Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
12月27日 Jólabumba12月25日 JóladagurJólin eru komin. Hér er allt í leti og allir að slappa af. Þvílíkt pakkaflóð í gær, úff. Dagga varð að taka þetta í tveimur áföngum og klára restina í morgun. Þetta tekur sinn tíma því hún þarf að skoða gjafirnar í bak og fyrir og prófa aðeins að leika með þær áður en hægt er að fara í næsta pakka. Takk fyrir stelpuna!
Ennþá er til jólagrautur og hann verður kláraður, það er nefnilega alltaf pláss fyrir jólagraut. Framundan eru meiri veisluhöld; hjá tegndó í kvöld og á morgun kemur öll föðurfjölskylda Ragnheiðar. Síðan verða mæðgurnar í fríi og láta Óla sjá fyrir fjölskyldunni.
Við skelltum inn nokkrum myndum hér til hliðar. Óskum svo öllum gleðilegra jóla. 12月18日 Jólin eru að komaVá hvað ég fékk mikið af afmæliskveðjum. Rosalega gaman!!! Og fullt af fínum gjöfum! Listinn að neðan styttist aðeins en hann stendur að mestu áfram fyrir jólagjafir.
Annars gengur jólaundirbúningurinn vel og allt að verða tilbúið. Jólakortin fóru út í byrjun síðustu viku og síðustu jólagjafirnar voru keyptar um helgina. Þá er bara eftir að setja upp jólatréið og kaupa jólamatinn. Ofsalega hlakka ég líka til að brenna við purusteikina!
Dagga er farin að syngja nánast öll jólalög, svakalega gerðist það annars hratt. Ég reyndi að æfa hana fyrir jólahlaðborð kórsins og tókst að troða inn að mestu "Í skóginum stóð...". Viku síðar hafði fjöldinn allur af lögum bæst við í pokahornið úr leikskólanum. Þannig að heima eru tónleikar á hverju kvöldi.
Við mæðgurnar (3 kynslóðir, jamm) bökuðum saman piparkökur á sunnudaginn og kósuðum okkur saman. Mikið fjör að mála síðan piparkökurnar og allt mikil listaverk, að sjálfsögðu. Held reyndar að skrautið á sumum verði svolítið lengi að þorna, Dagga sletti svolítið vel á sumar, ehem...
Við Dagga verðum svo í fríi á milli jóla og nýárs, svona ef einhverjum dettur í hug að kíkka í heimsókn á okkur. 12月7日 AmmmmmmæliÉg (Ragnheiður) á bráðum ammmmæli, liggaliggalái. Held ég verði aldrei fullorðin, ég hlakka jafnmikið til að eiga bráðum afmæli og þegar ég var 5 ára. Ég er meira að segja búin að taka saman gjafalista ef einhverjum dettur í hug að kaupa handa mér pakka. Viðurkenni alveg að mér finnst gaman að taka upp pakka, næ þó að hemja mig meira en áður og rífa ekki utan af pakkanum. Hér er listinn, ætla að senda hann til jólasveinsins ef ég fæ enga pakka:
Jólaskraut og eitthvað tengt kisum hittir líka alltaf vel í mark, nema jólastjarna, híhí. 12月4日 Besta mamma í heimiÉg held ég eigi bestu mömmu í heimi!
Þegar ég kom heim í gær þá voru hún og Björk búnar að setja upp jólagardínurnar í eldhúsinu og þrífa alla glugga í stofunni. Mamma sagði að hún hefði sjálf alltaf haft svo mikið að gera þegar hún var yngri og aldrei haft nægan tíma til að dúlla sér með börnunum. Hún hefði því gjarnan viljað hafa svona hjálp. Og þar með drifu þær sig upp og hjálpuðu litlu dekurrófunni, Ragnheiði. Ég var ekkert smá glöð og fegin!!!
Það er nefnilega frekar mikið að gera næstu daga en þó allt skemmtilegt, má nú ekki gleyma því. Næsta laugardag er stefnt á skautaferð með vinnufélögum Ragnheiðar, sunnudaginn er föndur í leikskólanum, mánudaginn er kórinn að syngja á Grensási, þriðjudaginn þykist Ragnheiður eiga afmæli en sama kvöld er saumó. Hvenær eða hvort hægt verður að halda upp á afmælið er enn óljóst. Afmælisbarnið reynir örugglega að skvísa því einhvers staðar inn. Nú á miðvikudag á að fara með þá litlu í klippingu, fimmtudag er jólaball í leikskólanum, föstudag er klipping hjá Ragnheiði, laugardaginn 15.12. er jólahlaðborð í Perlunni en svo slaknar að lokum á öllu... Sem betur fer erum við langt komin með jólapakkana, bara eftir tengdó (hugmyndir, einhver?), mamma og Björk (hugmyndirnar komnar, þarf bara að kaupa gjafirnar). Svo eru eftir Leifur og Steiney og Ómar og Hildur og reyndar kisi, hann verður að fá sitt.
Í fyrradag eignaðist Patrícia, vinkona mín í Portúgal, litla stelpu. Gott hjá henni að velja þennan dag, afmælisdaginn hennar mömmu. Til hamingju með það mamma!
Dagga er að verða ansi sjálfstæð. Nú megum við ekki hjálpa henni að fara á klósettið, við erum rekin út með harðri hendi. Troðum okkur svo inn til að fá að skeina. Sjálfstæðið er hins vegar að fara í skrítnar áttir. Þetta hefur færst yfir í það að nú vill hún orðið skeina okkur. Óli er sem sagt í hinum mestu vandræðum þessa dagana með að koma sér undan því! Hehe!
Þessi jólin munum við sjálf líklega sjá um matinn. Hmm og held að flestir vita er Ragnheiður ekki mikil eldabuska þó einhvern veginn hafi henni tekist að fá 8 í hússtjórn án þess að mæta. Mamma verður nefnilega að vinna. Hingað til höfum við verið svo sniðug að skiptast á að vera hjá mömmum okkar og alveg sloppið við alla matseld, hehe. En nú ætlum við að hætta þessu flakki, mömmurnar geta bara komið til okkar ef þær vilja. Það verður svo gaman að segja frá því hvernig eldamennskan gekk og hvort við höfum fengið viðbrenda purusteik að borða. |
|
|