Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
2月8日 KvebbHér hafa 2/3 fjölskyldunnar verið kvefaðir. Byrjaði með Döggu sem var lasin í síðustu viku og fékk jú auðvitað eyrnabólgu ofan í allt saman. Hún var þó fljót að ná sér um leið og hún fékk penisilin og hefur steinsofið á nóttunni. Hmm, við höfum bara ekki sofið svona vel í marga mánuði svo þetta fær mann til að velta fyrir sér hvort hún sé hreinlega alltaf með vatn í eyrunum. Alla vegana erum við á leið til háls-nefs- og eyrnalæknis þann 21. til að tékka nefkirtlum og fleira. Sjáum hvað kemur í ljós.
Árnesingakórinn er með tónleika 17. febrúar í Íslensku óperunni kl. 17. Fjölbreytt prógram; Kvennakór Háskóla Íslands, Karlakórinn Stefnir og Kór Kvennaskólans. Enda á kórinn 40 ára afmæli. Hér er nóg að gera í tengslum við tónleikana. Ragnheiður er í afmælisnefnd og er því að undirbúa allt saman auk þess sem hún situr og lærir lögin utan að. Þetta verður örugglega gaman og um kvöldið er svo matur og ball.
Annars er margt í gangi; árshátíð TR á Selfossi helgina 24. feb, sumarbústaðarferð MH hópsins 21. apríl og svo Búdapest með hele familíuna þann 27. apríl til 1. maí. Tökum með okkur Döggu, múttu og Björk. Sú ferð er skipulög af kórnum þó líklega verði ekki um týpíska kórferð að ræða því ekki næst í fullskipaðan kór. Svo þetta verður örugglega bara fín skemmtiferð. Nú, svo er kannski Óli á leið til Nýja Sjálands um miðjan apríl og aftur í lok maí. Það er þó ekki endanlega ákveðið.
Litli frændi var skírður um síðustu helgi, Nökkvi Þór. Sjá nánar á heimasíðu Helenu. Svo skelli ég kannski myndum inn við tækifæri.
Birna vinkona á afmæli í dag. Hún er 29c ára. Til hamingju með afmælið, Birna.
Gunna vinkona átti líka afmæli fyrir viku. Hún varð 29d ára. Líka til hamingju með það, Gunna mín. |
|
|