Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


7月25日

Komin heim úr bústað

Jæja, þá erum við komin heim úr bústaðnum í Grímsnesi.  Dvölin byrjaði nú ekki vel, með roki og rigningu en síðan birti til á sunnudagskvöldið og restin af dvölinni var fín.  Sérstaklega síðustu tveir dagarnir með glampandi sól og hita. Ýmsir komu í heimsókn, drekar, Leifur og Steiney, Ómar og Hildur og Linda og Sólbjört.  Dagga æfði sig að labba og fór í heita pottinn og fannst voða gaman.  Í lok ferðarinnar nældum við mægðurnar okkur þó líklega í kvef því þegar heim var komið svar sú litla með nefrennsli og reyndist síðan með hita á föstudagskvöldið.  Mamman var líka þurr í hálsinum og spurning hver smitaði okkur af kvebbi.  Annars erum við orðnar fínar núna, þetta stóð stutt yfir og Dagga orðin hitalaus.  Nú er stefnt á húsdýragarðinn á næstu dögum eða labbitúr í bænum. 
 
Já, æ, mömmu og pabba var boðið í brúðkaup með tveggja vikna fyrirvara.  Tímasetningin er laugardagurinn 5. ágúst um sjálfa Verslunarmannahelgina og meira að segja í Stykkishólmi.  Örugglega gaman en nú er að finna barnapíu og það virðist ekki vera létt verk enda allir úr bænum.  Er einhver barnapía þarna úti?
 
Annars eru myndir úr sumó hér til hliðar.
7月13日

Þórsmörk og farin að ganga

Aldeilis margt búið að gerast síðan mæðgurnar tvær byrjuðu í sumarfríi.  Dagga byrjaði á því að testa mömmu sína og athuga hvort hún væri ekki bara til í að halda á henni allan daginn.  Hún prófaði að væla næstum heilan dag og hanga í buxnafaldinum en allt kom fyrir ekki, mamma hennar er löt og nennir ekki að halda á henni allan daginn.
 
Síðastliðinn föstudag kíktum við í heimsókn til Guggu og Óðins og okkur tókst að fá Söru líka í heimsókn með Ágúst Carl.  Gaman að sjá hvað börnin stækka, öll á sama árinu.  Ágúst Carl er deginum eldri og fór að labba fyrir um mánuði síðan.  Kannski varð Dagga abbó því hún byrjaði, reyndar deginum áður, að sleppa sér og taka nokkur skref til mömmu sinnar.  Þetta hefur svo ágerst og í gær var svaka stuð enda fékk hún mikið hrós og klapp fyrir það að ganga.  Deginum lauk með því að labba í sófanum, rosa gaman, mamma hennar stóð með skelfingarsvip við hliðina á henni, tilbúin að grípa.  Svo nú er þetta allt að koma!  Mamma setti inn myndir úr heimsókninni hér til hliðar.
 
Annars fórum við í fyrstu útileguna um helgina, í Þórsmörk.  Komum á laugardegi, frekar skýjað og ekkert voðalega hlýtt en það birti með kvöldinu og hlýnaði um leið.  Dagga var ekki á því að fara að sofa í birtunni og í fyrsta skiptið þurftu mamma og pabbi að svæfa stelpuna sína.  Um nóttina steinsvaf mín, jafnvel þó hitinn færi niður fyrir frostmark.  Við vöknuðum svo í sóli og sumaryl og komum til baka með brennt nef og kynnar.  Rosa gaman!
 
Já, reyndar erum við á leið í bústað um helgina, Hraunborgir 3 í Grímsnesi.  Fólk er velkomið en gott að tilkynna komuna til að athuga pláss. ;-)