Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
10月25日 Lítill frændi í ÁstralíuÉg var að eignast lítinn frænda í gær, alla leið úti í Ástralíu. Það er frumburðurinn hans Friðriks frænda og Cynthiu. Hún var pínt með hríðir í heila þrjá sólarhringa áður henni var loksins rúllað á skurðstofuna. Svo litli frændi er keisari og reyndist 3,38 kg (rúmar 13 merkur) og 48,5 cm.
Annars er staffapartý á morgun. Svona leit Mogginn út í gær: 10月24日 ÓheppniÉg held að eitthvað be$#% ólán elti okkur þessa dagana. Þetta er hætt að vera fyndið...
Borðplatan er ekki komin ennþá og sko saga að segja frá því. Byrjaði með að hnífurinn hjá þeim bilaði og fór að skera skakkt. Eftir nokkrar tilraunir og ónýtar plötur hafðist þetta loksins. Um svipað leyti fórum við Óli að velta því fyrir okkur hvort rétt hefði verið gengið frá dren-rákunum því við höfðum ekkert heyrt frá þeim varðandi þær. Óli var þá í sambandi og kemur í ljós að þær höfðu gleymst. Hægt var þó að skera þær í eftir á ef þetta væru ekki skurður í kringum vaskana. Óli skellir sér þá í heimsókn til að skoða þetta. Þegar hann horfir á borðplöturnar sér hann að það muni aldrei ganga því gaurarnir höfðu gleymt að skera úr fyrir litla vaskinum. Jæja, þá tekur við bið meðan þeir skera nýja plötu fyrir vaskinn og aftur byrjar hnífurinn að klikka. Ja, hérna. En, loksins, hmm, eftir held ég samtals 7 ónýtar plötur er þetta tilbúið. En þá tók við sagan af innréttingunni...
Kvöldið áður en borðplöturnar eru tilbúnar stöndum við Óli og horfum á innréttinguna og á galdrahornið svokallaða (hurðirnar falla saman og ganga síðan hringinn með innvolsinu). Ég var ekki sátt við hvernig hornið var því skáphurðirnar voru ekki í flútti við restina af innréttinguna. Eftir pælingar ákveður Óli að skella sér og skoða þetta daginn eftir í búðinni. Sú ferð varð til þess að hann heimsótti framleiðanda innvolsins því í búðinni voru hurðirnar í flútti. Eftir að hafa skoðað teikningarnar kemur í ljós að hornskápurinn er of lítill, aðeins 87,5 en varð að vera a.m.k. 90 cm. Úff, restin er of löng til að fara yfir, pirringur og vesen, en endaði með því að búðin varð að skella nýjum hornskáp og þar af leiðandi þarf að smíða borðplöturnar aftur, já, tvær af þremur. Sem betur fer allt á kostnað búðarinnar. Núna bíðum við eftir að mælt verði aftur fyrir borðplötunum. Vonandi fáum við þetta allt saman fyrir jól!!!
Til að toppa þetta allt saman þá var keyrt á bílinn minn á mánudagskvöldið á meðan ég var á kóræfingu. Það er lán í óláni að lögreglan var kölluð til og mín beið blár miði frá lögreglunni með upplýsingum bílnúmer bílsins sem var keyrt á minn bíl. Þannig að það lítur út fyrir að allt saman verði bætt.
Vonandi er þetta allt saman búið núna, er ekki alltaf sagt "Allt er þegar þrennt er".
Svo við víkjum að skemmtilegum fréttum þá munum við Alma Birna, ásamt Berglindi, syngja tríó með kórnum okkar á afmælistónleikum Breiðfirðingakórsins um helgina. Tónleikarnir verða í Fella- og hólakirkju laugardaginn 27. október kl. 16. Árnesingakórinn syngur fyrir hlé. 10月5日 Allt að gerast 13v5dJæja, við erum komin heim frá Costa del Sol. Höfðum það rosa gott í sólinni.
Annars er nóg að gera þessa dagana og allt að gerast svo þetta verður bara stutt blog. Helstu fréttir skýra sig á meðfylgjandi myndum. Þetta er sem sagt það sem við gerðum síðasta mánudag. |
|
|