Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
1月25日 Vinna á morgunÞá er fæðingarorlofið og sumarfríið búið og vinna á morgun. Mikið svakalega hefur tíminn liðið hratt. Litli gaurinn bráðum 9,5 mánaða. Mér finnst eins og ég hafi verið í stuttu fríi frá vinnunni en samt hefur svakalega mikið gerst í millitíðinni. Það togast á í manni hlutirnir, að sjálfsögðu hefði ég viljað vera lengur heima hjá Birni Ágústi, helst í 1 ár, en á sama tíma hlakka ég til að mæta til vinnu á morgun. Að vísu hefur ýmislegt gengið á í vinnunni, m.a. uppskipting á stofnunni sem einmitt snertir mig beint, og framtíðarverkefnin voru ekki alveg ljós. Ég átti síðan ágætis fund með mínum yfirmönnum og fékk góð svör og er, eins og ég segi, farin að hlakka til að mæta. Held líka að þegar eina umræðuefni manns er farið að snúa um börnin, hvort það sé farið að skríða, standa, o.s.frv., þá held ég að það sé kominn tími til að fara að víkka út sjóndeildarhringinn. Enda mun Björn Ágúst hafa það voða gott hjá pabba næstu 2 mánuði.
Svo maður segi einmitt frá grislingunum, hehe. Dagga er byrjuð í ballett og skemmtir sér konunglega. Hún er alltaf svo svaka spennt á hverjum laugardagsmorgni að það er eiginlega fyndið. Þegar við mætum á staðinn ætlar brosið ekki að fara af, hún gapir þarna með opinn munninn og tunguna út og hleypur nokkra hringi áður en tíminn hefst. Mamman fær líka smá fiðring og væri líka til í að byrja aftur í ballett.
Björn Ágúst er eins og hvirfilbylur um húsið og foreldrarnir á eftir. Hann er svaka tætari. Hann er farinn að standa upp við koll og aðeins farin að fara á hnéin. Það er því aldrei að vita nema hann muni skríða "venjulega" fljótlega.
1月13日 Nýjustu tölurSá litli er 9 mánaða í dag var í skoðun í morgun. Þetta var reyndar 8 mánaða skoðunin sem framkvæmd er mánuði of seint þar sem ekki fékkst tími fyrr. En alla vegana, guttinn er auðvitað bráðmyndalegur og afbragðs gáfaður... Hjúkkan sagði þetta reyndar ekki en ég gat lesið það úr augunum á henni, svona eins og allar hinar mömmurnar, hehe. Nýjustu tölur eru: 70,5 cm, þyngdin 9250 g og höfuðmálið 44,9 cm. Hann hefur að undanförnu verið að borða á sig gat og unnið upp þyngdartap eftir veikindi sem eru búin að vera þó nokkur svo mamman var ánægð að heyra þessar tölur. Býst reyndar við veikindum á morgun því hann fékk sprautu sem hann varð ansi lasinn af síðast. En það gengur fljótt yfir. ttÉg átti reyndar von á fleiri cm en Björn Ágúst er örlítið að detta niður í lengdinni. Skrítið, eins og mamman og pabbinn eru stór! Er komið að því að kaupa plankastrekkjar á heimilið? 1月12日 Síðasti dagur fæðingarorlofsinsTíminn líður hratt, á gervihnattaöld... Vá, í dag er síðasti dagur fæðingarorlofsins og á morgun verður Björn Ágúst 9 mánaða. Ég fer þó ekki að vinna á morgun heldur verð í sumarfríi til 26. janúar. Þá ætlar Óli að fara í "feðrafrí". Held stundum að hann haldi að ég sitji með tærnar upp í lofti í fríi, hehe. Nei, nei, hann gerir sér grein fyrir að það verður nóg að gera. Hann lærði það af reynslunni þegar hann fór í fæðingarorlof með Döggu. Þá var hann með langan lista yfir verkefni sem hann ætlaði að komast yfir en sá listi er eiginlega bara enn í gildi.
Dagga byrjaði í ballett síðasta laugardag og fannst voða gaman. Við hjónin vorum aðeins að velta því fyrir okkur hvort okkar ætti að fara með skvísunni en úr varð að ég fór með hana, sem betur fer fyrir Óla. Hefði hann farið þá hefði hann orðið að gjöra svo vel og tipla um á tánnum með hendur út í loftið, sem vængi, og hlaupa svoleiðis í hring með dótturinni. Veit ekki alveg hvernig það hefði tekist, hoho. En hann verður þó að fara einhvern tímann með dótturinni, en nú er hann undir svona dans búinn.
Björn Ágúst ferðast út um allt hús í parketskriði. Honum hefur verið bjargað frá rafmagnssnúrum, útvarpinu, afgöngum af gólfinu, kettinum með loppur upp í loftið en hann hefur samt afrekað að ná að smakka á moldinni í blómapottunum sem og að hækka og lækka í útvarpinu. Rosalega gaman! Ég er á harðalaupum og suma dagana sveitt að eltast við hann. Get huggað mig við það að aukakílóum fjölgar ekki á meðan, enda eru "meðgöngukílóin" senn að hverfa. 1月8日 ÞrettándinnVið fórum í afmæli í Grindavík á Þrettándanum, sem er svo sem telst ekki til frétta, nema vegna þess að þar er siður að grislingar fara að sníkja nammi og syngja lög á þeim degi. Dagga slóst með í för í þetta skiptið og fannst æði. Nammipokinn sem hún kom með til baka var svo algjör bónus.
Hér eru nokkrar myndir af uppábúnum krökkum; Döggu og frændsystkinum Óla.
Og svo er hér ein af þeim bræðrum, Gæja með fyrsta barnabarnið sitt og Óla með Björn Ágúst. Takið eftir því að Gæi og Björn Ágúst eru með sama brosið á myndinni.
1月5日 Nýtt árNýtt ár er gengið í garð og það gamla sprengt upp um áramótin. Dagga sendi varadutturnar sínar upp með rakettunni um miðnætti. Hægt og sígandi er unnið að því að hætta með snuð. Síðasta sumar hætti hún að nota snuð á leikskólanum og varadutturnar voru í raun ekki lengur í notkun. Þær voru geymdar í mömmu veski og notaðar í bílnum eða annars staðar í neyð. Eftir að hafa nefnd þessa hugmynd við Döggu hugsaði hún málið og var svo alveg hörð á þessu. Í undirbúningi er að gefa kálfunum í Húsdýragarðinum snuðin þegar hún verður 4 ára.
Við höfðum það ágætt um jólin og áramótin. Svona fyrir utan veikindi húsmóðurinnar milli jóla og nýárs. Þannig að hún bætti ekki á sig neinum aukakílóum yfir þessi jól. Það er orðin fastur liður að veikjast eða kvefast einu sinni í mánuði og desember var bara alveg að klárast... Doksi hringdi þegar ég lá í rúminu með niðurstöður úr sneiðmyndinni. Ég er með bungu við brjóskið milli liða n og nn (úff náði því ekki í hitamókinu) sem ekkert er gert við í bili. Þá er bara að þrauka og vona að þetta versni ekki. Enda er ég með ágætum núna eftir rúmleguna milli jóla og nýárs, hehe. Stráksi er allur að koma til, hóstar þó enn eftir veikindin og verið með niðurgang sem er þó á bataleið. Meira ástandið á þessu heimili en vonandi batnar þetta núna (var þetta skrifað af Pollý Önnu?
Foreldrarnir hafa unnið að því undanfarið að forða öllum smáum hlutum af gólfinu upp í örugga hæð. Björn Ágúst er nefnilega komin á fullt, togar sig áfram á höndunum um alla íbúð. Í gær voru það rafmagnsnúrurnar sem heilluðu, í dag var blaðra elt út um allt hús. Og svo er fínt að smakka á öllum hornum, t.d. á eldhúsinnréttingunni. Hliðið við stigann er komið upp enda var ekki hægt að taka áhættu lengur að hafa stigann óvarinn.
Fæðingarorlofið styttist óðfluga, aðeins nokkrir dagar eftir. Því líkur 13. janúar en þá hefur húsmóðirin ákveðið að taka sér nokkra daga í sumarfrí, eða til og með 23. janúar. Ég fer því til vinnu 26. janúar - á ansi breyttan vinnustað, held ég. |
|
|