Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
8月21日 ÆfingarJá, þessa dagana erum við að æfa okkur hvernig á að kalla á pabba og mamma kennir...
Pabbi - meija!!!
Sem þýðir auðvitað „pabbi-meira". 8月18日 Svo fínÆ, hvað við erum fín!
Vorum að fá þessa mynd senda frá Gúlpi Hrundskí (Hrund) en Gúlpur THE (Tolli) tók þessa mynd af okkur á Gay Pride. Fengum þetta með þessu skilaboðum:
"Tolli tók svo fína mynd af ykkur í hommsa göngunni :)
Gaman hvað allir voru skrautlegir og litríkir í bænum
Hilsen
H"
Alma Birna búin að eigaJæja, lítið óskabarn kom í heiminn í fyrradag. Það var lítill strákur og er sonur Ölmu Birnu og Guðmundar, vinum mömmu og pabba. Þau eru búin að bíða lengi eftir þessu barni, já, um 5 ár, ef ekki lengur. Löng meðganga það, ekki hægt að segja annað. En hann kom í heiminn kl. 20:30 á miðvikudaginn þann 16. ágúst og var stór og myndarlegur, 4.130 grömm (rúmar 16 merkur) og 54,5 cm. Já, bara næstum eins og Dagga sem var 55 cm og 19 merkur. Enda var búið að spá stóru barni og þess vegna var ákveðið að sprengja belginn þó Alma Birna væri komin "bara" 41 viku. Þetta gekk vel, belgurinn var sprengdur um ca. kl. 9 um morguninn og strákurinn kom í heiminn 20:30. Reyndar var vesen á fylgunni, hún kom ekki og Alma Birna missti blóð. Svo nú bíða allir eftir að hún nái sér og húsið verði opnað fyrir heimsóknir. Annars var mamma svo spennt að hún svindlaði sér inn á Sængurkvennadeild til að sjá pjakkinn. Hér eru myndir af honum að neðan.
Þetta er sko ekki fyrsta óskabarnið í sumar því í júlí fæddist lítil stelpa sem Birna, æskuvinkona mömmu, og Sverrir eiga. Sú var keisarastelpa eins og Dagga. Hún var 14,5 merkur og 51 cm og fékk strax nafnið Elísa Dimmey. Mamma á bara enga mynd af henni... En hún á sína eigin heimasíðu á http://www.barnanet.is/oskabarnid/ og þar er fullt af myndum.
Já, svo nú eru Birnurnar 3 komnar með grislinga, smá breyttar aðstæður á rúmu ári.
Annars er Dagga byrjuð aftur hjá dagmömmunni, pínu erfitt eftir langt frí. Svo eru mamma og pabbi með sundæði í góða veðrinu og Dagga er búin að fara 3x í sund í þessari viku. Voða gaman, sérstaklega þegar við pabbi förum saman í rennibrautina. 8月9日 Allt að komast í sinn vanagangNú er allt að færast í sama form og áður. Foreldrarnir eru báðir byrjaðir að vinna aftur eftir sumarfrí og rútínan að hefjast. Eitthvað klikkaði þó skipulagið hjá foreldrunum því dagmamman er ennþá í fríi og verður í fríi til og með 15. ágúst. Hvort sú ákvörðun gleymdist að tilkynna okkur eða hvort við höfum ruglast svona hrapalega er ekki gott að segja. En þetta bjargast allt saman, Björk frænka er í fríi og amma öðru hverju. Svo Dagga fær að vera heima viku í viðbót.
Annars er Dagga farin að þramma um allt. Allt í einu áttaði sig hún á því að hún gæti labbað langt án aðstoðar. Hún var búin að labba á milli í um mánuð sem og að burra með bílinn sinn og baby born kerruna sína og í raun löngu komin með jafnvægið. En þegar hún loks áttaði sig á þessu þá er búið að þramma um allt hús, æfa sig að beygja fyrir horn, ganga með dót og prófa sig áfram. Og hún er svakalega stolt af sér, hehe.
|
|
|