Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 工具 帮助

日志


1月29日

Sykurmælingar

Nú er ég búin að mæla sykurinn hjá mér í viku.  Yfirleitt er þetta langt undir mörkum en fór aðeins yfir mörkin núna um helgina eftir morgunmatinn.  Ástæðan þar er að þá er maður búinn að vera svo lengi fastandi.  Hitti hjúkku í morgun sem taldi sykurinn ekki vera vandamál og ólíklegt að það breytist það sem eftir er meðgöngunnar.  Þannig að ég á að fækka mælingum, mæla mig alltaf eftir morgunmat og taka síðan 1 dag 1x í viku til að vera viss um að þetta sé ekkert að breytast.  Ég er eiginlega voða fegin að geta hætt að gata mig á puttunum.  Það er líka hægt að verða veikur af svona, fá þetta á heilann, barastað.  Annars er nú líka gott að fylgjast með þessu.
 
Það tekur engan enda hvað eldhúsinnréttingarmálin elta okkur og alltaf er eitthvað nýtt að koma upp.  Nú síðast vorum við búin að panta höldur sem áttu að koma eftir áramót.  Óli komst ekki að sækja þær strax en fór strax daginn eftir.  Þá var búið að senda allar höldurnar til einhvers annars Ólafs sem líka átti líka pöntun.  Og sá bjó á Stokkseyri.  Höldurnar komu síðan um viku síðar.  Það nýjasta er svo að Óli var að fá Vísa reikninginn.  Þar er hann rukkaður um 104.000 kr. frá höldu-fyrirtækinu.  Líklega hefur fyrirtækið skuldfært pöntun þessa Ólafs á Stokkseyri á vísareikninginn okkar.  Þetta er að verða sagan endalausa...
1月25日

Bóndadagur

Í dag er uppáhaldsdagur Óla.  Þá telur Óli að hann megi vera glaður.  Það þarf bara einn staf til að skilja þetta rétt.  Rifjið upp brandarann um fyrirlesarann og gaurinn sem var alltaf með sólskinsbros aftast; "Það er á morgun, það er á morgun"...  Til hamingju með daginn Óli!
 
Ég hitti næringarfræðing á þriðjudaginn og fékk blóðsykurmæli.  Megin skilaboðin voru þar að halda áfram sama matarræði og áður, fikra sig áfram og halda blóðsykrinum undir 7,5.  Þetta hefur gengið vonum framar, næstum þannig að ég fatta ekki alveg til hvers maður er að þessu.  Hæsta gildið mitt til þessa er 6,2, er venjulega í 5,4 til 5,7.  Hitti hjúkrunarfræðing á þriðjudag sem mun fara yfir tölurnar.  Mér finnst þetta a.m.k. lægra en ég átti von á.  Og málið er sko ekki það að ég sé eitthvað að passa mig, hámaði í mig stóran cheerios disk í morgun og óð svo í föstudagskaffið 2 klst. síðar með rúnstykkjum og vínarbrauði.  Gildið eftir það gums var 5,6.  Hmmm...
 
Við erum búin að velja flísar í eldhúsið.  Höldurnar eru komnar og þá er að klára að flísaleggja.  Þetta er allt að klárast.  Næsta verkefni er hafið, erum að fara í að taka í gegn hornherbergið og flytja Döggu þangað inn.  Við erum þegar búin að kaupa parketið en ekki lengra komin í því stússi í bili.
1月20日

Svolítið sæt...

Jæja, sykurþolsprófið er búið.  Það kom svona sæmilega út, hefði getað verið betra.  Á eftir að heyra í hjúkkunni en á von á að ég þurfi að passa sykurinn næstu 2 mánuði.  Ekki það, ég er hvort sem er ekki mikill sælgætisgrís og hef passað matarræðið svo líklega þýðir þetta að það er bann við namminu um helgar.  Alla vegana, niðurstaðan var þessi:

Viðmið

Niðurstaða

6,4

5

Ca. 8,5

9

9,6

8,4

8,6

8,6

7,8

7,9

 
Eftir er að fá niðurstöðuna úr þvagprufunni.  Svo nú þarf líklega að passa allan sykur svo þetta þróist ekki í meðgöngusykursýki.  Manni finnst líklegt að svipað hafi gerst með Döggu enda var hún víst afbrigðileg í útliti þar sem hún var 19 merkur, eða svo stendur í fæðingarskýrslunni.  Fullkomna barnið... ha!
 
Annars er Úlfur litli kominn heim (sonur Tolla og Hrundar) og allt gengur vel.  Inga vinkona var líka að eiga sitt þriðja barn og það var annað lítið kríli.   Til hamingju með stúlkuna Inga!  Voðalega hrúgast niður börnin núna.  Og þetta er rétt að byrja.  Gugga er líklega næst, hmm, svo við, Alma Birna, Sonja, Guðrún Lauga... Er ég að gleyma einhverjum?  Veit alla vegana að þær eru margar óléttar í kringum mig núna.
 
Fórum í leikhús í gær á Viltu finna milljón.  Rosa gaman.  Meira hvað fólk er ringlað.  Fleiri, fleiri manns sem þurfti að standa upp og færa sig því það var inni í röngum sal á rangri sýningu.  Bestar voru gömlu konurnar tvær sem hittu fyrir aðra vinkonu sína.  Búnar að spjalla heillengi við hana þegar þær spurðu hvort hún væri sem sagt líka að fara á "Lík í óskilum".  Sú hélt nú ekki.  Þær tvær gömlu urðu voða ringlaðar, fóru að spyrja alla í kringum sig á hvaða sýningu fólk væri að fara.  Spurðu svo hvert þær ættu þá að fara.  Þegar þeim var bent á að það stæði á miðanum urðu þær bara enn ringlaðri.  Þær stóðu loks upp og löbbuðu út með gosflöskurnar sínar, sem einmitt er banna að taka með inn í sal, stendur stórum stöfum þegar maður gengur inn.  Held að þær þurfi líklega að setja upp gleraugun sín á næstu sýningu. Nerd
1月11日

Allt í orden

Jæja, vorum að koma frá ljósunni í gær.  Allt í orden þar, blóðþrýstingur 115/65 svo hann er ekki að trufla mig.  Ljósan er reyndar alltaf smá ringluð, hún fattar ekki að það sé hlaupaár í ár og hún reiknar mig alltaf gengna 1 degi lengur, þ.e. eins og ég eigi að eiga 1. apríl.  Ég nennti ekki enn og aftur að leiðrétta hana núna, ég er soddan akkúrat manneskja að stundum verður maður að slá þessu upp í kæruleysi.
 
Kúlan mælist meðalkúla svo ég fór heim til mín glöð og ánægð yfir að þetta yrði kannski ekki 19 marka barn núna.  Runnu síðan aðeins tvær grímur á mig í gær þegar ég kíkti á meðgöngu- fæðingarskýrsluna hennar Döggu.  Þegar ég tók það inn í dæmið að ég áætla fæðingardaginn 6. apríl að þá breyttist dæmið aðeins.  Sem sagt, þetta lítur þá út fyrir að vera allt við það sama og með Döggu, ég er 1/2 kúrfu yfir meðaltalinu.  Æ, ekki það að það skipti öllu en mér fannst þetta merk uppgötvun í gærkvöldi.  Síðan er sykurþolspróf á fimmtudaginn.
 
Einhverjir hafa spurt hvernig jólamatseldin hafi gengið og hvort allt hafi brunnið við.  Nei, hehe, júhú, þetta hafðist allt saman.  Steikin var bara voða góð og puran heppnaðist frábærlega, var eins og snakk.  En sem betur fer var tengdó á staðnum að aðstoða við að útbúa sykraðar kartöflur, við Óli vissum ekkert hvað við vorum að gera þar.
 
Annars hefur ýmislegt gerst síðustu daga.  Stærsti atburðurinn var auðvitað sá að London-Gúlpar urðu óvænt foreldrar.  Til hamingju með það. Já, ég segi óvænt því Hrundskí gúlpur var bara gengin 32 vikur.  Þetta lítur samt allt vel.  Hrund var nefnilega búin að vera lasin og endaði upp á sjúkrahúsi með sýkingu og vatn í lungum.  Svo litla krílið, Brandur, var tekinn með keisara fyrir tímann, hreinlega til að bjarga Hrund og þar með honum líka.  Allt gengur núna vel, Hrund komin heim og hann úr kassanum.  Það er hægt að skoða betur myndir á myndagallerýinu hans Tolla.