Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


4月13日

Björn Ágúst 1 árs

Björn Ágúst er 1 árs í dag.  Hann er farinn að labba á milli húsgagna og hlutirnir gerast hratt.  Við stefnum á að vera farin að labba á laugardaginn þegar haldið verður upp á afmælið.
 
Ætli það sé eitthvað páskadjók í gangi hjá Wiskas.  Var að gefa kisa í morgun kisumat úr svona litlum pokum frá Wiskas.  Þegar ég hafði kreist allan matinn út datt fjöður ofan í kisudallinn.  Já, ég er ekki að grínast, gul fjöður með litlum svörtum doppum kom út úr pokanum. Maður starði og það flaug í gegnum hugann hvað í ósköpunum maður hefur verið að gefa kettinum... páfagauka..?  Aðrar hugmyndir..?  Á maður að hringja út af þessu, eða..?
4月11日

10 skref og 4 jaxlar mættir á svæðið

Litli gaurinn er búinn að vera alveg drullu lasinn, karlinn.  Svo lasinn að hann hefur sofið nánast í 4 daga og þess á milli kúrt í fanginu hjá mömmu og pabba.  Hann hresstist lokks í dag, á 7. degi og hefur verið í essinu sínu.  Hann hefur tekið nokkur skref sjálfur og sló persónulegt met með því að labba heil 10 skref óstuddur.  Það má kannski geta þess að fyrsta skrefið óstuddur var tekið þriðjudagskvöldið 31. mars þegar hann gekk 3 skref berrassaður í átt að baðinu.  Enda er svo svaka gaman að fara í bað.  Þar fyrir utan kom 4. jaxlinn í ljós í gær, hann er þó kominn svolítið upp svo líklega er hann um viku gamall. 
 
Annars er mest lítið að frétta...  Skellti inn hrúgu af myndum...