Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


10月18日

Lítill frændi fæddur

Já, nú er það orðið formlegt!  Ég er orðin gömul... Eða eru ekki allar frænkur sem eru afasystur barns gamlar?  Eða hvað, hehe?
 
Alla vegana, lítill frændi fæddist í gær kl. 17:15, 13 merkur og 49 cm.  Allt gekk vel og Helenu og syni heilsast vel.  Jú, og pabbanum líka, honum Tóta.  Hlakka til að sjá litla frænda fljótlega.  Og Dagga er búin að eignast frænda sem hún getur stjórnað, hehe.  Þau verða eflaust góðir leikfélagar í fjölskylduboðum í framtíðinni.
10月17日

Afasystir

Helena frænka, dóttir Ómars bróður er komin upp á spítala.  Upp úr hádegi var hún komin með 5 í útvíkkun og rífandi gangur.  Þannig að...  ef allt gengur vel verð ég kannski orðin afasystir fyrir kvöldmat.  Omg!! Afasystir.  Æ, mér líst betur á að verða frænka og hlakka til að fá frænda eða frænku í heiminn.
10月4日

Komin heim úr frí

Við erum komin heim frá Fuerteventura (Kanaríeyjar) þar sem við höfðum það gott í 2 vikur.  Við vorum í bænum Correlejo sem er lítill bær á norðurhluta eyjarinnar.  Túrisminn er enn ekki orðinn mjög þróaður í bænum sem hentaði okkur ágætlega.  Bærinn er rólegur bær með nóg af veitingastöðum en kannski vantaði svolítið upp á almennilegar búðir (annað en túristabúðir) og kannski eitt torg þar sem eitthvað væri um að vera.  Hótelið var fínt, fengu herbergi með 2 herbergjum og gátum breytt úr okkur.  Íbúðin var á jarðhæð og við gátum gengið beint út í einn af mörgum sundlaugagörðum á hótelinu, Döggu til ánægju.  Þetta var sannkölluð letiferð og afslöppun.  Náðum þó að leigja okkur bíl í 3 daga og fara aðeins um eyjuna og versla í HM í borginni Puerto del Rosario.  Við komum heim að kvöldi þess 26. sept, sumir brúnari en aðrir, hehe.  Tökum það fram að Óli var að vanda "svartur".
 
Lífið er að komast í sinn vanagang, eða svona næstum því.  Lilja frænka og Sara eru hér í heimsókn frá Svíþjóð.  Lilja verður hér fram á næsta föstudag en Sara verður eftir og ætlar að læra að vera Íslendingur fram að jólum hjá okkur.  Hún er búin að fá vinnu í Hlíðarskóla við að passa krakka eftir skóla og ætlar svo að æfa með íslenskum hlaupurum.  Kannski tekst okkur að plata hana líka í pass öðru hverju á kvöldin og fara í bíó á meðan Dagga sefur.  Ragnheiður er mætt í kórinn og finnst gaman en er enn að íhuga hvort þetta sé aðeins of mikið að vera í kórnum, jafnvel þó æfingar séu nú bara 1x í viku.  Þetta er nefnilega aldrei bara 1x, við bætist alltaf eitthvað brall um helgar, öðru hverju.  Þetta verður bara að skoðast og sjá hvernig þetta gengur allt saman.  Verst finnst Ragnheiði þó að hitta ekki Ölmu Birnu, ef hún tekur sér frí frá kórnum.
 
Við hittum Elísu Dimmey þeirra Birnu og Sverris um helgina en við misstum af skírninni hennar á meðan við vorum úti.  Litla fjölskyldan í Vesturbergi er bara hress og allt gengur vel þar á bænum.  Nú er eftir að skutla sér að hitta Hermann, þeirra Ölmu Birnu og Guðmundar en hann fékk líka nafn á meðan við vorum úti.  Svo lýsir Ragnheiður eftir Lindu vinkonu, hefur ekki séð hana lengi!
 
Dagga nældi sér í ælupest í fyrrinótt og er enn svona næstum lasin, lítil í sér og þreytt.  Það gleymdi einhver að segja okkur frá svefnlausu nóttunum sem foreldrar upplifa.  Neinei, auðvitað vissum við það en við vorum heldur úldin í gær eftir lítinn svefn.
 
Um helgina verður grillveisla hjá okkur.  Félagar Ragnheiðar koma upp úr kl. 17 með sínar fjölskyldur og við ætlum í heita pottinn og grilla saman.  Ég held barastað að það verði voða gaman.
 
Annars eru myndir frá fríinu hér til hliðar.