Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


5月13日

Tónleikar 13. maí í Fella- og Hólakirkju kl. 20

Já, sé ég þarf aldeilis að skila af mér fréttunum.  Alveg heill mánuður frá síðustu færslu, greinilega ekki mjög virk í blogginu þessa dagana.
 
Björn Ágúst fór að ganga fyrir afmælið sitt, 1 árs og 4 daga.  Hann hefur líka fengið eyrnabólgu í fyrsta skiptið og tilheyrandi pensilin kúr og að þremur dögum liðnum aftur í eyrun.  Vonandi dugar þessi skammtur.  Annars skilst mér að maður eigi að drífa grislingana í sund. 
Fyrsta augntönnin kom í ljós sl. sunnudag og augntönn nr. 2 braust í gegn í gær.  Hann er sem sagt kominn með 14 tennur og ekki orðinn 13 mánaða.  Hann talar og talar en maður skilur ekki orðaskil, þó hann reyni að herma eftir okkur.  Held hann verði eins og frændi sinn hann Arent sem talaði frönsku til svona 3 ára.  Eða við höldum alla vegana að það hafi verið tungumálið.
 
Dagga hætti á 4 ára afmælinu sínu að nota snuð.  Þau voru reyndar bara notuð á nóttunni og fyrir vikið var þetta bara ekkert mál.  Við mæðgurnar gerðum okkur svo ferð í Húsdýragarðinn á laugardaginn var til að gefa ungviðinu snuðin.  Með snuðinu fylgdi líka bréf til kálfanna, allt vel undirbúið. 
Við mæðgurnar erum svo á leið til Svíþjóðar í næstu viku.  Í kreppunni var pöntuð ferð fyrir flugpunkta til Stokkhólms 21. maí og þaðan verður haldið með lest til Norrköping til Lilju frænku.  Heimferð er svo ekki fyrr en þriðjudaginn 26. maí.  Óli og Björn Ágúst ætla að kósa sig heima á meðan.
 
Þar með eru þessar fréttir skrásettar fyrir "log-ið", hana nú.
 
Kórinn minn heldur tónleika á morgun, miðvikudag kl. 20 í Fella- og Hólakirkju.  Þar verður meðal annars frumflutt verkið Missa Lumen, með strengjasveit og einsöngvurum auk þess sem við verðum frekar trúarleg þetta árið með tvær Ave Maríur og fleira í þeim dúr.  Held þetta verði frábærir tónleikar.  Þessa stundina er ég hins vegar skælandi yfir sviknum hugsanlegum, mögulegum, kannski 2 sekúndna frægð eftir 10 fréttir.  Eins og ég brosti og brosti framan í myndavélina á kóræfingunni í gærkvöldi.  Þetta hefði líka orðið mér ofviða, hefði ekki höndlað svona frægð.  Var komin með stjörnustæla og allt, tilbúin með pennann á lofti fyrir allar eiginhandaáritanirnar.  Ég skil ekkert í því að Jóhanna hafi verið tekin framyfir okkur, við syngjum sko alveg jafnvel og við stelpurnar erum alveg jafn sætar.  Held að málið sé að við stelpurnar vorum ekki í bláum kjól með tjulli...