Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


2月29日

50% kona

Ragnheiður er orðin 50% kona.  Óli spurði þá hvort hin 50% væru karl...  En sem sagt, frá og með síðasta mánudegi hefur Ragnheiður unnið bara hálfan daginn.  Og þvílíkur munur, þetta var greinilega orðið of mikið að vera í 100% þegar sofið er meira en Dagga um helgar.  Og byrjað að dotta upp í sófa um kl. 8.  Bjúgurinn hefur líka runnið hægt og rólega aftur af.
 
Fórum í sónar í síðustu viku, komin þá 33v6d skv. sónar (+4 dagar skv. Ragnheiði).  Litla krílið var þar áætlað 2700 g (11 merkur).  Dagga var áætluð 12 merkur á sama tíma þannig að þetta virðist stefna í annað stórt kríli en vonandi eitthvað þó minna en 19 merkur.  Nú er bara að halda vel á spöðunum og allt óþarfa nammiát eða nart er bannað.  Kúlan reyndist samt 1/2 kúrfu yfir í mæðraskoðun á mánudaginn... Sarcastic
 
Óli er búinn að flísaleggja, kláraði það um síðustu helgi.  Þetta er auðvitað svakalega fínt hjá honum, enda mjög (of) nákvæmur.  Ætlum í dag að velja málningu á herbergið hennar Döggu en nýtt rúm er komið í hús og bíður í bílskúrnum.  Svo er undirbúningur fyrir afmælið hans Óla að hefjast en Óli er að verða fertugur!
2月10日

Veikindi og flísalögn

Hér á heimiliinu eru búin að vera veikindi.  Dagga afreikaði það að vera veik í heila fimm daga í síðustu viku og rétt marði það að mæta einn dag á leikskólann.  Hún auðvitað missti af öllu fjörinu á bolludag og öskudag en það verður bara að hafa það.  Hún er a.m.k. orðin góð núna.
 
Annars er allt við það sama hér.  Hittum fæðingarlækni í síðustu viku og við stefnum bara á að láta reyna á venjulega fæðingu.  Fengum þær fréttir að líklega megum við búast við stóru barni fyrst Dagga var svona stór og fyrst ekkert vesen er með sykurinn.  Síðan eru búnar að vera fjöldinn allur af sögum frá heilbrigðisstarfsmönnum um að ég verði örugglega sett af stað á 40. viku vegna stærðar og því að ég hafi verið á mörkunum í síðara sykurþolsprófinu (jafnvel þó að sykurinn hafi síðan ekki reynst vera vandamál) en læknirinn sagði það allt ýkjusögur, langbest sé ef ég fæ bara að fara af stað sjálf.  Var satt best að segja fegin að heyra þetta, það er eins og heilbrigðisstarfsmenn séu með einhverja fóbíu gegn stórum börn.  Hvað er þetta..?
 
Óli er að flísaleggja eldhúsið.  Byrjaði vinnuna um síðustu helgi og er enn að.  Miðað við nákvæmnisvinnuna sem hér er í gangi vona ég að honum takist að ljúka þessu fyrir næstu mánaðarmót.  Tek það fram að þetta eru 0,9 fermetrar sem hann er að leggja. Wink
 
Hér eru nokkrar myndir.
IMG_1405 IMG_1410 
Komin úr baði                               Vinir 
IMG_1415
Katrín (dóttir Villa og Krístínar) og Dagga