetta er mest lítið að frétta.  En engar fréttir eru góðar fréttir. Open-mouthed