Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
4月29日 Öll fjölskyldan í brjóstagjöfumSumar stundir eru óborganlegar og í gær tókst okkur að festa eina slíka á "filmu". Dagga tekur hlutverk sitt sem stóra systir mjög alvarlega og aðstoða mömmu sína eins og hún getur (og nennir). Í gær heimtaði hún að pabbi sinn skipti á bangsanum sínum, það væri kúkableyja og vond lykt. Því næst hlammaði hún sér í sófann hliðiná mömmu sinni, sem var að gefa litla bróður að drekka, dró upp um sig peysuna og skellti bangsanum á brjóst. Síðan var heimtað að pabbi breiddi teppi yfir bangsa svo honum yrði ekki kalt. Þarna sat hún svo í dágóða stund og skipaði síðan pabba sínum með harðri hendi að taka við hlutverkinu með útréttan vísifingur, sagði honum að setjast, reif upp um hann bolinn og útskýrði fyrir honum hvernig ætti að gefa litlum börnum brjóst. Þarna varð svo pabbi að dúsa með bangsa í fangi í svolitla stund. Vegna anna við brjóstagjafir náðist ekki mynd af pabba gefa bangsa en hér eru myndir af mömmu og Döggu. Eins og sjá má á myndunum fæddist bangsi í fermingarstærð.
4月28日 Sá litli fitnarÆ, ætla að hafa þetta stutt núna...
Ljósan kom í dag og vigtaði lillemand. Hann reyndist orðinn 4.500 gr og höfuðmál 37,6 cm. Svo minn braggast bara vel, hefur þyngst um 260 gr á viku eða samtals 380 gr frá 5 daga skoðuninni. Mömmunni var létt við þessar fréttir því þetta þýðir að nú má fara að pota þeim litla í barnavagninn og fara út að þramma, svo lengi sem ekki sé of kalt. 4月26日 Til Steineyjar mágkonuHér koma sérstök skilaboð til Steineyjar, mágkonu minnar. Og svo einhverjar fréttir.
Kæra Steina.
Eins og þú veist kom Leifur og skoða stráksa á miðvikudaginn síðasta. Hann bað mig sértaklega um að setja inn mynd á netið því til sönnunar með þessum skilaboðum: "Ég var líka á undan, liggaliggalái". Svo kannski til að svekkja þig aðeins meira þá komu einmitt um kvöldið sonur þinn, Ólafur Ívar, ásamt kærustu, henni Elínu og fengu að máta hann. Gleymdist reyndar að taka myndir af því til sönnunar, sem og þegar Jóhanna Ósk kom. En takk fyrir fötin. Híhí!
Annars gengur allt vel hér. Það er svolítið prógram að koma börnunum á rúmið á kvöldin, sá litli hefur nefnilega fengið nudd til að þreyta hann. Nú er hann hins vegar farinn að sofa vel og lengi á nóttunni þannig að núna fær hann bara að drekka. Mér skilst að þetta sé lúxus, hann sefur nefnilega frá svona 22 til kl. 4 eða 5, en Dagga var eins og ég þekki ekkert annað. Sem betur fer. Allt er að komast í svona 3gja klst. rútínu svo hér með er húsið opnað fyrir gestum. Með því skilyrði, jú, að fólk hringi á undan sér ef ske kynni að móðirin sé að fá sér fegurðarblund.
Hundurinn hennar Helenu, hún Ninja, eignaðist 5 hvolpa í síðustu viku, teknir með keisara. Úff, ég vorkenndi Ninju þegar ég sá hana með 5 hvolpa á brjósti, hehe.
Læt líka fylgja með mynd af elsta og yngsta barnabarninu hennar mömmu. Á milli þeirra skilur 25 ára aldursmunur. Það má kannski líka bæta því við að Helena á fyrsta (og eina) langömmubarnið hennar mömmu, hann Nökkva Þór, en hann er núna 18 mánaða, hehe, eldri en yngsta barnabarnið.
4月22日 Allt mallar áframSá litli er farinn að sofa á nóttinni, vaknar bara einu sinni til að drekka. Að vísu með smá prógrami á kvöldinn, honum er haldið vakandi frá ca. 19:30, gefið að drekka um 21 og síðan nuddaður og gefið aftur að drekka. Það virkar alla vegana vel og við hjónin farin að lyfta augnlokunum, hehe. Svo leggur maður sig í gríð og erg á daginn. Komin næg mjólk, er eiginlega bara að springa og lít út eins og Dolly Parton. Sýnist þetta verða sama sagan og síðast, ég gæti líklega haft 2 í viðbót á brjósti.
Ný ljósa kom í gær og skoðaði stráksa í bak og fyrir. Vigtin hennar sagði hann búinn að ná aftur fæðingarþyngd + 20 g (4.240) en það er kannski ekki alveg að marka, þetta er ný vigt. Sjáum þetta betur í næstu viku hvað hann þyngist. Hann er frekar þurr, karlinn, gerist víst oft með börn sem ganga framyfir. Hann er eiginlega við það að líta út eins og fiskur með hreistur, hehe.
Dagga er voða stolt af litla bróður og voða viljug til að hjálpa og vera með. Það koma stundir inn á milli þar sem hún er lítil í sér og vil meiri athygli en þá fær hún hana bara.
Ég skellti inn fleiri myndum hér til hliðar, koma á eftir mynd nr. 21.
Fyrir portúgalana:
Todo está a correr bem. O menino já dorme a noite e só acorda uma vez para beber. Já tenho muita leite e ele está a engordar.
Há novas fotografias no lado no mesmo album, comecam depois fotografia no. 21. 4月18日 Eru þau lík?Vorum að koma úr 5 daga skoðuninni sem gekk alveg glimrandi. Sá litli er búin að vera duglegur að drekka og var bara 100 gr. undir fæðingarþyngdinni, eða 4.120 gr. Duglegur stráksi! Kom í ljós í skoðuninni að hann hefði viðbeinsbrotnað í fæðingunni. Mér fannst þetta líka eitthvað skrítið, hann grét svo sárt fyrstu dagana þegar ég tók hann upp með því að taka undir hendurnar, sérstaklega hægri hönd. En þetta er alla vegana gróið núna, viðbeinið hefur í raun bara bognað og sprungið en ekki farið í sundur.
Annars gengur allt vel en það vantar svolítið upp á svefninn hjá mömmunni. Sá litli hefur undanfarnar verið með svolítið vesen á nóttunni og viljað bara vaka. Svo maður er svolítið svefnlaus ennþá.
Gróf upp myndir af þeim systkinum við svipað tilefni. Eru þau lík?
Fyrst er það Dagga (fotografias da Dagga):
Hér er stráksi (hmm, flestir vita nú að ég hef ætlað að skíra hann í höfðuðið á pabba en Óli fær að velja hitt nafnið) (fotografias do menino):
Og svo fyrir Portúgalana mína (Bryndís, þú mátt leiðrétta):
Olá, meus amigos. Desculpa, que nao tenho letras portuguesas. A página é toda em islandes mas vosses conseguem ver fotografias. Aqui no lado ao direito há fotografias. Vosses podem ver as maiores se tocam ao uma fotografia ou no "link" do album.
Beijos de nós. 4月15日 Drengur fæddur 13. aprílÁ sunnudaginn síðasta kom krílið loks í heiminn. Það reyndist vera herramaður, tæpar 17 merkur (4.220 gr) og 52 cm með höfuðmál 36,5 cm. Sá litli ákvað að hafa meira fyrir þessu en stóra systir og fæddist á "venjulegan" máta í heiminn eftir 17 klst. Maður er jú, eiginlega eins og frumbyrja að eiga sitt fyrsta barn og mátti svo sem gera ráð fyrir 10 klst. +/1 eitthvað, annars hefði það orðið keisari. Á tímabili leit þetta reyndar þannig út að þetta stefndi í keisara en það breyttist eftir að ég fékk dripp. Veit að einhverjir hafa áhuga á fæðingarsögunni svo hér er stiklað á stóru í tíma:
4:30 - byrjaði að fá verki,
9:00 - farið á fæðingardeildina,
10:00 - útvíkkun mældist með herkjum 3 cm.
12:00 - útvíkkun mældist aftur með herkjum 4 cm. Talið of hægur framgangur og ákveðið að planið yrði: sprengja belgin, ef það diggði ekki, gefa dripp og að lokum keisari ef ekkert gengi.
12:45 - belgurinn sprengdur. Hríðirnar hertust þannig að mjög stutt var á milli og lítil hvíld til að slaka á á milli.
13:30 - bað um mænudeyfingu
14:00 - svæfingarlæknir mætir á staðinn til að deyfa. Allt tilbúið, ég sat á rúminu, tilbúin með krippu á bakinu og læknirinn með allt tilbúið þegar síminn hringir. Hann varð að rjúka í hasti á skurðstofunar vegna bráðakeisara. Varð að gjöra svo vel og pínast áfram.
15:00 - fékk mænudeyfingu. Útvíkkun mæld stuttu síðar og var aðeins 5 cm. Byrjað að gefa dripp þegar mænudeyfingin var farin að virka. Mænudeyfingin klikkaði aðeins, við líklega gleymdum að biðja um deyfingu báðum meginn, svona homeplest. Alltaf einn punktur öðrum megin sem aldrei deyfðist en píndist ekki agalega. Hvernig fara konur af sem sleppa svona lyfjum? Guði sé lof fyrir mænudeyfingu!
17:00 - útvikkun komin í 7, júhú.
20:15 - útvíkkun 10. Rembingur hófst 21:10. Krílið fæddist svo kl. 21:33. Allt gekk vel. Stráksi stakk sér í heiminn í einni hríð. Smá saumar en bara grunnt.
Gistum svo á hreiðrinu um nóttina og komum heim í gær um kl. 16.
Hér eru svo myndir af stráksa og stóru systur, skellti líka fleirum hér til hliðar.
P.s. SMS skilaboðin klikkuðu í einhverjum tilvikum. Gekk á listann í símanum og sendi á marga í einu. Það virðist hafa klikkað hjá einhverjum. 4月8日 Leyst út með fullt af nammiÉg fór í nammiverksmiðjuna Góu í morgun. Það var nefnilega þannig að á föstudaginn keypti ég súkkulaðirúsínur í Bónus sem voru frekar bragðvondar, bara hreinlega þráabragð. Nennti eiginlega ekki að fara aftur í Bónus og kreystar fram nýja pakka og fá svo kannski annan eins í staðinn. Þar sem Góa er nú hér við bæjardyrnar hjá mér þá skellti ég mér þangað í morgun. Maðurinn virtist strax kannast við dagsetninguna og bað mig um að bíða augnablik. Hann kom svo til baka með fullan innkaupapoka af nammi!!! Já, hérna, þetta kalla ég góða þjónstu. Ég labbaði því út alsæl með nammið. Það verður samt sett upp í skáp að hætti Ragnheiðar: geyma, geyma.
Ég gerði líka uppgötvun um helgina. Ehem, ég er búin að vera lengi með samdrætti, það var uppgötvunin. Allt öðruvísi samdrættir en síðast, þá komu þeir frá hlið en núna eru þeir beint ofan frá. Ég hélt alltaf að þetta væri krílið að hreyfa sig og spyrna í niður í grind en um helgina áttaði ég mig á því að svo var ekki, því það liðu svona 15-20 á milli hvers samdráttar. Jæja, hmm, kannski er hin uppgötvunin sú að ég er ljóska! Annars var ég útskrifuð úr mæðraskoðun Sólvangs í morgun með sæmd. Eða svoleiðis, hitti ljósurnar þar ekki meir. Ef krílið er ekki komið á mánudag þá munu þær panta fyrir mig í monitor á LSH og þar með flyst ég til LSH í mæðravernd. Og þá byrjar örugglega ballið að þrjóskast með minn fæðingardag, júhú. Ætla eiginlega að vera búin að eiga þá! Annars gekk mæðraskoðunin bara vel, allt við það sama og kúlan bara stækkar. Er að verða samt bolla, finnst mér, var 80 kg. í morgun, úhú.
Óli smellti af mér bumbumynd um helgina og ég reyndi fyrir mér sem fyrirsæta. Helg ég haldi mig bara við tölvunördinn, hehe. Gróf síðan upp myndir frá því ég gekk með Döggu, held ég hafi verið gengin álíka langt þar.
4月3日 Ekkert að gerastNú eru komnar 40 vikur og 1 dagur skv. sónar. Svona til upplýsinga þá er ekkert að gerast. Á reyndar ekki von á því að neitt gerist fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku. Ætla samt að fara að vinna í tékklista yfir dót sem maður þarf að taka með sér á fæðingardeildina, hmm, svona til vonar og vara.
Hitti ljósu sl. þriðjudag og er við hestaheilsu. Held ég fari bara að vinna aftur! Fínn blóðþrýstingur, legbotninn enn að vaxa, krílið með með fínan hjartslátt og hreyfingar.
Annars kemur pípari um helgina til að setja upp nýjan ofn í nýja herbergið hennar Döggu. Það væri reyndar týpískt að maður færi upp á fæðingardeild þá.
Ég tapaði vettlingunum mínum í gær. Dýrindis svartir fingravettlingar, keyptir í Nóatúni á heila 700 kr. Voru orðnir frekar þæfðir og þunnir á álagssvæðum. Við vorum nefnilega í Rúmfatalagernum og ég búin að taka til kerru og henda vettlingunum ofan í. Á meðan ég og mamma köfuðum, í orðisins fyllstu merkingu, ofan í eina gindina á eftir skóm fyrir Döggu þá hefur líklega einhver stolið kerrunni og grætt vettlinga í leiðinni. Eða stolið vettlingum og grætt kerru í leiðinni, mér finnst það reyndar líklegra. Auglýsi hér með eftir þessum dýrmætu fingravettlingum. |
|
|