Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
3月17日 Klappi-klappVá, hvað maður hefur beðið lengi eftir klappi og það loksins kom í dag. Litli gaurinn er orðinn 11 mánaða og loksins fór hann að klappa. Dagga var hins vegar rétt rúmlega 6 mánaða. Greinilegur munur á kynjum hvað varðar fínhreyfingar... Hann er alltaf á iði og stoppar ekki. Svaka hreyfiþroski í gangi.
Ég er stigin upp úr lungnabólgu og reyni að taka því rólega. Er enn hóstandi og var enn með brak í lungunum sl. fimmtudag þó líklega séu samt allir sýklar dauðir. Þetta er sannkallað pensílín-bæli hérna. Óli er búinn með vikuskammt við sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum og á föstudaginn kom í ljós að Dagga er með bullandi sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum. Við létum tékka á henni þar sem hún reyndist með vökva í eyrum í 3,5 ára þroskaprófinu í byrjun desember en þá var okkur sagt að láta athuga þetta aftur eftir ca. 2 mánuði. Aumingja skvísan, hún hefur kannski verið með sýkingu allan þennan tíma...
Senn líkur "feðrafríinu" hans Óla. Skrítið með þetta "frí", annað hvort var þetta sannkallað frí eða þá eitthvað meira að gera en áætlað var því verkefnalistinn á ísskápnum er nánast óbreyttur og fáu lokið. En þessi nýja húsmóðir hefur staðið sig með afbrigðum vel, hún hefur þvegið þvott í 2 mánuði og gengið frá honum án þess að ég hafi nokkuð komið nálægt. Sama á við um önnur húsverk því húsbóndinn (ég) hefur viljandi reynt að sníða hjá öllum húsverkum svo nýja húsmóðirin þyrfti líka að ganga í öll þessi litlu ósýnilegu verkefni sem enginn tekur eftir að þurfi að framkvæma. Litli gaurinn er svo byrjaður í aðlögun hjá Nansý dagmömmu og þann 26. mars hefst ballið. |
|
|