Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
9月7日 Á leið til FuerteventuraFjölskyldan er á leið til Fuerteventura. Farið var pantað á mánudaginn og við förum út næsta þriðjudag, 12. september. Við skelltum okkur á tilboð og borgum heilar 110.000 kr. fyrir okkur þrjú í 2 vikur. Vel sloppið það og okkur sýnist við vera að fara á fínasta hótel, Oasis Royal. Þetta verður svolítið langt ferðalag með þá litlu en við leggjum ýmislegt á okkur til þess að komast í tæri við sumar þetta árið.
Dagga fékk heimsókn um síðustu helgi, þeir Ágúst Carl og Óðinn tóku mömmur sínar með í heimsókn. Þau eru þrjú á svipuðum aldri, Ágúst Carl deginum eldri en Dagga en Óðinn 6 mánuðum yngri. Auðvitað munar svolítið ennþá í aldri á henni og Óðni en bilið hefur styst síðan síðast. Og auðvitað eru myndir hér til hliðar.
Annars er Dagga lasin akkúrat núna og við á leið til barnalæknis. Vonandi er það ekki eyrnabólgan ógurlega! 9月5日 Ýmislegt brallaðJá, Dagga er svaka stór og hún tekur upp á ýmsu. Suma daga er voða dugleg og hjálpar mömmu sinni að þvo þvott. Þvílíkur dugnaðarforkur. Nú svo var mamma voða dugleg og Dagga fékk nýlega fyrstu hárgreiðsluna. Myndirnar segja kannski mest til um hversu listræn sú hárgreiðsla var. Dagmamman bætti reyndar um betur því stuttu síðar kom Dagga heim með tígó í fyrsta skiptið.
Dagga stækkar bara og stækkar, svo til farin að hlaupa um húsið og blaðrar út í eitt. Orðaforðinn stækkar líka með hverjum deginum; "dúpa" (súpa), "datt-ita" (datt þetta?), "nadn" (vatn), "dekka" (drekka) og svo fátt eitt sé nefnt.
Í lok ágúst skelltum við okkur í berjamó til Ólafsvíkur. Að vísu tók sú litla upp á því að fá 39°C í Ólafsvíkinni þannig að lítið varð úr því að hún færi með í berjamó. Foreldrarnir héldu hins vegar af stað og náðu að týna fulla fötu af krækiberjum og hálfa af bláberjum á ca. 2 klst. Nóg er að fá af krækiberjum en þetta árið virðist vera minna af bláberjunum. Það gerir svo sem ekkert til, krækiberjahlaupið hennar ömmu er í uppáhaldi og ennþá er eftir að fara út að týna rifsberin úti í garði. Hér til hliðar eru nokkrar myndir úr ferðalaginu til Ólafsvíkur.
|
|
|