Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
8月6日 Aftur í vinnu á morgunJæja, þá líður að því að þessum hluta sumarfrísins er að ljúka og vinna og leikskóli aftur á morgun. Reyndar byrjaði Óli aftur að vinna á miðvikudaginn síðasta en það er vegna þess að við skiptum á milli okkar 1 viku, tókum samtals 3,5 vikur í frí núna. Ætlum svo í 2 vikur í september þegar við höldum í sólina.
Þetta sumar er búið að vera sannkallað ferðasumar. Okkur telst til að við höfum verið heima eina helgi síðan 17. júní. Síðan þá höfum við farið í heilar 4 útilegur (já, þetta er satt, jafnvel þó ég sé ekki mikil útilegumanneskja), eitt einni helgi í Ólafsvík og annarri á Þingeyri. Svo mér finnst við bara búin að vera rosa dugleg. Síðan er stefnt á Syðra-Langholt (rétt hjá Flúðum) um næstu helgi til að vera við 1 árs afmæli væntanlegs tengdarsonar, hans Hermanns. Svo þetta er eiginlega ekki alveg búið.
Já, hvert fórum við í útilegu? Þá fyrstu fórum við í Þakgil 23.-24. júní með Lindu og fjölskyldunni á neðri hæðinni. Næstu helgina á eftir vorum við í útilegu fyrir utan sumarbústaðinn hennar Guðnýjar ásamt MH hópnum (sem er staðsettur ekki langt frá Galtalæk), þá þriðju fórum við í Húsafell með drekunum (Alma Birna og Úlla). Nú svo skelltum við okkur aftur í Húsafell um verslunarmannahelgina til að vera við 40 ára afmæli Árna, mágs Óla.
Það er ekki alveg komið á hreint hvert á að fara í september, líklega bara Costa del Sol, held ég bara. En fram að því er að reyna að koma sér aftur í rútínuna góðu og snúa sólarhringnum aftur við. |
|
|