Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
6月30日 Á leið í sumarfríDagga er komin í sumarfrí frá leikskólanum. Fyrsti dagurinn var í dag og auðvitað var hún um leið dregin í næstu pössun. Við skelltum okkur nefnilega í leikfimi í morgun og þar fengu börnin tvö að vera í pössun á meðan. Björn Ágúst tók reyndar lítið eftir því þar sem hann svaf sínu værasta í vagninum úti. Við stefnum svo á Húsdýragarðinn í vikunni og göngutúra um hverfið.
Á föstudaginn verður haldið í sumarbústað í Brekkuskógi í viku. Ætlum að slappa af þar og hafa það gott, höfum meira að segja pantað gott veður. Reyndar eigum við líka von á heimsókn frá Portúgal, Pedro, næstyngsti bróðir minn mun koma seint þann 8. júlí. Þannig að það verður fjör næstu daga.
Það er búið að skíra verðandi tengdadóttur, dóttur Ölmu Birnu og Guðmundar. Hún fékk nafnið Herdís Laufey, í höfuðið á Dísu ömmu. Hér að neðan er mynd frá fyrstu pottaferðinni hans Björns Ágústar sem og úr skírninni.
6月24日 Stækka, stækka, stækka...Björn Ágúst var vigtaður í dag og er núna 6.045 g og með 40,3 cm höfuðmál. Hann hefur því þyngst um 590 g á 4 vikum, eða rétt tæp 150 g á viku. Held að það sé bara fínt miðað við ástandið á heimilinu sl. vikur; hlaupabólu, flensu og stóran pensilínskammt. Næsta skoðun er bara eftir 3 vikur, 3gja mánaða skoðunin. Ó, mæ, hvað þetta líður hratt! 6月20日 Sól og sumarÞvílíkt veður. Það er sko ekki hægt að kvarta undan veðrinu í þessu fæðingarorlofi. Ég hef nánast labbað á hverjum degi að sækja Döggu síðan Óli fór að vinna. Það er líklega talið á fingrum annarrar handar þau skipti sem ég hef orðið að bruna á bílnum vegna veðurs. Nú er ég orðin sólbrunnin á nefinu og komin með þetta venjulega sólarexem á bringuna. Má reyndar varla sýna bringunni sól...
Dreif mig loksins í kjallarskoðun (eftiráskoðun) í gær sem er svo sem ekki frásögu færandi. Það er hins vegar skondið það sem læknirinn lét út úr sér. Eða hvernig túlkar maður það þegar kvensjúkdómalæknir segir manni að maður líti vel út? Hehe
Það eru ennþá menn að vinna í þakinu og liggja því á gluggunum. Þetta eru Pólverjar, undir stjórn íslensks smiðs, og eru hörkuduglegir. Ekki hægt að kvarta undan dugnaðarheitum. Ég er samt ekki frá því að einn þeirra hafi verið að gægjast niður um hálsmálið hjá mér í morgun þegar ég beygði mig yfir Björn Ágúst, hehe.
Æ, ég held mig við það fyrra, svo gott fyrir egóið þegar maður er með bumbu eftir meðgöngu.
Truntaði mér loksins í gær til að taka myndir af piltinum í skírnarkjólnum. Ég er ekki frá því að þessi systkini séu lík þó greinilegt sé hver sé strákurinn. Myndin af Döggu var tekin þegar hún var 2 mán og 10 daga en af Birni Ágústi þegar hann var 2 mán og 6 daga.
6月18日 ÓlafsvíkurferðFerðalagið til Ólafsvíkur gekk bara vel. Fjölskyldan hafði gott af þessari tilbreytingum og ég er ekki frá því að við höfum slakað meira á. Því auðvitað hefur maður það gott hjá Leif og Steinu. Við vorum dekruð í bak og fyrir með alls kyns krásum að venju. Björn Ágúst var hins vegar svolítið óþekkur við Steinu, grét alltaf þegar hún tók hann upp. Ég lét 4ra barna móðurina vita að það væri líklega vegna þess að hún kynni ekkert á börn.
Ég er búin að komast að því að best er að vera ekkert á þvælingi inn í höfuðborgina á 17. júní. Hátíðarhöldin í Hafnarfirði eru bara hreinlega miklu skemmtilegri og ekki skemmir að þau eru nánast í bakgarðinum hjá manni. Við eyddum seinnipartinum í gær á Víðistaðatúni þar sem Dagga gat þvælst á milli hoppukastala og alls kyns leiktækja og NB! frítt! Svo fundum við okkur stað í litlum hraunpolli, breiddum út teppið og slöppuðum af. Þetta var sem sagt bara fín dagur.
Friður er að verða úti á heimilinu, eða þannig sko. Dagga á eftir 3 daga á hælinu (leikskólanum) og þá fer hún í sumarfrí. Við ætlum að leika okkur úti og fara kannski í húsdýragarðinn, ef veður leyfir. Óli fer svo í frí 2 vikum síðar, 4. júlí en þá er stefnt austur í Brekkuskóg í sumarbústað (að venju læt ég fylgja með að sjálfsögðu er húsið ekki tómt og þess utan þjófavarnakerfið á). Reyndar fáum við meira að segja heimsókn frá Portúgal. Hann Pedro bróðir minn ætlar nefnilega að heimsækja okkur 8. - 15. júlí, júhú. Svona til upplýsinga þá er Pedro næsti yngsti bróðirinn á skiptinemaheimilinu, sjá 4. í röð 5 barna.
Skutlaði inn fleiri myndum, komast aftast í röð mynda frá júní-mánuði. Hér eru annars tvær frá Ólafsvík og ein frá 17. júní.
6月13日 Heilsufarsbók ÓlaÉg rakst á gullmola núna þegar ég tók til í skúffum á heimilinu. Inn á milli ýmiskonar drasl, t.d. gamals tölvuspils frá Óla, eldgamalli myndavél og óátekinni filmu, fann ég nefnilega heilsufarsbók Óla frá því hann var lítill. Bókin sýnir svo sannarlega hvað tímarnir hafa breyst á 40 árum og áherslurnar um leið. Mér fannst þetta algjört æði:
18.03.1968 - Óli fæðist 3250 gr (13 merkur) og 50 cm.
24.03.1968 - 3150 gr. Jæja, hann er nú bara 100 gr undir fæðingarþyngd eftir 6 daga, ansi gott. Þarna er síðan búið að skrifa að hann eigi að fá brjóst, pela og lýsi. Sem sagt, byrjað að troða lýsi ofan í 6 daga gamalt barn.
01.04.2008 - 3700 gr. Enn á brjósti, pela og lýsi. Vá, þyngst um 550 gr á einni viku!
19.04.2008 - 4200 gr. Þarna er Óli 1 mánaða og við þessa skráningu stendur að hann eigi að fá pela og barnamjöl. Úff...
17.05.2008 - 4950 gr. Þarna á tveggja mánaða snáði ekki að fá neitt minna en tvær máltíðir af mat á dag!
Þessi bók er algjör gullmoli, hún verður varðveitt á góðum stað. Annars erum við á leið í ferðalag. Við ætlum nefnilega að skella okkur til Ólafsvíkur. Við fréttum að Leifur og Steiney vildu ólm fá heimsókn, þó aðallega vildu þau fá Dagbjörgu og Björn Ágúst. Jú, brjóstin mín máttu fylgja með en annað var ekki eins spennandi.
Og fyrir ykkur bófana: Það er fullt hús ennþá, mamma og Björk eru heima og þjófavarnarkerfið á! Börn og bururÞað er búið að vera þvílíkt fjör á heimilinu síðustu daga, allt þó mikið snúist um krílin. En þvílíkt félagslíf um leið fyrir húsmóðurina.
Lilja og Sara komu í um 10 daga dvöl frá Svíþjóð til Íslands. Þær að vísu gista ekki hjá mér í þetta skiptið en alltaf gaman að hitta þær. Síðan þá er maður búinn að afreka ýmislegt:
Síðasta föstudag var sumardagur í leikskólanum hennar Döggu og mikið fjör þar. Þrír hoppukastalar, Skoppa og Skrítla og alles. Dagga var máluð sem kisa og naut sín til hins ýtrasta.
Á laugardagsmorgun komumst við loksins í heimsókn til Ölmu Birnu að skoða tilvonandi tengdadóttur. Hún reyndar svaf nánast allan tímann, sem og Björn Ágúst en við vinkonurnar vorum að venju óstöðvandi í blaðrinu.
Á sunnudagsmorgun kom svo Ásta vinkona í morgunkaffi. Dagga hafði rosa gaman að þeirri heimsókn enda fékk hún í heimsókn leikfélaga, hana Sigurveigu.
Í mánudag var haldið í til Guggu vinkonu í heimsókn. Við vorum duglegar og tókum góðan hring austurbæ Kópavogs, frá Álfhólsheiði, niður í Hamraborg og til baka um Kópavogsdalinn allan.
Í þriðjudag kom Inga vinkona í heimsókn með börnin sín tvö, þar á meðal hana Hildi Kristínu sem er 3 mánuðum eldri en fædd frekar lítil prinsessa. Þau tvö eru í dag mjög svipuð í stærð. Við tókum svo klukkutíma göngutúr og því til sönnunar var Inga með flottar græjur sem geyma allt um göngutúrinn, lengd, tíma, hjartslátt og fleira:
Verið örugglega í metric (blár takki efst í hægra horni) og muna svo að ýta á satellite til að sjá almennilega mynd af þessu.
Gott er að Sem sagt mikið félagslíf, algjört æði fyrir kerlingu sem er heima við.
Nóg um börn... Truntaðist í fyrsta skiptið í 8 vikur í leikfimi í síðustu viku. Tók því frekar rólega en var samt með skrautlegar harðsperrur daginn eftir. Þetta var samt satt best að segja gott að komast aftur í leikfimi.
Skutlaði inn nokkrum myndum, líka hér til hliðar.
6月5日 Hamarshögg og lyfjaverðÞað er verið að taka þakið í gegn hjá okkur. Hér er varla líft fyrir látum; hamarshöggum og alls konar hávaða. Byrjaði á þriðjudaginn þegar hingað komu menn til að taka þakið í gegn. Þakkannturinn í sv-átt var orðinn fúinn og ónýtur og þakið hefur reyndar lekið í lengri tíma. Svo það var nauðsynlegt að kíkja undir járnið og athuga pappann og alles þarna undir. Fengum tilboð í maí og þeir gátu bara byrjað strax. Jahá, greinilega eitthvað farið að fækka verkefnum! Svo nú er búið að rífa járnið af og setja nýtt og verið að vinna í þakkanntinum. Og ég er með menn á öllum gluggum, veit ekki alveg hvar ég á að gefa Birni Ágústi eða hvort mér sé óhætt að pissa án þess að fá ókunnug andlit á gluggann, hehe.
Ég dreif mig til læknis í morgun því ég var orðin hundleið á þessu kvefi og hæsi sem ég er búin að vera með nú í akkúrat 4 vikur í dag. Fór út með lyfseðil fyrir penisilíni því ég er komin víst með sýkingu í kynbeins- og ennisholur. Á að staupa mig næstu tvær vikur af penisilíni og taka nefúða í þrjár vikur, takk fyrir. Svo nú má búast við barnsgráti, magapínu og drullllllu hjá þeim litla, æææ. Ég þrammaði svo beint í apótekið að taka út lyfseðilinn. Og hvað haldið þið að 40 taflna skammtur af penisílini hafi kostað? 7.530 kr. takk fyrir. Er ekki í lagi??? Ég hrökk í kút og bað hana um að segja mér aftur verðið. Þusaði svo að venju yfir verðinu og lét vita af því að maður röltir inn í apótek á Spáni og kaupir 20 taflna skammt fyrir 3 evrur, lyfseðilslaust til viðbótar.
Annars fórum við í hesthúsið til Ómars bróður í gær að skoða hestana áður en þeir fara í sveitina. Döggu fannst þetta æði og ætlar að fá að fara á hestbak í haust. Eða eins og hún segir; "Ekki á morgun, ekki hin, ekki hin... ekki hin, á sunnudaginn, þá ætla ég á hestbak!".
6月2日 Björn ÁgústStráksi var skírður í gær. Hann fékk nafnið Björn Ágúst. Það var enginn sem gat getið upp á nafninu svo við spöruðum okkur pullu og kók fyrir rétt gisk.
Björn er að sjálfsögðu í höfuðið á pabba mínum en Ágúst má segja að sé í höfuðið á afa Óla (hann var reyndar seinni maður Huldu ömmu Óla en Óli þekkti hann alltaf sem Gústa afa). Okkur fannst þetta hljóma vel saman og það spillti ekki að geta tengd Ágústar nafnið við einhvern í fjölskyldunni. Þetta var reyndar talsverður höfuðverkur að finna eitthvað millinafn sem hljómaði vel. Mamma gamla var með mikinn þrýsting að skíra í höfðuð á hinum afanum, Vigni, en okkur fannst nöfnin saman tannbrjótur. Hún þagnaði svo þegar ég hótaði því að skíra bara út í loftið og ekki í höfuðið á pabba, híhí.
Athöfnin gekk vel, að sjálfsögðu var það Hjörtur Magni sem skírði. Það var að vísu eitthvað lítið af textum fyrir skírnarsálminn og Ó,Jesú, bróðir besti. Söngurinn var því eitthvað aðeins stamaður áfram en það var bara fyndið þegar allur hópurinn söng eiginlega "jaríjaríjarí" þegar enginn kunni textann. Skírnarvottar voru Linda vinkona og Björk systir en Leifur bróðir fékk það verkefni að lesa tvær ritningar. Já, og Jóhanna Ósk spilaði undir á orgelið Ó, Jesú bróðir besti. Reyndar var bara klappað í lokin, hún hefur ekki tekið í píanó/orgel í nokkur ár, hehe.
Dagga er loksins búin að ná sér, nú er ég ein heima með Björn Ágúst, næstum í fyrsta skiptið síðan Óli fór að vinna. Hvað á ég að gera af mér? Hanga á netinu...
Hér eru myndir úr skírninni til hliðar og að neðan.
|
|
|