Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


4月26日

Búdapest og leikskóli

Við erum á leið til Búdapest í fyrramálið.  Orðin bara soldið spennt núna enda er veðurspáin bara góð.  Á morgun spáir heiðskíru og 24°C og svoleiðis á veðrið að vera a.m.k. fram á mánudag.  Gæti breyst í rigningu þá um nóttina.  Þá sem langar til að öfundast geta kíkt á:
Planið er að túristast og skoða borgina.  Tökum með okkur múttu og Björk.  Lilja frænka og Sara eru í heimsókn svo við höfum einhverja til að passa bæði hús og kisur.
Dagga komin með leikskólapláss!!!   Hún byrjar í aðlögun 7. maí.  Það er sem sagt margt að gerast í lífi hennar þessa dagana, fara til útlanda í 4. skiptið, verða 2 ára 4. maí, halda upp á afmælið 5. maí og byrja í aðlögun 7. maí.  Ekki það að ég hafi neitt undan dagmömmunni að kvarta, hún er reyndar alveg frábær, en þetta er auðvitað jákvæð breyting fyrir Döggu.  Allt öðruvísi prógram í gangi á leikskólanum og mikil örvun.  Annars er Nansý dagmamma líka duglega þar, í gær var hún að söngla við matarborðið og allt í einu áttuðum við okkur á að það væri lagið "Ein ég sit og sauma".  Og hún kann orðið heilmikið í því lagi, sem og "Allir krakkar".
Annars er nóg að gera, pípari búinn að vera hjá okkur að skipta út ofnum, val á eldhús-innréttingu eftir helgi, 4 gangsetningar hjá Ragnheiði í vinnunni í maí, Óli fer líklega aftur til Nýja Sjálands í byrjun júní og gestir frá Portúgal 12. júní.