Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
2月28日 Hver er stór?Björn Ágúst! Loksins fór hann að sýna smá takta og teygir sig langt upp í loft þegar hann er spurður hversu stór hann er. Hana nú!
Annars er það að frétta úr veikindabælinu að ég er enn lasinn en er komin á pensilin. Fór enn einu sinni til læknis sem sendi mig í röntgen á lungum og á ennis- og kinnbeinsholum. Niðurstöðurnar komu á fimmtudag, ég er barastað með lungnabólgu og sýkingu í ennis- og kinnbeinsholum á byrjunarstigi. Hlaut að vera, ég er búin að vera svo svakalega slöpp, varla komist upp og niður stigann hér innanhúss án þess að vera móð og másandi. Svo nú er ég farin að maula pensilin og vonast til að sjá bata á allra næstu dögum.
Það styttist í að betri helmingurinn eigi afmæli. Einhverjar hugmyndir um afmælisgjöf? 2月23日 Fyrsti jaxlinnÞað nýjasta nýtt er að Björn Ágúst er kominn með fyrsta jaxlinn - 10 mánaða. Hann sem sagt heldur uppteknum hætti og ætlar að drífa sig í tanntökunni... 2月22日 FlensaHúsbóndinn á heimilinu er með flensu þessa dagana. Nei, ekki Óli... heldur ég... Og ég sem fór í flensusprautu í október... Nú er 5. dagur veikinda og ég er ekki alveg farin að sjá fram úr þessu ennþá.
Nú er maður búin að vinna í þrjár vikur og feðgarnir eru saman heima. Það er ekki að sjá að Björn Ágúst sakni eitthvað mömmu sinnar, greinilegt að þeir tveir hafa það mjög gott. Enda er nóg að gera því sá litli er útum allt. Hann er farinn að skríða á 4 fótum, hendir sér stundum á magann og togar sig áfram en fer að mestu um á fjórum núna. Hann er farinn að standa upp við borð og skápa og setjast aftur niður. Svo sér maður hann stundum í leikfimi á gólfinu þar sem hann stendur með rassinn upp í loftið en hendur á gólfinu. Við spáum því að hann verði farinn að ganga um 1 árs, ólíkt Döggu, enda lætur hann sig vaða með tilheyrandi marblettum. Dagga á vinninginn í brellum og málþroska. Björn Ágúst er nú 10 mánaða og hér er ekki komið eitt orð sem í samanburði við Döggu er frekar seint. Sömuleiðis bólar enn ekki á "hvað er Björn Ágúst stór" eða "sterkur" frekar en að geta klappað. Þá er horft á mann eins og maður sé eitthvað skrítinn. Það var þó loksins í þessari viku sem hann fór að vinka bless. Og hver sagði svo að hann væri ekki samanburðarbarn, haha.
Dagga bíður spennt eftir morgundeginum með bolluvöndinn á lofti. Hún er þó búin að taka smá æfingar um helgina og við höfum verið flengd í tíma og ótíma. Svo er hún tilbúin með tígrisdýrabúninginn fyrir Öskudaginn. Þetta eru aldeilis skemmtilegir dagar að hennar mati. |
|
|