Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
3月26日 39 vikur - hætt að vinnaNú segir sónarinn að ég sé komin 39 vikur og ég er hætt að vinna. Við hittum fæðingarlækni í gær og hún skrifaði fyrir mig vottorð. Allt leit vel út í skoðuninni, krílið búið að skorða sig, blóðþrýstingurinn í lagi og eftir þukl á kúlunni var úrskurðurinn að um væri að ræða meðalstórt barn.
Fórum í skírnarveislu á skírdag þar sem nýjasti Gúlpa-meðlimurinn, hann Úlfur, var skírður. Þegar skírninni var lokið settust allir gestir og píanistinn hóf að spila lag. En úppppps, það var brúðarmarsinn og upp að altari gengur gúlpar THE og Hrundskí (Tolli og Hrund) og létu pússa sig saman. Meiri púkarnir! Ég gat séð á þeim púkasvipinn þó þau snéru baki í okkur. Skil ekki heldur að við skyldum ekki hafa fattað þetta! Við höfum áður vænt þau um að ætla að gifta sig óvænt en í þetta skiptið kom þetta aldrei upp í huga okkar. Þeim tókst alveg að plata okkur. Verst með óléttu konuna, tárin streymdu í stríðum straumum niður kinnarnar. Hormónaflæðið er ekki alveg í lagi hérna megin. Til hamingju litla London-Gúlpa-fjölskylda!
Annars voru páskarnir ágætir hjá okkur, fyrir utan veikindi. Eiginlega hefur Óli verið lasinn síðan hann komst á fimmtugsaldurinn. Hann fékk loks pensilin á páskadag - mér finnst það samt ekki hafa virkað almennilega á aldurinn...
Við fórum svo í bíó á föstudaginn langa með Döggu í fyrsta skiptið. Við sáum Horton og sú stutta var glimrandi ánægð. Að öðru leyti var hreiðurgerð í fullum gangi og allt að verða tilbúið. 3月19日 ÆlupestEnn ein veikindin hér á bænum. Nú er það ælupest. Held að þetta sé í 7. skiptið sem Dagga er lasin frá miðjum janúar. Ég fór því ekki í vinnu en þetta átti að vera síðasti vinnudagurinn. Ætla því að koma við eftir páska. Svo sem ekkert fyrirliggjandi, búin að koma öllum verkefnum yfir á Öddu, en svona bara ganga frá og kveðja fólkið í bili.
Ég hringdi í morgun í doksa til að reyna að fá veikindavottorð fram að fæðingu. Það var nefnilega engin laus tími þegar ég reyndi að panta í síðustu viku. Þegar doksi svaraði ekki þá hringdi ég á skiptiborðið/tímapantanir. Þá fékk ég þær upplýsingar og doksinn okkar sé farinn í leyfi næstu 3 mánuði.
Símadaman veitti mér "afbragðs" þjónustu, spurði hvort ljósan gæti ekki bara skrifað upp á vottorð. Ég sagði nú að hjúkrunarfræðingar gætu það ekki, vottorð yrðu að koma frá lækni. Fékk þá spurningu til baka hvort þetta væri ekki bara vottorð upp á áætlaðan fæðingardag. Ehem, nei svaraði ég, ég þarf veikindavottorð upp á óvinnufærni fram að fæðingu, það verður að koma frá lækni. Fékk þá þennan gullmola til baka: "Nú, er ekki nóg að veifa bumbunni?". Ja, hérna, ég átti eiginlega fá svör, greinilega ung stelpa í símanum sem hefur sjaldan þurft að útvega sjálfri sér vottorð... Annars er ég trekk í trekk að fá þarna "afbragðs" þjónustu. Hef m.a. verið látin bíða í hálftíma á röngum stað eftir að hitta fæðingarlækni. Næstum missti af fæðingarlækninum, hún var á leiðinni að fara þegar ljósan gekk framhjá mér. Símadömurnar höfðu bæði leiðbeint mér á rangan stað auk þess sem þær höfðu ekki fyrir því að merkja við mig að ég væri komin.
Annars varð Óli formlega gamall í gær, 40 ára. Mér finnst samt hann ekkert hafa stækkað eða elst... Það eru komnar myndir úr afmælinu hér til hliðar.
Ætlum að hafa það síðan gott um páskana, lítið planað nema að þrífa pínupons föt á væntanlegt kríli og undirbúa það helsta fyrir það. Ekki veitir af, ég er ekkert búin að gera!
3月11日 Óli gamliÓli er að verða gamall. Hann verður 40 ára þann 18. mars. Ég sé að ég verð að fara vel með hann, hann er orðin svo gamall! Spara hann svolítið... Svo nú hef ég ákveðið að annar hver bóndadagur verður bara nýttur.
Ætlum að bjóða fjölskyldunni og nánustu vinum á laugardaginn. Samt er þetta talsverður fjöldi. Fjölskyldan líka ein og sér eru yfir 20 fullorðnir + einhverjir grislingar. Pant svo fá að hvíla mig á sunnudaginn. Æ, þá er víst fermingarveisla. Hélt það yrðu engar slíkar í ár en þegar er búið að bjóða okkur í tvær. Merkilegt hvað fólk virðist vilja fá okkur í veislur - kannski erum við svona skemmtileg.
Vorum á árshátíð um helgina og deildin mín með skemmtiatriði. Ég fékk það verkefni að syngja við nokkur lög, allt síðan sett á video og látið spila undir grín-kynningu. Allt gekk vel, enda textarnir við lögin góð og handritið flott. Söngurinn - hmm, æ, no comment en ég skemmti mér vel við að syngja.
Páskarnir nálgast og svo vonandi get ég hætt að vinna. Þá verð ég líka komin 39 vikur og þetta orðið ágætt. Er búin að vera í 50% vinnu sl. 2 vikur en þær hafa farið svolítið öðruvísi en þannig að maður næði að sofa lengur á morgnanna og slaka á. Dagga hefur verið lasin að meðaltali 2 daga í hverri viku síðan um miðjan janúar og sl. 2,5 vikur voru ekki undantekning. Svo það þýddi að í stað þess að sofa lengur hefur maður vaknað "eldhress" og eldsnemma með Döggu og stússast með henni fram yfir hádegi. Og þá er orkan búin, enda líka komin 1/2 vinnudagur þar. En þá hefur maður staulast í vinnuna. Geysp...
Var annars í mæðraskoðun í morgun. Allt gekk vel, blóðþrýstingur 115/65, orðin bolla 75,7 kg. (síðast var ég orðin 83 kg. á þessum tíma, með fýlafætur og hendur). Æ, já, er hálfri kúrfu yfir meðaltali með legbotninn. Hef lengi vel fylgt meðaltali nema síðust 2 skipti. Sem sagt, sama sagan og síðast, kannski bara alveg sama uppskriftin. Vonandi ekki 19 merkur aftur samt...
3月5日 Skautar og bumbumyndVið fórum með Döggu á skauta fyrir rúmri viku síðan með vinnunni hans Óla. Það gekk í þetta skiptið mikið betur en í desember, þetta lærist hægt og sígandi hjá Döggu. Skutlaði inn myndum frá því tækifæri ásamt 2 bumbumyndu sem ættmenni í Danmörku var að sníkja. Tek það fram að ég var nývöknuð og hálf úldin en hvað gerir maður ekki fyrir ættmennin?
|
|
|