Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


7月19日

Dísess

Sú litla apar allt eftir okkur þessa dagana.  Hef komist að því að ég á það til að segja "dísess" þegar eitthvað er í gangi.  Nú er þetta sagt í tíma og ótíma.
 
Annars erum við laus við bleyjuna.  Henni var kippt af bossanum síðasta fimmtudag, um leið og sumarfríið byrjaði, og þetta hefur gengið svakalega vel.  Tók svona 3-4 daga með nokkrum slysum en síðan þá er hún farin að láta vita.  Hún hefur þó bleyju ennþá þegar lúllað er á daginn og á nóttunni.
 
Já, síðan er Dagga voða lítið dekruð, bara komin rennibraut í garðinn og samsett tjald í þremur einingum; lítið tjald, indiánatjald og rör á milli.
Skellti inn myndum til viðbótar við júní-myndirnar.