Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
5月31日 Skírn á sunnudagBirna vinkona spurði mig hvort hún fái verðlaun fyrir rétta ágiskun á nafn stráksa. Já, það eru auðvitað verðlaun í boði; pulsa og kók að eigin vali frá Bæjarins bestu. Óli segir samt að pullan verði að vera með sinnepi. Komu ágætis hugmyndir frá Birnu, spurning hvort við skiptum um skoðun. Eða nei, of seint því við erum búin að gefa prestinum upp nafnið.
Annars er 5 daga veikindatörn að ljúka (7-9-13). Flensan lagði Döggu í rúmið með hita í 4 daga en svo bætist við einn hitalaus dagur. Við mæðgurnar hlökkum mikið til að komast út, vorum orðnar hundleiðar á hvor annarri, hanga inni í svona góðu veðri. Sem betur fer leysti Óli mig af tvo seinniparta og hleypti mér út úr fjósinu. Ég skokkaði út eins og beljurnar og sást ekki heima í dágóðan tíma. Vikan sem átti að fara í skírnarundirbúning endaði í inniveru og dagurinn í dag var notaður í þeyting um allan bæ til að redda því fyrir veisluna sem átti að vinnast yfir alla vikuna.
Annars á Hafnarfjörður afmæli og það er partý hér á Víðistaðatúni fyrir utan gluggann hjá okkur. Var að spá í að flytja skírnina til, allir eiga að mæta kl. 15 niður í miðbæ Hafnarfjarðar á sunnudaginn við kökuna. Drífa sig svo að næla sér í sneið. Síðan ef fólk vill kaffi með þá er Súffistinn þarna rétt hjá. Held við gætum sloppið billega með þessa veislu, hehe. Önnur hugmynd sem kom upp í dag, þegar leitað var að dúki og servéttum fyrir veisluna, var að hafa sjóræningjaþema. Sáum þessa líka "flottu" diska og dúka með einhverri þeirri ljótustu hauskúpu sem ég hef séð, hreinlega eins og uppþornaður haus. Er einhver sem kaupir svona fyrir afmæli barns síns? 5月27日 6 vikna skoðunJæja, við komum heim í morgun úr 6 vikna skoðuninni. Stráksi er orðinn 5.455 g og 57,5 cm. Það stenst líklega það sem mig hefur grunað og það er að ekki var teygt nægilega vel á þeim litla þegar hann var mældur eftir fæðinguna. Alla vegana finnst mér heldur mikið ef hann hefur lengst um 6,5 cm á 6 vikum. Dagga var á þessum tíma 58,5 cm en hún fæddist 55 cm.
Dagga er enn lasin með tæpar 39°C. Hún afrekaði það reyndar í morgun að sofa til kl. 11. Ég var farin að stara á klukkuna og bíða eftir því að annað hvort systkinanna myndi vakna. Það varð svo úr að þau vöknuðu bæði á sama tíma, hágrátandi, og maður varð að reyna að stökkva á báða staði í einu, hehe. 5月26日 Meiri veikindiJæja, þetta ætlar ekki alveg að taka enda á þessu heimili. Nú er sem sagt Dagga aftur lögst í bælið með tæpar 39°C. Ætli hún sé ekki komin með flensuna. Sem sagt, framundan eru líklega 3-5 dagar inni við. Ég held að ég verði orðin gráhærð þegar ég svo sjálf loksins kemst út. Var satt best að segja farin að hlakka til að komast eitthvað út þessa vikuna, m.a. í göngutúr með vinkonum sem líka eru í fæðingarorlofi. Það verður víst að bíða enn eina vikuna.
Þessi vika á eftir að fara í skírnarundirbúning, eftir því sem tími gefst til. Óli er búinn að finna seinna nafnið og það verður leyndó fram að skírn. Þeir sem vilja mega geta en ég get gefið eitt hint, það er ekki Björn Vignir. 5月20日 KjúklingarÚff, meira ástandið á heimilinu. Dagga kom heim af leikskólanum á föstudaginn, útsteypt í bólum. Jamm, hlaupabóla, júhú. Gott hjá henni að taka það einmitt út þegar maður er með 5 vikna barn á heimilinu. Maður verður víst bara að vona að hann fái ekki líka hlaupabólu því mér skilst að svona kríli geti þá fengið aftur hlaupabólu síðar. Á laugardaginn lagðist ég svo í rúmið með hækkandi hita. Nældi mér í flensu og er búin að vera drulluslöpp með 39-40°C í tvo daga. Núna er ég bara nokkuð góð, "bara" með 38°C. Þetta lítur nú samt út fyrir að vera að ganga yfir.
Alma Birna vinkona var að eiga í gærkvöldi, litla stelpu, ja, reyndar ekki svo litla, svona eins og 1-2gja mánaða kríli, 4.250 g og 54 cm. Til hamingju með það, Alma Birna, Guðmundur og Hermann. Nú getum við sem sagt gengið frá nýjum kaupmála. Eins og margir vita er löngu búið að gera kaupmála fyrir Döggu og Hermann og nú er í uppsiglingu nýr kaupmáli. Nú, okkur líst svo vel á tengdaforeldarna, hehe.
5月14日 Þegjandi hásÉg er komin með barkabólgu. Hlaut að vera, ég var svo mikil drusla í síðustu viku að ég var á leiðinni að biðja um blóðrannsókn til að athuga hvort ég væri blóðlítil, vantaði vítamín eða eitthvað. Skýringin á þessum slappleika kom svo þegar leið á vikuna og kvefið kom í ljós. Varð svo hás um helgina og er núna þegjandi hás. Held að Óli sé alveg sáttur með þetta, ég tala minna á meðan. Þetta veldur mér samt svolitlum erfiðleikum, því nú þegar Óli er farinn að vinna þarf ég að tala og tala þegar hann kemur heim...
Stráksi bara stækkar og stækkar og þyngist. Veit ekki hvað er í þessari mjólk sem hann fær og hvað ég geri til að þetta sé svona mikill rjómi. Ljósan kom nefnilega í gær og Björn var vigtaður og er nú 5.150 g. Sem þýðir að hann hefur þyngst um 650 g á tveimur vikum en viðmiðið er svona 200 g á viku. Honum vondandi tekst að drekka frá mér aukakílóin. Stóð nefnilega í þeirri meiningu að ég hefði lítið bætt á mig á þessari meðgöngu. Vigtin okkar er hins vegar biluð og sýnir sömu kílóatölu og eftir meðgönguna með Döggu. Jæja, þá eru það bara göngutúrar og leikfimi næstu mánuði...
Við erum búin að negla niður skírdaginn, það verður skírt á sjómannadaginn, 1. júní hér heima.
Já, og svo erum við búin að bóka ferð til Portúgals, förum 28. ágúst, júhú. Þar fóru 302.000 kr. Ekki alveg gefins að ferðast með fjölskylduna! 5月9日 Tíminn líðurÆ, það er ekki margt að frétta hérna. Þó var nú einn stórviðburður en Dagga átti 3gja ára afmæli þann 4. maí. Auðvitað var haldið upp á afmælið og hún þvílíkt ánægð að vera í sviðsljósinu þennan dag í stað litla bróðurs. Ég skellti myndum úr afmælinu hér til hliðar.
Við Dagga fórum annars til tannlæknis í morgun. Við vorum báðar duglegar að gapa framan í tannsa en samt fékk bara Dagga verðlaun. Ekki alveg sanngjarnt það. Annars var okkur báðum hrósað fyrir fínar tennur.
Erum að vinna í því að negla niður dag til að skíra stráksa. Sjómannadagurinn, 1. júní kemur sterkt inn. Nafnið er þó ekki alveg ákveðið, bara að það verður Björn ???. Óli hefur það verkefni að velja seinna nafnið og vonandi tekst það fyrir fermingu!
Já, en þar fyrir utan er lítið að frétta og ekkert að gerast. Nú er manni farið að leiðast svolítið að hitta ekki fólk. Við það bætist að Óli fer aftur að vinna í næstu viku. Ég er nokkuð viss um að þegar hann kemur heim þá fær hann eyrnaverk að hlusta á mig, ég á örugglega eftir að tala frekar mikið. Senn fer nú að líða að því að maður geti skellt sér í leikfimi eða þvælst eitthvað. Maður er þó farinn að fara í göngutúra með vagninn og það er mikið til bóta. |
|
|