Ragnheiður Birn... 的个人资料Hraunbrún照片日志列表更多 ![]() | 帮助 |
|
1月6日 Gleðilegt nýtt ár - Feliz novo ano!Þá er árið 2007 gengið í garð og omg ég verð 33 ára á árinu. Hmm, reyndar er ég nú bara ný orðin 32 svo best að halda sig í þeirri tölu.
Annars höfðum við það gott um jólin og áramótin, mikið borðað, mikið slappað af en hittum samt marga. Aðfangadagur heima, jóladagur hjá Guggu ömmu og annar í jólum í veislu hjá föðurfjölskyldunni.
Eftir jól tóku svo við tíðar klósettferðir til að losa sig við allt saltið úr hangikjötinu og hamborgarahryggnum. Úff, allt of þungur matur en þetta er nú bara 1x á ári. Svo er bara að vera duglegur að hreyfa sig til að losna við konfektið af bumbunni.
Ragnheiður var í fríi milli jóla og nýárs. Öllu var nú samt tekið með ró og mest lítið gert. Afrekuðum þó það að halda í sörur til Ölmu Birnu, Guðmundar og Hermanns. Þetta var nú farið að verða neyðarlegt, okkur var nefnilega boðið í sörur í byrjun desember en vegna kvefs og annarra kvilla tókst ekki að fara í heimsókn fyrr en þann 29. Hermann er voða duglegur, hann var svo sniðugur að velta sér í fyrsta skiptið yfir á bakið í heimsókn okkar. Og það bara fyrir Ragnheiði og Döggu, ekki mömmu sína. Hann er auðvitað að sýna sig fyrir verðandi tengdamömmu sinni!!!
Áramótin voru einnig hér heima og með okkur voru amma Jóhanna, Björk frænka, Ómar frændi og Hildur ásamt honum Nökkva Þór, litla frænda. Þetta var allt saman í rólegheitum, nokkrir flugeldar sprengdir upp um kl. 21 enda var minnsta fólkið þá orðið svolítið þreytt. Og svaf af sér áramótin.
Hér til hliðar eru svo myndir af öllum herlegheitunum. Gleðilegt ár! Fyrir Portúgalana, ef þeir yfirleitt kíkja hér einhvern tímann inn:
Feliz novo ano! Talvez vemos neste ano. Aqui ao direito sao fotografias do Natal e do novo ano. Beijinhos! xxx |
|
|