Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


10月29日

Drulluslöpp

Úff, ég er að stíga upp úr veikindabælinu.  Held barastað að ég hafi fengið flensuna, þrátt fyrir flensusprautu fyrir um viku síðan, því ég var með 39,5°C og var alveg drulluslöpp.  Er held ég að ná mér núna en er enn eftir mig eftir beinverki og kuldahroll.  Ónæmiskerfið er eitthvað slappt, var líka svona lasin í vor.  Líklega stafar þetta af því að maður fær ekki almennilega svefn og svo er sá litli að sjúga frá manni öll vítamín með brjóstamjólkinni.  Það var sko ansi slappt útlitið á mér í gær, eldrauðar kinnar, fljótandi augu með gamlan maskara út á kinn, úfið hár sem stóð út í loftið, í ullasokkum og vafin í teppi.  Gugga vinkona kom hér við í gær til að skutla til mín úlpu á guttann að láni og hún nánast hvarf hlaupandi út í myrkrið frá þessari tröllskessu.  Núna er ég þó búin að  skella mér í sturtu og greiða flókann úr þannig að fólki er óhætt að koma við.  Ég sá mig tilneydda til að gera eitthvað í málunum þar sem ég er að fara með Döggu í klippingu í dag, ekki getur maður látið sjá sig svona á hárgreiðslustofunni.
 
Annars hafa fleiri verið lasnir, Björn Ágúst hefur verið kvefaður og eftir svefnlausa nótt vegna hóstakasta hans var farið með hann til læknis.  Nú er hann kominn með púst, greyið.  Þetta er nú samt að ganga yfir hjá honum.
 
Óli undirbýr brottför til Nýja Sjálands (ég var greinilega ekki alveg með staðinn á hreinu...), hann leggur af stað eftir rúma viku.  Á meðan verð ég einmana grasekkja í kotinu, sniff.
10月22日

6 mánaða skoðun

Tíminn líður og litli guttinn er orðinn 6 mánaða.  Sem þýðir að ég fer að vinna eftir 3 mánuði... Confused  Rosalega líður tíminn hratt, ég alveg drullusé eftir því að hafa ekki ákveðið að vera 12 mánuði í fæðingarorlofi.  En jæja, Björn Ágúst verður svo 2 mánuði heima með pabba sínum og ef hann líkist eitthvað systur sinni þá verður hann rosa ánægður með að hitta krakka 11 mánaða og þurfa ekki að hanga meira heima með mömmu og pabba allan daginn.
 
Við fórum í skoðun í gær og þar mældist stráksi 67,3 cm (lengst um cm á mánuði) og 8.035 g, höfuðmál 44,9 cm.  Hann hefur í þetta skiptið einungis bætt á sig 300 g á 5 vikum en hjúkkan setti ekkert út á að enda víst eðlilegt að börnin þyngist minna á þessum aldri þegar þau fara að hreyfa sig.  Maður þarf þá bara að fara að gefa honum meiri mat.
 
Allt stefnir í að húsmóðirin verði grasekkja nánast allan nóvember.   Óli er enn á flakkinu, núna líklega til Tansaníu (hm, eða var það Tasmanía, man aldrei hvort er en þetta er alla vegana í Ástralíu).  Hann fer líklega út 7. nóvember og skilar sér ekki heim fyrr en ca. 2. desember.  Á meðan verður nóg að gera hér heima, úff.  Ekkert mál að vera grasekkja með grislingana í 1-2 vikur en 4 vikur er heldur langur tími.  En kannski lán í óláni að vera í fæðingarorlofi, þannig er hægt að undirbúa matartímann á meðan Björn Ágúst sefur áður en prinsessan kemur heim og heimtar alla athygli mömmu sinnar.  Svo er alltaf ómetanleg aðstoð á neðri hæðinni.
10月15日

Panik í Portúgal

Ég fékk símtal í fyrradag frá portúgölsku mömmu minni.  Hún hreinlega gólaði í símann: "Heidi, Heidi, er allt í lagi með ykkur?  Þið komið strax út núna, við reddum Óla vinnu, þið bara komið!!" (takið eftir að ekki átti að redda mér vinnu, hehe).  Hmm, ég var meira en lítið hissa, já við höfðum það bara fínt, svo sem drungi yfir Íslandi og ég pirra mig á hverjum degi yfir neikvæðum fréttum.  En við höfum það samt bara fínt, hmm, hvað var málið?  Jú, fjölskyldan var að horfa á fréttirnar og þar var sagt frá því að nú væru allar búðir tómar á Íslandi og engan mat að fá.  Haha, mér fannst þetta pínu fyndið.  Í gærkvöldi fékk sé svo tölvupóst frá vinkonunum, sem og sms, sama efnis.  Allir í paniki.  Þá var ég reyndar hætt að hlæja og í staðinn pirraði ég mig á Bretum og heimskum fréttum í útlöndum.  Aumingja litla Íslandið mitt, það eru svo neikvæðar fréttir um það þessa dagana, sniff.  Ég ætla samt ekki að tapa gleðinni og hana nú!  Ég ætla ekki að tapa gleðinni og hana nú!  Ég ætla samt ekki að tapa gleðinni og hana nú!.. Hmm, hvernig segir maður bleyja og brjóstamjólk á rússnesku?
10月9日

Ja, hérna, hér!

Það er aldeilis að það gengur mikið á þessa dagana.  Þá eru "stórustu" bankarnir okkar farnir á hausinn.  Og ég fór samt og eyddi pening í gær.  Eftir að hafa skutlað inn slatta inn á lánið okkar í gær fór ég í Smáralindina með múttu og splæsti á mig kápu.  Hugsaði með mér að kannski væri bara best að drífa í þessu, ég ætti þá kápu næstu þrjú árin til að klæðast ef allt færi í klessu.  Maður verður jú að klæðast einhverju í þessum kulda. 
 
Við höfum aldeilis verið heppin, samt.  Ég átti gamla arfinn frá afa og ömmu í Sparibréfum Landsbankans og seldi þau á föstudaginn.  Að vísu er enn opið fyrir viðskipti í Sparibréfunum og þau hafa eitthvað hækkað en ég var samt ánægð að sjá upphæðina á reikningnum mínum.  Í gær ákváðum við Óli svo að skutla þessum peningi inn á lánið okkar.  Ég held nefnilega að besti sparnaðurinn í dag felist í því að greiða af lánum.  Stuttu síðar held ég að það hafi verið sett hámark á úttektir í Glitni...  Eða kannski misskildi ég eitthvað í sjónvarpinu í gær.  Alla vegana, ég hef trú á því að við séum nú ágætlega stödd fyrir þessa kreppu.  Maður þarf svo kannski bara að fara að taka upp prjóna og alles og verða að algjöri kerlingu!  Nei, meina, duglegri húsmóður, hehe.  Þá þarf ég líklega að læra fyrst almennilega að elda...
 
Jæja, yfir í eitthvað skemmtilegt og meiri fréttir af þeim litla.  Hann er nú kominn með 4 tennur, tvær niðri og tvær uppi sem eru sitt hvorum megin við framtennurnar.  Hann gæti því náð góðu biti um brjóstið ef hann ákveður að bíta mömmu sína, húhú.  Hann er líka farinn að snúa sér á gólfinu eftir dóti í kringum sig þegar hann liggur á maganum og í gær ýtti hann sér aðeins aftur á bak.  Þetta sama gerði Dagga ekki fyrr en hún var 8 mánaða svo mér sýnist litli karlinn ætla að hafa grófhreyfingarnar meira á hreinu.  Dagga var hins vegar öll í fínhreyfingunum, sat á sínum rassi og kubbaði turna 8 mánaða.  Fyrir utan þetta gengur lífið svo bara sinn vanagang hér á bæ og allir hafa það gott.
10月3日

Kvebb

Það snörlar í þeim litla þessa dagana og sömuleiðis í mömmunni.  Skrítið þetta kvef því það virðist ekkert koma úr nebbanum.  Sá litli fékk hita um daginn, hann var reyndar farinn upp úr hádegi svo maður veit ekki alveg hvort þetta séu tennurnar eða hvað.  Og ég er þá bara svona með...
 
Maður er alsæll að vera ríkisstarfsmaður þessa dagana.  Nenni eiginlega ekki lengur að kveikja á útvarpinu eða opna blöðin, maður verður svo þunglyndur á slíku.  Fínt að vera bara í fæðingarorlofi og upptekinn í barnauppeldi.  Kannski virkar strútsaðferðin á þetta, ef ég sting hausnum niður í sand þá kannski hverfur það.  Og þó, sú aðferð hefur víst ekki dugað hjá þeim sem eiga að stjórna.
 
Ég var að panta fyrir Döggu í 3,5 ára skoðun (þroskapróf).  Mér skilst að fyrir það eigi ég að greiða 6-7 þús. kr.  Svolítið skrítið finnst mér því ég hélt að þessi skoðun væri skylda og partur af ungbarnaeftirliti.  Samt þarf maður að punga út slatta.  Og ekki má maður sleppa þessari skoðun þó maður telji barnið sitt heilbrigt.  En út á hvað gengur þessi skoðun, getur einhver sagt mér það?  Ég veit bara ekkert við hverju maður á að búast.
 
Þau systkinin eru góðir félagar.  Læt nokkrar myndir fylgja með af þeim við slík tækifæri sem og eina af Birni Ágústi, útbýjaðan í sveskjugrauti.
IMG_2856 IMG_2859  
IMG_2860 IMG_2869 IMG_2871