Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


12月25日

Jólafrí

Jóladagurinn runninn upp og hér slappa allir vel af.  Búið að vera talsvert um að vera í desember og á tímabili var húsmóðirinn að fara yfir um af stressi.  Vaknaði eina nóttina og fór yfir stöðu mála og fannst allt of mikið að gera; mikið að gera í vinnunni, afmælisundirbúningur, jólaundirbúningur, framkvæmdir á heimilinu, kór, gestir og fleira.  Lítið sofið þá nóttina en daginn eftir var tekið á skipulaginu, hlutirnir skipulagðir og m.a. kórinn klipptur út í bili.  Auðvitað var þetta kannski óþarfa stress en eftir að skipulagi var komið á minnkaði stressið. 
 
Haldið var upp á afmæli húsmóðurinnar þann 9. des.  Reyndar var meira verið að halda upp á 65 ára afmæli ömmunnar en húsmóðirinn fékk að bjóða nokkrum með.  Síðan tók við ágætis tími fram að jólum þar sem jólasveinninn bankaði upp á hverri nóttu.  Sú litla var fljót að læra inn á þetta með jólasveininn og foreldrarnir voru dregnir mörgum sinnum á dag inn í herbergi að skónnum þar sem í átti að vera einhver pakki.  Smá vonbrigði í framhaldinu: "allt búið" þegar skórinn var tómur.  Jólasveinninn gaf ýmislegt sniðugt í skóinn: litlar bækur, leir, vaxliti (sem hægt er að þrýfa af með vatni), litabók, bíl o.fl.   Við bættist að sú litla uppgötvaði Ávaxtakörfuna og nú eru foreldrarnir, þó kannski aðallega húsmóðirin, dregnir inn í sjónvarpsherbergi og þau beðin um að setja "La-la-la" á.  Svo er dansað við lögin og húsmóðirinn syngur fullum hálsi með um perur, appelsínur og aðra ávexti.  Ossalega gaman!
 
Jólatréið var sett upp þann 22. og skreytt á Þorláksmessu.  Þetta árið er frekar mikið skraut neðst á jólatréinu.  Skautið kemur líklega til með að fara ofar á tréið með hverju árinu.  Döggu fannst þetta alla vegana ekki leiðinlegt.  Á aðfangadag var smá barátta við að koma Döggu í skilning um að ekki voru allir pakkarnir undir jólatréinu ætlaðir henni, og þá frá jólasveininum.  Sólarhringnum var svolítið snúið við á aðfangadag og sú litla tók seint síðdegislúrinn sinn og svaf til kl. 16.  Allt skipulagt svo hægt væri að vaka fram eftir til að taka upp pakka.  Þvílíkur fjöldi af pökkum!!!  Og fallegar gjafir!  Skrítnast fannst húsmóðurinni að fá frá Döggu DVD mynd með Ice age 2 og gjafakort í undirfatabúð!!!  Eitthvað heldur hún að pabbinn hafi komið þar að.
 
Nú er allt í rólegheitum.  Ragnheiður verður í fríi í næstu viku og þær mæðgur ætla að dúlla sér saman.  Gúlpahittingur þann 29. desember og jólaball þann 30. 
 
Hér fylgja nokkrar myndir af desember-bralli til  hliðar.