Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


7月31日

Bongóblíða

Þvílík bongóblíða síðustu daga!  Ekki átti maður von á að fá svona svakalega gott sumar í fæðingarorlofinu.  Mér skilst að þetta sé svona þegar Alma Birna er í fæðingarorlofi svo ég óska hér með eftir því að hún sé helst bara í fæðingarorlofi á sumrin.  Veit ekki hvernig henni líst á það. Thinking
 
Við höfum eytt deginum úti á hlaði og sólað okkur.  Litli guttinn hefur meira að segja verið klæddur í stuttbuxur og látinn leika sér úti.  Og ég sem hélt að stuttbuxurnar yrðu bara notaðar úti í Portúgal í haust.  Við fengum líka heimsókn í heitapottinn og þar var mikið busla. 
Björn Ágúst heldur áfram að sína alls konar takta.  Hann velti sér aftur í dag af maganum yfir á bakið og þegar hann liggur á bakinu reynir hann ýtrekað að fara á hliðina og heldur sig síðan þar.  Það vantar bara að skella sér fram á bumbuna. 
IMG_2378 IMG_2381 IMG_2388
IMG_2399 IMG_2397 IMG_2407
Hinn árlegi glaðningur var að berast inn um bréfalúguna, bréf frá Skattmann.  Eins og venjulega fæ ég að greiða til baka, núna 6 - 7 þús. á mánuði.  Ég hlakka mikið til í nóvember, þá ganga barnabæturnar upp í greiðsluna og ég fæ 328 kr. greiddar frá Skattmann, dugar svona tæplega fyrir einni pullu, verð líklega að splæsa á mig kókinu.Nerd 
Óli þarf hins vegar ekkert að greiða og fær meira að segja barnabæturnar greiddar.  Æ, greyið, eitthvað verður hann að fá í sárabætur fyrir að vera tekjulægri aðilinni í fyrra, hehe.  En jæja, ég er alveg sátt við þetta, við Óli höfum það bara gott. Smile
 
Eftir rúmar tvær vikur hefst ungbarnasundið.  Ég held barastað að ég láti verða að því núna að skella mér.  Ég var eitthvað treg með þetta þegar Dagga var lítil, bæði þar sem hún var vatnshrædd og öskraði og gargaði í baði, sem og að þá voru margar greinar í Mogganum um að klórgufan gæti valdið asma.  Eflaust eitthvað til í því en það jákvæða er líka að eyða tíma með familíunni og Björn Ágúst styrkist við þetta.
7月26日

Farinn að velta sér?

Þau undur og stórmerki gerðust í morgun að hann Björn Ágúst velti sér af maganum yfir á bakið.  Húsmóðirinn reyndar missti af þessu enda svaf hún sínu blíðasta á meðan Óli fór á fætur með börnunum.  Nú fær maður að kenna á því að nenna ekki á lappir.  Nú er spurningin hvort þetta hafi verið slembilukka hjá stráksa að velta sér eða hvort hann ætli að láta eitthvað verða úr þessu.
 
Gestakomur héldu áfram í vikunni.  Við fengum í heimsókn fyrrum TR-inga sem færðu drengnum gjöf og móðurinni gjafakort fyrir nuddi og aðgangi að Baðstofur WC.  Mikið svakalega líst mér vel á þessa gjöf, hún á sko eftir að koma sér vel.  Myndir voru teknar af gestunum en reyndar gleymdist að taka mynd af Rakel.  Ég smellti þó mynd af syni hennar, honum Daníel Breka:
IMG_2321 IMG_2323 
IMG_2322 IMG_2324
 
Við drifum okkur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn í gær og tókum með okkur múttu og Björk.  Á staðnum hittum við svo Ölmu Birnu og Guðmund með væntanlegu tengdabörnunum mínum.  Þegar við lögðum af stað var skýjað og svolítill vindur og okkur leyst ekki betur á veðrið en svo að við höfðum með okkur regngalla og klæddumst síðerma peysum og síðbuxum.  Síðan hlössuðum við okkur inn í bíl og þegar bílnum var startað sýndi mælirinn 18°C.  Engar perur kviknuðu hjá okkur og okkur datt ekki í hug að fara inn og fara í léttari föt.  Þessi dagur reyndist svo vera heitasti dagur sumarsins í Reykjavík og þvílík blíða í Laugardalnum.  Við vorum fljót að henda okkur í léttari föt þegar heim var komið og fara úr táfýlusokkunum.  Ég skellti inn myndum frá deginum í nýtt albúm.
7月22日

Sumarfrí

Þetta er síðasta vikann hans Óla í sumarfríi og á mánudaginn eftir viku fer hann að vinna.  Við erum aldeilis búin að hitta fólk og margir komið í heimsókn.  Dagga er hæst ánægð með allan gestaganginn, svo ánægð að hún spurði í gær hvaða gestir kæmu í heimsókn í dag.  Henni var svarað að í dag kæmi enginn í heimsókn en síðan leið varla 1 klst. þar til næstu gesti boðuðu komu sína.  Ég er auðvitað hæstánægð líka því þetta er "socialið" mitt að fara í heimsókn eða fá heimsókn í fæðingarorlofinu.  Svo verið velkomin! Open-mouthed
 
Skutlaði annars inn nýjum myndum hér til hliðar.
7月16日

3gja mánaða skoðun

Björn Ágúst fór í 3gja mánaða skoðun í gær og auðvitað fannst hjúkkunni hann langflottastur.  Eða ég alla vegana skyldi það þannig, hehe.  Nýjustu tölur eru núna 6.610 gr, lengdin 62,1 cm og höfuðmálið 41,2 cm.  Hann hefur því þyngst um 565 gr á þremur vikum eða að meðaltali 189 gr á viku, júhú.
 
Annars erum við í sumarfríi og letilífi þessa dagana og ég barastað nenni ekki  að skrifa neitt.  Farin út í sólina! Hot  Æ, já, ég truntaðist loksins til að stofna mig á Facebook, er þar undir mínu fullu nafni. 
7月12日

Komin heim úr fríi

Við komum heim í gær úr Brekkuskógi.  Fengum þar alveg þvílíka bongóblíðu, 18-21°C og sól.  Lágum í leti og höfðum það gott en afrekuðum, jú, líka að fara í Slakka, sund á Selfossi og þennan týpíska hring, Þingvelli, Gullfoss og Geysi.  Ég held barastað að við höfum aldrei fengið svona gott veður í bústaði fyrr.  Ég einmitt óttaðist mest að það yrði rigning allan tímann og þá að þurfaað húka inni.
Pedro (næst yngsti skiptinemabróðir minn) kom til landsins sl. þriðjudag og heimsótti okkur í bústaðinn.  Hann er þessa stundina líklega á heimleið frá Akureyri.  Hann fer svo af landi brott á þriðjudagsmorgun.  Óli er enn í fríi og óráðið hvað við ætlum að brasa meira. 
IMG_2161 IMG_2149 
IMG_2201 IMG_2211 
 
Af því ég er nú búin að vera jákvæð þá verð ég að nöldra svolítið yfir Sporthúsinu.  Ég röfla oft yfir þessum stað en í morgun toppaði þetta allt.  Ég nefnilega dreif mig í leikfimi og tók með mér Björn Ágúst.  Ég mætti á staðinn kl. 10 og lét stelpurnar vita að hann væri nýlega búinn að drekka og myndi líklega ekki vakna aftur fyrr en í hádeginu, milli 12 og 13.  Þær þyrftu því í mesta lagi að stinga upp í hann snuðinu og rugga vagninum úti.  Síðan fór ég að hjóla í 15 mín og í tvö tæki, lít þá inn um gluggann og sé drenginn í fanginu hjá einni barnapíunni.  Þá var kl. 10:25.  Ég rölti til þeirra með spurningarsvip.  "Já, hann bara vaknaði um leið og þú fórst", sögðu þær.  Hmm, ég horfði á Björn Ágúst ranghvolfa augunum í fanginu hjá stelpunni og segi að hann sé örugglega dauðþreyttur, hann þurfi ekki að drekka næst fyrr en í hádeginu.  "Nú", segja þær voðalega hissa.  Ég ákvað síðan að klára tvö tæki og taka hann síðan með mér heim.  Þegar ég kem að sækja hann er guttinn aðeins að ambra og ég legg hann því á gólfið og rugga honum aðeins.  Hann sofnaði auðvitað um leið, karlinn, og ég klæddi hann með fýlusvip.  Toppurinn var þó þegar ég kom út því skvísurnar höfðu auðvitað ekki gengið frá vagninum og allt involsið því rennandi blautt í rigningunni.  Sængin hans og alles!  Ég var komin heim fyrir kl. 11, kom drengnum fyrir í vagninum eftir að hafa þurrkað og reddað þurru teppi og þar sefur hann ennþá þegar þetta er skrifað.  Kl. er núna 12:30. Baring teeth
Ég get haldið áfram að nöldra yfir þessum stað, t.d. óhreinindum, tækjum sem eru iðulega biluð, Wellness tölvunni sem er alltaf úti, barnapíum að læra en ekki að passa o.s.frv.  Það eina sem heldur mér þarna áfram er opnunartíminn, en þarna er t.d. opið fram til kvölds á sunnudögum, sem og að þarna er barnapössun (sem dugar þokkalega fyrir Döggu).  Ég væri líklega löngu búin að færa mig annað ef annar staður væri með sambærilegan opnunartíma, sem og barnapössun, en það einmitt vantar hér í nágrenninu. 
Jæja, en nú er ég farin að gera eitthvað jákvætt og skemmtilegt.