Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
7月3日 Nýjar myndirLoksins hafði ég það af að koma myndum á síðuna. Náði þó bara apríl mánuði í þetta skiptið svo það er slatti eftir. Það er því von á nýjum myndum á næstunni.
Björn Ágúst er kominn með allar 4 augntennurnar, reyndar fyrir um mánuði síðan svo hann á bara eftir 2gja ára jaxlana í tanntökunni. Og hann er bara 13,5 mánaða... Hann prílar upp um allt og er farinn að hlaupa. Allir kollar heimilisins eru á hvolfi því annars er hann kominn upp á þá. Orðin eru að fara koma, loksins kom fyrsta fyrir um 1-2 vikum. Það var "ta" sem þýðir takk. Hann er auk þess farinn að herma eftir hljóðunum sem maður gerir svo þetta er allt að koma.
Dagga er komin á vinkonu-aldurinn. Vinkona hennar býr hér fyrir aftan og þær fara á milli til að leika saman. Þessu fylgja líka ný vandamál. Til að byrja með ætluðu þær að leika alltaf bara tvær saman, líka á leikskólanum. Málið var rætt við Döggu og það er úr sögunni, nú er leikið við alla.
Þriðjudaginn 19. maí datt Dagga á aðra framtönnina og meðfram henni blæddi. Fingur voru krosslagðir en allt kom fyrir ekki, tönnin reyndist dauð. Mamma hennar er ekki alveg sátt að horfa á nýja brosið með gráum bletti en það verður að venjast. Það er víst ekki hægt að lita barnatennur.
Annars er allt gott að frétta af okkur hjónunum. Við bíðum eftir að komast í sumarfrí, ég byrja 8. júlí en Óli 13. júlí. Lítið er planað enn sem komið er nema ein útilega. |
|
|