Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


8月27日

Portúgal - hír ví komm!

Vei, vei, alveg á leið í flugvélina.  Við fórum í afmæli til Ölmu Birnu í gær og þar heyrði ég Döggu segja Kristínu vinkonu hennar að hún ætti bara þumalputtann eftir á leikskólanum.  Hmm, ég bað hana að útskýra.  "Já, sko..." með þrjá putta á lofti, "ég er búin að fara þennan á leikskólann, og þennan á leikskólann og nú á ég bara eftir að fara þumalputtann á leikskólann, svo fer ég í flugvélina".  Það er greinilega allt étið upp eftir manni, ég hafði nefnilega sagt henni um helgina að hún ætti eftir að fara þrjá daga á leikskólann og svo færum við til Portúgal, hehe.
 
Hér höfum við haft nóg fyrir stafni, s.s. matarboð til Viddu mágkonu sl. föstudagskvöld þar sem öll familían hans Óla var saman komin.  Svo hentumst við til Ólafvíkur í berjamó í rigningunni.  Þrátt fyrir týpískt veður í henni Stígvélavík höfðum við það af að koma heim með tæpa 9 lítra af krækiberjasaft.  Nú, svo grillveisla hér þar sem vinnufélagar úr TR mættu í mat, og svo undirbúa brottför, mömmuleikfimi og ungbarnasund.  Held mér leiðist voðalega lítið í þessu fæðingarorlofi. 
 
Ég henti inn myndum í ágúst möppuna.  Já, og ekki má gleyma að Björn Ágúst er kominn með tönn nr. 2. Smile
8月21日

Tönnsla

Já, nú er maður sko stór.  Eftir erfiða nótt í fyrradag var ég alveg á því að hætta bara að gefa Bidda litla graut.  Hann hvort sem er svæfi bara ekkert betur.  Þessa nótt hefði hann líklega verið til í að drekka á 2gja tíma fresti, bara ef það hefði verið í boði.  Daginn eftir kom svo ástæðan í ljós.  Já, maður er nefnilega sko komin með fyrstu tönnsluna.  Og maður er bara 4 mánaða gaur.  Sama dag byrjaði guttinn líka í ungbarnasundi og hegðaði sér þar eins og algjör gaur.  Sönglaði og sönglaði, bara til að vera viss um að hann fengi mestu athyglina. Ja, jú, fyrir utan hin gaurinn sem var 7 mánaða og buslaði svo mikið.  Sá vann líka andakapphlaupið og náði öndinni á undan hinum.  Næst ætlar maður sko að vinna!
IMG_2442 IMG_2443 IMG_2446
Ég er annars að byrja í mömmuleikfimi í næstu viku.  Ekki það að maður hafi ekki hreyft sig því maður hefur sko verið duglegur í sumar og hreyft sig á hverjum degi í a.m.k. klst. Annað hvort úti eða í Sporthúsinu.  En nú á sko að hitta aðrar mömmur og börn 3x í viku, júhú.  Aðallega hlökkum við nú bara til að hitta vinkonur okkar þær Ölmu Birnu og Herdísu Laufeyju í leikfiminni, hehe.
8月15日

Eyðsluseggur

Ég hitaði aðeins upp fyrir Portúgalsferðina og straujaði kortið vel og vandlega í gær.  Dagga er nefnilega að vaxa upp úr öllum flíkum svo H&M er málið í Portúgal.  Í gær fór ég á sölukvöld í heildsölunni Rún og verslaði eins og brjálæðingur.  Held ég hafi verið næstum 2 klst. á staðnum.  Og kom út með fullan poka af fötum sem í voru:
Plastsmekkur á litla karlinn,
5 sokkabuxur á Döggu,
3 sokkabuxur á Björn Ágúst,
5 langerma samfellur á Björn Ágúst,
2 stutterma samfellur á Björn Ágúst,
5 nærbuxur og 4 nærboli og Döggu,
2 jogginggallar á Björn Ágúst,
2 pör af sokkum á eiginmanninn,
2 náttkjólar á Döggu og
3 pör af Dóru sokkum fyrir skvísuna.
 
Fyrir þetta borgaði ég 15 þús. krónur svo ég held að þetta sé vel sloppið.  Sumir myndu spyrja hvort ekki hefði verið betra að versla þetta bara úti en málið er að ég held að það þurfi hreinlega að kaupa annað eins úti því það er allt að verða lítið á skvísuna, hún hefur tekið þvílíkan vaxtasprett í sumar.  Hún er nú líka orðin stóra systir.
 
Meira ruglið í gangi í þessari Reykjavík.  Enn einn meirihlutinn að stjórna borginni og með auðvitað nýjum borgastjóra.  Nú eru fjórir borgarstjóra á launum á sama tíma.  Meiri steypan.  Eina sem ég get sagt: Reykvíkingar, kjósið rétt í næstu kosningum!  Já, það er sko gott að búa í Hafnarfirði!
8月12日

Strípalingur

Ég var aldeilis óheppin í morgun.  Og það munaði kannski bara svona 10 sekúndum.  Þannig var nefnilega að ég fór í leikfimi í Sporthúsinu, sem er svo sem ekki frásögu færandi, og skrapp á miðri æfingu inn í kvennaklefa á WC-ið.  Nema svo þegar ég rölti í rólegheitum til baka þá sé ég útundan mér að inni í kvennaklefanum var karl að klæða sig í buxurnar sínar.  Svipurinn á honum var ekkert lítið skrítinn, augun ætluðu út úr honum að sjá kvenmann þarna á ferð, hehe.  En síðan var þetta leiðrétt og hann færði sig yfir í karlaklefann, hoho.  Asssskotinn að hafa ekki verið 10 sekúndum fyrr á ferðinni, þá hefði hann líklegast verið að strípalingast á naríunum. Hot
 
Við erum farin að gefa Birni Ágústi smá graut, þó hann sé ekki 4 mánaða fyrr en á morgun.  Málið er að litli karlinn hefur alltaf verið að færa það framar og framar að nóttunni að vakna til að drekka.  Hann sem svaf alltaf til svona 3-4 að fyrsta sopa var farinn að vakna um 2, jafnvel oft um 00:30.  Næga mjólk hafði hann að drekka á kvöldin svo það var ekki málið að hann gæti ekki fengið meira.  Stundum hefur hann meira að segja þambað í 30 mín áður en hann taldi sig saddan og fór að sofa á milli 21 og 22.  Það dugði samt ekki til.  Svo nú er verið að prófa smá graut.  Svo er að sjá hvort það virki.
 
Annars eru 2 og 1/2 vika í Portúgal...