Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
6月20日 Nýjar myndirÉg veit að einhverjir bíða eftir myndum af nýju myndavélinni. Skellt inn tveimur nýjum myndaalmbúmum; frá afmæli Döggu og úr hinu og þessu. 6月19日 Portúgalar í heimsóknPortúgalarnir komu á miðvikudaginn 13. júní. Síðan þá hefur Dagga verið frekar hissa á svipinn, horfir á mömmu sína bulla nánast allan daginn. Patrícia er löngu orðin vinkona hennar en Alexandre er ekki alveg kominn í sátt. Líklega þar sem hann er frekar dökkur yfirlitum. Annars erum við búin að bralla ýmislegt, fórum Gullfoss, Geysi og Þingvelli á laugardaginn. Tók barastað allan daginn. Í gær var smá hasar því Patrícia fékk einhverja samdrætti, komin 16,5 vikur á leið. En það fór allt saman vel. Svo í sárabætur eftir stressaðan dag fengum við að koma í heimsókn í hesthúsið hans Ómars, rúntuðum svo um bæinn og keyptum ís að íslenskum sið í góða veðrinu.
Um helgina er stefnt á útilegu. Planið var að við Linda ætluðum að plata alla familíuna með í útilegu. Veit ekki hvort þetta endi með því að við tvær förum einar með maka og börn. Sjáum til. Alla vegana er spáin bara fín fyrir helgina.
Hmm, já, Óli kom með blóm handa mér í gær. Hann segir að Dagga hafi valið þau og viljað kaupa handa mömmu sinni. Við Alexandre sagði hann að hann væri að vinna sér inn stig. Þriðja skýringin gæti verið að hann hafi verið eitthvað óþekkur. Eða er þetta svona upp úr þurru? Ég fæ nefnilega aldrei blóm... Hmm, hvað haldið þið?.. 6月10日 Komið sumarWell, well, well, svakalega er maður latur að skella inn einhverjum fréttum. En alla vegana, allt gott hérna megin. Rosa fínt í Búdapest og höfðum það svaka gott í frábæru veðri.
Hér var 2 ára afmæli í miklu fjöri þann 5. maí, já, ég veit hún á afmæli þann 4. Það bara passaði fínt að halda upp á afmælið á laugardegi. Mikið fjör að opna pakka og leika með krökkum. Mánudaginn 7. maí byrjaði svo leikskólaaðlögun sem gekk vonum framar. Bara ekkert mál! Hún er á Arnarhrauni á deild sem heitir Klettur og líkar voða vel.
Hér eru gestir á neðri hæðinni. Lilja, Björn og Sara gista í íbúðinni hennar mömmu á meðan mamma og Björk spóka sig í sólinni í Costa del Sol. Gaman að hafa þau í heimsókn. Okkur var meira að segja boðið í mat af neðri hæðinni í vikunni, híhí. Annars koma kellurnar heim á miðvikudaginn og þá fáum við líka Portúgala í heimsókn, hana Patríciu vinkonu.
Annars fjárfestum við í nýrri myndavél fyrir stuttu. Sú gamla datt í gólfið í barnaafmælinu þann 5.5. og fór ekki í gang aftur. Svo mér til mikillar ánægju gat ég keypt nýrri vél sem er ekki svona and$%& lengi að taka myndir eins og sú gamla. Sú nýja er með flottum fítus, getur tekið svart-hvíta mynd með einum lit. Það er vona á nýjum myndum von bráðar á síðunni. Eigum bara eftir að koma inn nýja forritinu.
Svo styttist í sumarfrí og meira segja stefnum við á nokkrar útilegur. Það skyldi þó aldrei vera að hægt sé að koma mér í tjald... Þeir sem þekkja frúnna á heimilinu vel vita hvað henni finnst gaman í tjaldútilegu!
Skellti inn myndum frá Búdapest til hliðar.
|
|
|