Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
6月25日 Í fínum kjólÓmar frændi kom frá Bandaríkjunum í maí og keypti handa mér kjól. Ég er voða fín í honum og ég er búin að nota hann í tveimur veislum. Fyrst í fermingarveislu á laugardaginn og í síðan í skírnarveislu í dag.
Annars er það að frétta að ég er aðeins að lagast að enn einu kvefinu. Það lekur samt ennþá úr nefinu þó ég sé búin að taka inn penisilin síðan á þriðjjudaginn. En vonandi lagast þetta þegar mamma fer í sumarfrí. Hún á eftir að vinna alla þessa viku og svo verður hún í sumarfrí í 5 vikur. Og svo kannski aftur meira í september.
En jæja, mamma setti inn myndir hér til hliðar. Til að skoða þær almennilega í stórri stærð þá þarf að ýta á skrítna hnappinn lengst til hægri og velja "full view". Hún setti inn 3 ný myndaalbúm
6月23日 EyrnabólgubarnEyrnabólgubarn. Við störðum á lækninn. Litla Dagga okkar, sem sefur allar nætur og er alltaf svo þæg..! Hvernig getur það verið að hún stefni í að fá þessa skilgreiningu? Þessar fréttir fengum við þegar við drifum okkur til háls-, nef- og eyrnalæknis á þriðjudaginn síðasta. Enn var farið að kurra í Döggu og hor farið að leka. Svo fórum við yfir sjúkrasöguna;
kvef 12. apríl, líklega aftur 2 vikum síðar.
18. maí - kvefið stóð enn yfir þegar við fórum til barnalæknis. Þá var vatn í eyrunum, henni skellt á penisilinið Amoxiclav þar sem við vorum að fara í flug viku síðar.
23. maí - Skammturinn kláraður, aftur komin með kvef viku síðar.
6. júní - Enn ein ferðin, þá á læknavaktina, þá komin með eyrnabólgu og sýkingu í augun. Nýr skammtur af penisilini, Amoxilin í 5 daga. Á 4 degi kurraði enn í henni, tókum þá ákvörðun að hafa hana í 7 daga.
13. júní - síðasti skammturinn tekinn inn.
14. júní - aftur komin með kvef.
20. júní - tími hjá háls-, nef- og eyrnalækni, komin með eyrnabólgu.
Þrátt fyrir allt þetta sefur hún allar nætur og er góð. Bjargar víst hvað hún er skapgóð. Skv. skilgreiningu telst hún eyrnabólgubarn þegar hún hefur fengið eyrnabólgu 3-4 sinnum á 3-4 mánuðum. Dagga hefur fengið eyrnabólgu 3 sinnum á 2 mánuðum. Svo við þurfum að bíða. Hún á tíma hjá sama lækni 10. júlí og þá kemur í ljós hvort hún fái rör. Nú krossleggjum við fingur og vonum að sumarfríið og sólin hjálpi til. Annars getum við foreldrarnir lítið kvartað... 6月19日 Farin að standa upp úti á miðju gólfiÞað er frá því að segja að fyrir rúmri viku (8. júní) tók sú litla upp á því að standa upp úti á miðju gólfi og æfa jafnvægið sitt. Hún er svaka stolt af þessum afrekum og æfir þetta tímunum saman. Sérstaklega gaman þegar mamma og pabbi fagna og klappa saman lófunum. Maður reynir það líka en dettur þá á rassinn.
Pabbi situr með manni á leikteppinu og hann er notaður sem stuðningur. Já, fyrst, ein hönd á pabbalæri, svo hin, upp með rassinn, beina fætur, spyrna með höndunum, já og svo allt í einu stendur maður bara einn, vá, rosa stoltur. Síðan núna er maður farin að geta dillað sér líka svo mamma og pabbi bíða óþreyjufull eftir fyrsta skrefinu.
Amma á neðri hæðinni er alltaf að segja mér að drífa mig að fara að labba, flest hennar börn fóru að labba um 9-10 mánaða. Svo henni finnst ég eitthvað sein. Mamma segir henni að slappa af enda er ég klár í ýmsu öðru, dugleg með allar fínhreyfingar og farin að babla heil ósköp. Amma segir samt að hún sé farin að verða kyndarleg á svipin þegar fólk spyr hvort ég sé ekki farin að labba. Mér er alveg sama, ég tek minn tíma í þetta og læt mömmu og pabba æfa mig mikið á hverjum degi.
Nýjasta orðið um daginn var "öja" og pottað í augað á manni. Já, síðan var næst pottað í nefið og sama orð aftur endurtekið. Svo er maður farin að benda á matinn sem maður vill og segja "hanna", svona nokkurn veginn "þarna" og svo er blaðrað í framhaldinu. Líklega verið að skipa mömmu og pabba að drífa sig að setja þetta á diskinn. Enn er hrísgrjón í uppáhaldi, svo mikið að mamma og pabbi fela þau fyrir mér svo ég borði annað á diskinum fyrst.
Bráðum fer mamma í sumarfrí og þá verður sko gaman. Nansý dagmamma er samt fín en hún "lætur mann" detta, eða svoleiðis svo maður geti kennt einhverjum um. Skemmtilegastir eru samt allir þrír kettlingarnir hjá henni "Nanný". Pannt fá þá alla! Þeir eru sko knúsaðir og kysstir í bak og fyrir. Askur er samt farinn að leyfa manni að kyssa sig svo þetta er allt að koma. 6月1日 Nýjar myndirJæja, nú er svo margt búið að gerast undanfarið að ég sá mér ekki annað fært en að koma inn myndum. Ég skulda að setja heilmikið að myndum inn og hér koma þér.
Ef einhver áttar sig ekki á því hvernig á að skoða myndirnar þá eru þær hér hægra megin á síðunni. Þar sést skrifað "Photo albums". Þar er hægt að smella á ör niður og öll albúmin koma þá í ljós. Meðal mynda sem ég setti inn eru myndir af Óðinn hennar Guggu vinkonu, Ingu Margréti hennar Heiðu vinkonu, fyrstu afmælisveislunni og Amsterdamferð.
Góða skemmtun.
|
|
|