Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
12月22日 Nokkrar myndirMér fannst vera tími til kominn að skella inn nokkrum myndum. Þær eru að venju hér til hliðar.
12月19日 Jóla-veikindabæliHér skiptast allir á að vera lasnir. Og svo sem ekki í fyrsta skipti. Óli er nýbúinn í kvefpest. Sá litli var með fljótandi augu á mánudaginn og reyndist með háan hita, 39,5°C. Honum fór að batna á miðvikudag en þá fór að snörla í honum. Hann eiginlega rýtir eins og boxer hundar með krumpunef, svona eins og Helena frænka á. Ætli þetta sé ættgengt vandamál? Hljóðin nefnilega minna mig ósegjanlega á það þegar ég gisti í fyrsta skiptið heima hjá tengdaforeldrunum og við Óli komum heim seint að kvöldi, eiginlega um miðja nótt. Þegar hurðin var opnuð bárust hræðilegar drunur innan úr íbúðinni. Ég spurði skelfd hvaða hljóð þetta væru og fékk til baka að svar að þetta væru bara hrotur... En alla vegana, hann var því drifinn til læknis í gær og þar voru gerð hin ýmsu próf, streptókokka og röntgen af maga og kinnum. Engir kokkar en á myndunum sást eitthvað að grassera í barkapípum og í kinnbeinsholum. Greyið var því sent í blóðprufu í morgun og enn er beðið niðurstaðna.
Dagga litla fékk síðan hita í nótt og hefur bara verið alveg drulluslöpp í dag með háan hita og ljótan barkarhósta. Húsmóðirin er ekkert betri, haltrar um íbúðina með verk í mjöðm og fæti og krossleggur fingur að hún fái ekki enn eina kvefpestina. Hún var hins vegar orðin svo þreytt á þessum verki í mjöðminni, enda farin að ganga á verkjalyfjum, að hún dreif sig til læknis í dag. Svo heppilega vildi til að læknirinn fékk samdægurs tíma fyrir húsmóðurina í tölvusneiðmyndatöku (vá orðskrípi...). Og þá er að bíða og vona að þetta sé ekki enn og aftur nýtt brjósklos. Eða, verra, kannski ekki neitt...
Þrátt fyrir þetta allt erum við í jólagírnum. Reglulega eru sett á jólalög, helst jólaball með Dengsa og félögum, og þá er gengið í kringum jólatréið sem er í formi stóls. Jólakortin hafa verið póstlögð, íbúðin skreytt, piparkökur málaðar og lítið annað eftir en að bíða jólanna. 12月11日 29e áraÉg á afmæli í dag, ég á afmæli í dag, ég á afmæli sjálfur...
Ég er voða mikið afmælisbarn. Ég er samt ekki alveg komin í gírinn, það vantar eitthvað aðeins upp á afmælissálina núna. Veit ekki alveg afhverju, gleymdi bara alveg að hlakka til afmælisins þetta árið. Kannski vegna þess að það er nóg að gera. Það er einhvern veginn alltaf minni og minni tími aflögu til að stinga tánnum í loftið. En á móti alveg svakalega gaman. Við mæðgurnar erum búnar að skemmta okkur konunglega saman síðustu dagana. Við höfum nefnilega föndrað saman heilan helling af jólakortum, sem og skreytt saman. Svo er sá litli farinn að vaka alltaf meira og meira og um leið er hann farinn að sýna fleiri takta. Hann er komin með 8 tennur, sú tanntaka tók ágætlega á, lítið sofið þá vikuna, sko. Síðan er hann farinn að ýta sér aftur á bak og lyfta rassinum upp í loft. Og ekki má gleyma því hvað hann talar mikið, hann ætlar að verða alveg eins og amma sín (hmm, við nefnum ekki að einhver sagði mér að hann hefði aldrei kynnst karlmanni sem talar eins mikið og Óli, sem og að mamman er síst þekkt fyrir að þegja...). Babababa og mamamama er mjög vinsælt, jafnvel um leið og maður er með brjóstið upp í sér og sýpur. Og svo ú-ar maður eins og indjáni með lófabakið upp að munni. Svaka stuð!
Ætlaði annars að skutla inn myndum en tíminn flaug frá mér. Það verður að bíða betri tíma. |
|
|