Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
11月25日 TannálfurOMG, þetta hafa verið erfiðir dagar undanfarið. Sá litli hefur verið í blússandi tanntöku og lítill svefn eftir því. Ofan á það hefur hann verið með kvef og smá hita og mamman á heimilinu líka með snörlandi nef. Í síðustu viku kom tönn nr. 6 og í gær kom loks fyrsta framtönnin, þ.e. tönn nr. 7. Og í dag kom svo 8. tönnin. Hann er sem sagt ekki orðinn 7,5 mánaða og kominn með 8 tennur, úff. Má eiginlega segja að hann sé búinn að vera í stanslausri tanntöku síðan um miðjan ágúst þegar hann var 4 mánaða. Og alltaf fengið kvef um leið. Þannig að nú vonar móðirin að smá pása verði nú þar til jaxlarnir fara að birtast. Merkilegt hvað tennurnar hafa raðast niður í undarlegri röð, sama gerðist reyndar líka með Döggu. Mér er sagt að það sé mikið gáfumerki að fá fyrst þessar tennur hliðiná framtönnunum, enda heita þær víst vísdómstennur.
Dagga er búin að vera svakalega uppátækjasöm undanfarið. Hún er líklega hundleið á mömmu sinni og vill fá pabba heim. Um helgina málaði hún aðeins veggina með höndunum, sem betur fer með vatnsmálningu. Fyrir það hlaut hún ferð í skammakróginn. Kvöldið eftir leyfði amma hennar henni að skoða bók upp í rúmi eftir að búið var að lesa fyrir hana. Svo átti hún að fara að sofa. Á meðan ég gaf guttanum graut heyrði ég eitthvað brölt en hélt það væri við lestur. Stuttu síðar kemur skottan fram og segist þurfa að pissa. Mér þótti þetta pínu undarlegt enda hafði hún farið í þeim erindagjörðum fyrir háttinn. Þegar ég ætla að leiða hana inn sé ég hins vegar glampa á hendurnar hennar. Þegar betur var að gáð kom í ljós að sú litla hefði læðst í málningardótið sitt og var búin að mála með höndunum með glimmermálningunni sinni. Og enn var farið í skammakrókinn.
Annars er jólabarnið á heimilinu búið að taka fram jólalögin og í vikunni á að skreyta. Á sunnudaginn hefst aðventan með því að ég mun syngja með kórnum mínum í Grensáskirkju kl. 15. Við munum syngja með kór Kvennaskólans og að því loknu er hið árlega kaffihlaðborð, namminamm. Toppurinn er svo þegar sungið er með börnunum. 11月21日 6. tönnin kominHér er tanntaka í gangi með tilheyrandi svefnleysi. Sá litli er kvefaður og var með hita í gær og í morgun og því fylgir svefnleysi hjá mæðginunum. Fyrri nótt var ansi erfið, þá fékk móðirin aðeins 3,5 klst. svefn. Dagurinn var lítið skárri, þá svaf gutti lítið og átti voða erfitt. Að lokum fórum við mæðginin bæði til læknis með snörlandi nebba. Úrskurðurinn var að ekkert væri að okkur nema kvef. Ég heimtaði þó að fá að fara í blóðrannsókn enda hef ég verið lasin í hverjum mánuði síðan Björn Ágúst fæddist, að undanteknum júlí. Niðurstaðan kemur eftir viku. Þennan sama dag var þreifað eftir tönnslum í gómnum á stráksa, enda 3 tennur á leiðinni. Eftir að hafa verið bitin nokkrum sinnum í puttann fannst 6. tönnin. Hún er í neðri gómnum og þá eru aðeins framtennurnar eftir. Ég veðja á að þær verði komnar innan viku. Það eru því "spennandi" nætur framundan... Mikið hlökkum við til að fá pabba heim. 11月18日 DrakúlaTönnslurnar vaxa og vaxa upp í Birni Ágústi og hann er að verða ansi skrautlegur í munninum. Það eru fáir sem hafa séð hann frá þessu sjónarhorni en hann er að verða sannkallaður Drakúla:
Dagga fór í gær í þroskapróf og allt gekk vel. Enginn einkunn gefin sem slík og reyndar sagði hjúkkan fátt, bara allt væri í góðu lagi. Vissi það svo sem. Næst er það svo læknisskoðun 2. des. þar sem hún verður mæld og vigtuð.
Hér var múgur og margmenni í heimsókn um helgina í familý-dinner. Þar sem Óli missir af þessu öllu læt ég fylgja hér með myndir af fjölskyldunni. Og já, ekki má gleyma að stráksi getur orðið alveg setið loks sjálfur, kom í síðustu viku. Þá er það að æfa skriðið...
11月13日 Væl vælHvur andsk$%!#, ég fékk "skot" í bakið. Eða sem sagt, brjósklos á byrjunarstigi. Búin að vera með einhvern seiðing í mjöðminni undanfarið en fyrir þremur dögum var ég bara alveg að drepast. Og í fyrradag gat ég svo bara ekki stigið í fótinn. Doksi sagði mér að þetta væri brjósklos á byrjunarstig, ég á víst að taka því rólega og reyna að liggja út af sem mest næstu daga svo þetta gangi til baka. Mér er bannað að bogra, taka úr og setja í þvottavélina, beygja mig yfir barnið og allt eftir því. Ég eiginlega horfði á lækninn og langaði til að segja að ég skildi allt sem hún sagði en það bara vantaði svolítið raunveruleikann í þetta. Eiginlega bara fyndnar leiðbeiningar akkúrat núna. Hvernig á að vera hægt að fara eftir svona leiðbeiningum þegar maður er einn heima með börnin? Geng nú sem sagt um á verkjalyfjum og vona bara hið besta... 11月11日 Enn ein tönninBjörn Ágúst er að drífa sig í tanntökunni. Fyrir viku síðan birtist tönn nr. 5, þá var hann 6,5 mánaða gamall. Og það eru fleiri á leiðinni fljótlega. Nú er Óli farinn út til Nýja Sjálands og við höfum "hótað" honum því að þegar hann komi til baka þann 1. des. að þá verði sá litli farinn að skríða og kominn með 8 tennur. Svo mun maður bara skutla í hann kótilettunni og segja honum að naga. Óli verður í sjokki yfir því sem hann hefur misst af þennan mánuðinn á meðan hann er úti, hehe.
Grasekkjulífið er sem sagt byrjað og hér nóg að gera og mikið puð, úff. Dagurinn byrjar kl. 6:50 og svo er bara hörkuvinna allan tímann til kl. 21:30 að hugsa um börn og burur. Puhh og please ekki segja mér að þetta sé eins og sjómannakonurnar hafa það. Ég er ekki sjómannakona og hef engan áhuga á svoleiðis lífi, takk fyrir. Ég meira að segja tek þessu grasekkjulífi þannig að ég tek bara einn dag í einu, eins og alkarnir. Eftir 5 daga er ekki spennandi að hugsa til næstu 20 daganna og jafnmargra nátta með takmörkuðum svefni yfir ungabarni. Ég hlakka því mikið til 1. des. Jæja, kl. er 22 og ég er farin að sofa, zzzzzzz... 11月4日 Nýjar myndirLoksins dreif ég mig í að skutla inn nokkrum myndum, þær eru að venju hér til hliðar.
Lífið gengur sinn vanagang hér. Björn Ágúst er við það að fara að sitja. Hann getur setið svo sem en það bara gengur alltaf svo mikið á þegar maður situr. Þá er maður nefnilega líka að leika sér og teygja sig eftir dóti svo maður er bara pínu valtur og út um allt. Svo maður þarf að sitja bakvið hann, tilbúinn að grípa. Þetta ætti nú að vera komið um 7 mánaða, ekki seinna vænna. Í staðinn er maður svaka duglegur á maganum, farinn að snúa sér í hringi og setja hnéin undir sig. Stefnum á að vera farin að skríða þegar pabbi kemur aftur heim í byrjun desember... Hér eru svo nokkrar veltu-myndir.
|
|
|