Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


10月20日

18 mánaða skoðun

Tíminn líður og sá litli var í 18 mánaða skoðun.  Tölurnar reyndust vera 11,635 kg, 81,4 cm og höfuðmál 47,8 cm.  Þannig reiknast mér til að loksins höfum við unnið keppnina við hana Hildi vinkonu okkar sem fæddist sem lítið kríli 3 mánuðum á undan Birni Ágústi.  Inga vinkona hefur "barist" við að halda henni stærri og hún hefur að jafnaði verið um 1 cm. lengri.  En loksins unnum við - tók aðeins 18 mánuði, ehem... Hot
 
Sá litli er búinn að vera kvefaður í 3-4 vikur og var loksins settur á penisilín, líklega með kinnbeinsholusýkingu.  Það leið varla dagurinn þegar nefrennslið var loksins hætt.  Við erum bara fegin á meðan svínaflensan stingur sé ekki niður á heimilinu.  Dóttirin horfði á mömmu sína stórum augum um daginn þegar móðirin útskýrði fyrir henni svínaflensuna.  Móðirin sagði, án þess að blikna, að nú væri að ganga veiki sem héti svínaflensa og allir þeir sem fengju þessa veiki fengju svínsnef og færu fljótlega að rýta, hehe...
 
Það var foreldrasýning hjá Döggu í ballettnum um síðustu helgi.  Frekar skondið að horfa á þetta, kennarinn að fá litlar 4 ára skvísur til að gera einhverjar kúnstir og alltaf var einhver sem var sveimhuga og jafnvel á krúfu í gólfinu þegar það átti að hoppa, hehehe.  Annars voru foreldrarnir frekar hissa eftir þessa sýningu því litli frumburðurinn reyndist vera með þeim stærri þarna í hópnum, hugsanlega bara næst stærst.  Hvaðan hún hefur þessa lengd er foreldrunum á huldu...
10月8日

Myndir

Ég skutlaði inn myndum frá sumarfríi okkar vikuna 10. júlí - 17. júlí á Kleppjárnsreykjum, Ólafsvík og Þingeyri.