Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
11月21日 Ég er BerlínarbollaVið erum komin heim frá Berlín. Rosa fín helgi en þetta tók líka svolítið á bumbukerlinguna. Jú, bumbukerlingin er orðin svolítil bolla, en þó ekki Berlínarbolla. Fyrir þá sem ekki þekkja til þá var það JFK sem sagði "Ich bin ein Berliner" þegar hann kvaddi Þjóðverja eitt sinn, en það þýðir reyndar "Ég er Berlínarbolla". Hann ætlaði auðvitað að segja "Ich bin Berliner", hehe. En sem sagt, það var mikið verslað og slatta skoðað, hefðum viljað a.m.k. einn dag í viðbót í þessari borg, ef ekki viku. Dagga var alsæl með þessa helgi enda ofdekruð af ömmu og frænku.
Við fórum með litla bumbubúann í sónar í síðustu vikur, reyndar á afmælisdag Ómars bróður þann 15. nóvember. Stóri bróssi er orðinn 50 ára!!! Til hamingju með það Ómar. Sónarinn gekk annars vel, fullkomið kríli, að sjálfsögðu. Brosti til okkar og vinkaði öðru hverju, enda verður þetta barn löngu farið að brosa og yrkja ljóð þegar það fæðist. Við ákváðum að vita ekki kynið, þó bumbukerlinginn væri pínu forvitin og hugsi hvort hún ætti að prófa í þetta skiptið að vita kynið. En aðilinn sem öllu ræður í þessu hjónabandi, þó aðrir, uhh líklega flestir, vilji meina annað, vildi ekki vita kynið og þar með var það ákveðið. Bumbukerlingin er ennþá sett 2. apríl þó hún vilji samt halda öðru fram. Segir öllum að áætlaður fæðingardagur sé 6. apríl. Þó það skipti nú ekki miklu...
Hér eru svo nokkrar myndir frá Berlín.
11月13日 Eldhúsið að klárastInnréttingin er komin upp!!! Halelúja!!! Smiðurinn kom í gær og setti upp efri helminginn. Þá er bara eftir fínesering: flísaleggja, setja höldur og bíða eftir nýjum frontum á hornskápinn sem klúðraðist.
Einhverjir hafa beðið um myndir af eldhúsinu. Hér er sería af þróuninni.
1. Tekin í janúar, áður en allt stússið byrjaði:
2. Eldhúsið strípað niður um mánaðarmót ágúst/sept.
3. Korkurinn settur á og neðri hluti innréttingarinnar í vinnslu byrjun sept.
4. Búið að mála og borðplatan komin á (tekið um síðustu helgi):
5. Að lokum, efri hluti innréttingarinnar kominn upp. Eftir er að setja flísar og höldur.
11月9日 Eldhúsið að klárastLoksins er þetta allt að hafast. Borðplatan kom í lok síðustu viku, júhú, þvílíkur munur. Óli kláraði loks að tengja vaskinn og uppþvottavélina í gær eftir hringsól um bæinn í leit af réttu millistykki til að tengja saman tvo vaska og uppþvottavél. Smiðurinn kemur svo vonandi í dag og setur upp efri hluta innréttingarinnar. Við erum svo byrjuð að mála + við ákváðum að mála aftur ganginn. Þegar þetta er búið er bara eftir að flísaleggja örlítið. Ég held barastað að þetta hafist fyrir jólin!!!
Annars er brjálað að gera í bumbunni á hverjum degi. Mikið lamið og barið en þó ekki nógu sterklega ennþá til að einhver annar en eigandi bumbunnar geti fundið spörkin. Í næstu viku er svo 20 vikna sónar og ég held að við ætlum ekkert að vita kynið. Enda finnst okkur það ekki skipta máli, má alveg koma önnur stelpa og fínt líka að fá hitt kynið. Svo er nú eiginlega bannað að kíkja í pakkann...
Já, svo er í næstu viku líka Berlínarferð með vinnufélögum Ragnheiðar. Förum út 16. og komum heim 19. nóvember. Verður örugglega gaman, sérstaklega er stefnt á að sofa út.
Tengdó á svo afmæli í dag: Til hamingju með afmælið, Gugga!
Vonandi koma myndir líka inn um helgina... |
|
|