Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


3月31日

Kisi í valíum-vímu

Nýjar myndir hér til hliðar, aðallega úr afmælinu hans Óla.
 
Annars er það að frétta að kisi er búin að vera í valíum-vímu í næstum 2 vikur.  Við fengum tíma hjá dýró í sálfræðiviðtal og hann kom heim í vímu, búið að skella í hann 1/2 töflu af valíum.  Dýró segir að þetta virki í 90% tilvika.  Miðað við lýsinguna á því hvernig hann hegðar sér taldi dýró réttara að hann færi á róandi frekar en örvandi, enda er hann oft að reyna að ögra okkur með pisseríinu.  Hann hefur líklega orðið fyrir einhverju áfalli þegar Kobbi dó og pisseríið hófst.  Kisi er búinn að vera alsæll, alveg "vúúú, hæ, knúúúúússss!".  Knúsar okkur í bak og fyrir og jafnframt fer hann reglulega að éta, greyið.  Ætli hann fitni ekki við þetta.  Eins og dýró var nú annars ánægð með hann, sagði hann mátulegan í vextinum, rauðan en ekki gulan að lit og líklega fær hann freknur á nebbann á sumrin, hehe. Hann er svo kominn á minni skammt núna en hugsanlegt er að hann verði á valíum í upp undir eitt ár.  Hann hefur a.m.k. ekki pissað síðan, svo við sjáum til og vonum.
 
Annars er svo Óli á leið til útlanda, Nýja Sjálands þann 10. apríl.  Verður í burtu í tæpar 2 vikur.  En fram að því verður afslöppun og páskafrí. 
3月19日

Í þá gömlu, góðu...

Þetta er brandari!  Neðangreint var í fréttabréfi TR fyrir helgina, hehe.  Held að Óli verði að halda áfram að láta sig dreyma.  Ég væri svona meira til í að snúa þessu við.  Óli segir að ef ég hefði ekki skráð mig úr heimilisfræði á sínum tíma þá kynni ég þetta líklega allt saman. 
 
"Sennilega myndu nú ekki allir vera sáttir við þessi fræði....

Þessar reglur eru teknar úr kennslubók í heimilisfræðum frá 1950:

Boðorðin 10

1. Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.

2. Notaðu 15 mín. til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu hress og skemmtileg til að hressa hann við.

3. Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.

4. Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.

5. Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.  

6. Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þó hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minniháttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.

7. Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur í bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúmið. Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.

8. Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þó hann fari ekki með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af streitu og látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima.

10. Heimilið á að vera staður þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag."

3月14日

Bara kominn mars

Vá, hvað tíminn líður hratt!  Bara kominn mars og hann hálfnaður.  Afmælistónleikarnir búnir, árshátíð TR búin, kominn mars og Óli að verða 39 ára.  Tónleikarnir gengur vel, rúmlega 300 tónleikagestir og óperan næstum full.  Árshátíðin, já, hvað getur maður sagt?  Mikið fjör alla vegana. 
 
Dagga bara stækkar og stækkar og talar og talar.  Nú er hún farin að tala í ágætis setningum og vel skiljanlegum.  Já, þó mamman segi sjálf frá þá er hún ansi dugleg að tala miðað við aðra jafnaldra.  Hún var síðan dressuð upp á öskudeginum sem Lína langsokkur og tók sig vel út.
 
Um síðustu helgi skelltum við okkur til Ólafsvíkur.  Á föstudeginum var starfsdagur dagmæðra í Hafnarfirði svo foreldrarnir ákváðu að taka sér langt helgarfrí.  Að venju höfðum við það gott hjá Leif og Steinu og átum yfir okkur enda er Steiney þekkt fyrir hlaðborðin sín þegar við komum.  Fórum meira að segja í sunnudagsskólann og Dagga fékk að vera gestakveikjari og kveikja á kerti. 
 
Slæmu fréttirnar á heimilinu eru þær að Askur kisi hefur verið mjög óþekkur í vetur og pissað út um allt.  Hann hefur jú átt þetta til, bara að vetri til, en í þessi vetur hefur verið reglulega slæmur.  Húsmóðirin grét sig í svefn um daginn þegar hún horfðist í augu við að þetta gengur ekki lengur.  Litla kisubarnið hennar verður að fara til kisuguðs, sniff.   Nú skal samt reyna allt til að finna ráð.  Kisi er á leið í sálfræðiviðtal hjá dýralækninum á mánudaginn.  Við munum nota næsta hálfa árið til að finna ráð en ef ekkert gengur verður að senda kisa til kisuguðs næsta haust.
 
Að öðru leyti er bara það að frétta að hér eldist fólk og Óli er á síðasta séns á fertugsaldrinum.  Á sunnudaginn verður hann 39 ára!  Svo verður nóg að gera um páskaleytið, bara 3 fermingarveislur.  Já, og Óli fer til Nýja Sjálands strax eftir páska og kemur heim í tæka tíð fyrir ferðina til Búdapest.  Hér til hliðar eru myndir frá öskudeginum, heimsókn til Birnu vinkonu og frá skírninni hans Nökkva Þórs.